Sveiflur í ferðaþjónustunni munu hafa áhrif á þjóðarbúið. Þetta segir fjármálaráðherra um spá Isavia um fækkun ferðamanna. Hann segist þó ekki hafa áhyggjur af stöðu ferðaþjónustunnar.
Bankarnir eiga samanlagt hátt í 4.500 listaverk og gripi. Tæplega 800 verk eru flokkuð sem þjóðargersemar.
Margt bendir til þess að samningurinn um meðaldrægar kjarnaflaugar, sem Bandaríkjastjórn sagði sig frá í dag, hafi í raun verið genginn sér til húðar. Samningurinn er meira en þrjátíu ára gamall og valdajafnvægið í heiminum hefur breyst síðan þá.
Heildarkostnaður ríkissjóðs vegna Húsavíkurhöfðaganga fór nærri því tvöfalt fram úr áætlun. Þetta kemur fram í skriflegu svari iðnaðarráðherra, við fyrirspurn þingmanns Miðflokksins.
Veðurfræðingur segir það áhyggjuefni að heitavatnskerfi höfuðborgarsvæðisins ráði ekki við meiri kulda en nú er. Vetur séu alla jafna mildari nú en fyrir tuttugu árum.
Lengri fréttaumfjöllun:
Hann sá lóðir auglýstar til sölu, fór í kaffi til bóndans og síðan var ekki aftur snúið. Einar Tönsberg vildi sleppa við að steypa sér í skuldir, byggði sér sumarbústað og hefur búið í honum í átta ár. Spegillinn heldur áfram umfjöllun sinni um óhefðbundnar lausnir í húsnæðismálum. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Einar Tönsberg, tónlistarmann, og Svein Guðmundsson, formann Landssambands sumarhúsaeigenda, sem berst fyrir því að fólk fái að skrá lögheimili í frístundabyggð.
Neysluvenjur Íslendinga hafa breyst mikið síðustu áratugi en upplýsingar skortir frá síðustu árum, segir Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor í næringarfræði við Háskóla Íslands. Augljóst er að fjölbreytileikinn hefur aukist, ekki síst í drykkjarvörum og mikið framboð er af alls kyns jurtadrykkjum sem boðnir eru undir merkjum mjólkur hvort sem uppsprettan er hafrar, kókos, soja eða möndlur svo eitthvað sé nefnt. Ef raunin er sú að fólk skipti kúamjólk í auknum mæli út fyrir jurtamjólk telur Ingibjörg að ráðast þurfi í svipaðar aðgerðir og nágrannalöndin, joðbæta salt til að fyrirbyggja joðskort. Anna Kristín Jónsdóttir.
Þróun síðari ára, þar sem fleiri Íslendingar flytja af landi brott en snúa til baka, og fleiri útlendingar en Íslendingar flytja til landsins, heldur áfram. Þessi þróun, að fólk flytji þrátt fyrir góðæri, er mjög óvenjuleg í alþjóðlegu samhengi. Sigrún Davíðsdóttir.
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir