Töluvert meiri þensla og kvikusöfnun mælist skammt norðvestan við fjallið Þorbjörn en í byrjun mánaðar og hátt í fjögur þúsund jarðskjálftar hafa mælst síðustu daga á þessum slóðum.
Bjarni Benediktsson (D) fjármálaráðherra segir að nú eigi ríkisfjármál ekki að vera örvandi fyrir hagkerfið. Stjórnarandstaðan gagnrýnir hann fyrir þensluhvetjandi aðgerðir. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, segir stöðuna flókna en ráðherra megi ekki fara fram úr sér.
Forseti Hvíta-Rússlands hefur undirritað nýja löggjöf sem heimilar dauðarefsingu hryðjuverkamanna. Fjöldi stjórnarandstæðinga í landinu hefur verið sakaður um og dæmdur fyrir hryðjuverk. Þórgnýr Einar Albertsson sagði frá.
Síðustu daga hafa fleiri dauðar súlur sést á vefmyndavélum í Eldey en áður. Sigurður Harðarson sem heldur úti myndavélinni óttast er að fuglaflensan hafi breiðst út í eynni. Pétur Magnússon talaði við hann.
Mennta- og barnamálaráðherra hefur tekið fram fyrir hendur skólanefndar Menntaskólans á Akureyri og skipað utanaðkomandi hæfninefnd við ráðningu skólameistara.
Tilkynningum hefur fjölgað um óþekkta fljúgandi hluti á undanförnum tuttugu árum. Þetta kemur fram í máli Scotts Brays, háttsetts embættismanns bandaríska varnarmálaráðuneytisins frammi fyrir þingnefnd. Hann segir þó fátt benda til að farartækin séu frá fjarlægum hnöttum. Markús Þórhallsson tók saman.
---------
Kynntar hafa verið tillögur að fæðuöryggisstefnu þar sem megináhersla er á öryggi fæðuframboðs en jafnframt að neyðarbirgðir geti skipt sköpum í öryggisviðbúnaði. Jóhannes Sveinbjörnsson, dósent við Landbúnaðarháskóla Íslands samdi tillögurnar. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann.
Að minnsta kosti þrjú hundruð þúsund aðgerðir með bótox eða fylliefnum eru gerðar á ári hverju í Svíþjóð. Eftirlitið var hverfandi og litlar kröfur gerðar til þeirra sem framkvæmdu - þar til í fyrra, að ný lög voru sett. Síðan þá hafa meira en þúsund tilkynningar eða kvartanir borist til yfirvalda. Kári Gylfason sagði frá.
Erlingur Sigurður Jóhannsson, prófessor á menntavísindasviði HÍ vill að hugað verði að fræðslu um skaðsemi skjánotkunar strax í ungbarnavernd. Sífellt fleiri börn leita á barna- og unglingageðdeild Landspítalans vegna skjáfíknar en fíkn þarf ekki að vera til staðar til að skjánotkun hafi neikvæð áhrif á heilsu barna og unglinga.