Talibanar heita friði og reglu í Afganistan. Upplausn hefur ríkt á flugvellinum í höfuðborginn Kabúl í allan dag. Bandarískir hermenn reyna nú að bægja mannmergðinni frá. Allt flug um völlinn liggur niðri.
Landspítalinn er enn á hættustigi. Sóttvarnalæknir á ekki von á að nýjar reglur á landamærum hafi strax áhrif á stöðuna á spítalanum.
Konur sem hafa beðið vikum saman eftir niðurstöðu úr leghálsskimun ættu að fá niðurstöður á næstu tveimur vikum.
Þurrt vor og lítil úrkoma í sumar veldur lágri grunnvatnsstöðu í vatnsbólum höfuðborgarbúa. Enn sem komið er þykir ekki ástæða til að biðja fólk að spara kalda vatnið.
Hvernig gat Afganistan fallið svona hratt? Og hverjum er um að kenna? Ragnhildur Thorlacius leitaði svara. Heyrist í fréttakonunni Christiane Amanpour og hinni afgönsku R. Hún hefur tjáð sig um ástandið en ekki hefur verið gefið upp hennar rétta nafn.
Í Bretlandi eru háværar raddir um að valdataka Talíbana í Afganistan sýni svik Breta og Bandaríkjanna við Afganistan. Í viðbót vaknar þessi sígilda breska spurning um hvar bresk utanríkisstefna sé mótuð, í Westminster eða Washington. En raunveruleikinn er kannski sá að pólitísk þungamiðja heimsins hefur færst frá Washington til Asíu. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Vinnumálastofnun spáir að það dragi jafnt og þétt úr langtímaatvinnuleysi og að á vormánuðum verði það komið í eðlilegt horf. Í lok júlí höfðu um 5400 verið án vinnu lengur en í 12 mánuði og fækkaði um tæplega 500 frá í júní. Arnar Páll Hauksson talar við Birnu Guðmundsdóttur