Spegillinn 6. nóv
Starfandi forstjóri Icelandair býst ekki við að samruni félagsins og WOW leið til hærri fargjalda. Forsvarsmenn WOW áttu frumkvæði að viðræðum félaganna um síðustu helgi.
Kjörsókn er góð í bandarísku þingkosningunum og langar biðraðir hafa víða myndast við kjörstaði. Búist er við fyrstu tölum um miðnætti.
Rekstur borgarsjóðs verður með tæpra fjögurra milljarða afgangi á næsta ári samkvæmt fjárhagsáætlun. Leggja á fimm milljarða í Borgarlínu á næstu árum.
Forstjóri Vinnumálastofnunar segir að meira fé þurfi til ef biðlistar fyrir sérstakt atvinnuúrræði fyrir fólk með skerta starfsgetu eigi að styttast.
Forstjóri Landsvirkjunar segir að Ísland sé að missa af ákveðnum viðskiptatækifærum til fullnýta orkuna hér í ljósi þess að landið sé ekki tengt raforkumarkaði Evrópu.
Rýmri heimildir til samstarfs og sameininga eru forsenda þess að hægt sé að hagræða í afurðastöðvakerfinu. Þetta segir formaður Landssamtaka sláturleyfishafa.
Lengri umfjallanir:
Kristján Sigurjónsson ræddi Sigrúnu Ólafsdóttur prófessor í félagsfræði við HÍ og Pétur Þ. Óskarsson framkvæmdastjóra Íslandsstofu um þingkosningarnar í Bandríkjunum. Þau bjuggu bæði í Bandaríkjunum um árabil.
Arnar Páll Hauksson talaði við Hörð Arnarson forstjóra Landsvirkjunar og Eyrún Guðjónsdóttur sjálfstæðan ráðgjafa í Noregi á sviði endurnýjanlegrar orku um. Hörður segir að Ísland sé að missa af ákveðnum viðskiptatækifærum til að fullnýta orkuna hér í ljósi þess að landið sé ekki tengt raforkumarkaði Evrópu. Hann segir að það séu kostir og gallar við lagningu sæstrengs en skynsamlegt sé að skoða málið gaumgæfilega.
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Ragnar Gunnarson