Þörf er á bæði einkarekstri og opinberum rekstri í íslensku heilbrigðiskerfi segir forstjóri Karólínska- sjúkrahússins. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að ná þurfi fram aukinni skilvirkni og hagræðingu.
Miðflokkurinn boðar tíu ný réttindi fyrir íslensku þjóðina í kosningastefnu fyrir kosningarnar eftir mánuð. Meðal þeirra er að verði ríkissjóður rekinn með afgangi fái allir fullorðnir íslenskir ríkisborgarar helming afgangsins endurgreiddan 1. desember á eftir.
Samorka telur einsýnt að rammaáætlun tryggi ekki orkuöryggi, hagfellt orkuverð né heldur græna framtíð. Rætt verður við framkvæmdastjóra Samorku í Speglinum.
Mannanafnanefnd hefur slakað á kröfum sem gerðar eru til nýrra nafna. Tökunöfn með erlendum rithætti geta nú fengið samþykki þótt sá ritháttur hafi ekki unnið sér sess í íslensku máli.
Verið er af þróa og framleiða tugi ef ekki hundruð mótefnalyfja sem gefa má þeim sem fá COVID-19-sjúkdóminn. Þetta segir yfirlæknir á ónæmisfræðideild Landspítalans. Bergljót Baldursdóttir segir frá og talar við Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir á ónæmisfræðideild Landspítalans og prófessor við læknadeild Háskóla Íslands.
Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækja, telur einsýnt að Rammaáætlun sé ekki að tryggja orkuöryggi, hagfellt orkuverð né heldur að tryggja græna framtíð. Samtökin efndu í dag til fundar í aðdraganda alþingiskosninga sem bar yfirskriftina Tölum um græna framtíð. Arnar Páll Hauksson talar við Pál Erland, framkvæmdastjóra Samorku