Spegillinn

Titringur í Tyrklandi


Listen Later

Það er óhætt að fullyrða að það sé mikill titringur í Tyrklandi vegna landsleiks Tyrklands og Íslands. Kannski réttara að segja vegna móttökunnar í Leifsstöð. Lögreglan á Suðurnesjum hafnaði beiðni Tyrkja um að landsliðið fengi undanþágu frá vegabréfaskoðun við komuna til landsins. Leikur Íslands og Tyrklands hefst eftir stundarfjórðung.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur fellt úr gildi ákvörðun Fiskistofu um að svipta Kleifaberg RE-70 veiðileyfi vegna brottkasts. Ráðuneytið felur Fiskistofu að rannsaka betur meint brot.
Franskur saksóknari fer fram á fimm ára óskilorðsbundinn dóm yfir Björgólfi Guðmundssyni fyrrum stjórnarformanni og aðaleiganda Landsbankans vegna fasteignalána sem útibú bankans í Lúxemborg veitti.
Engin niðurstaða er af fundi formanna flokkanna á Alþingi sem lauk um klukkan fimm.
Innihaldslýsingar margra orkudrykkja sem markaðsettir eru sem heilsuvara eru oft ekki ósvipaðar innihaldslýsingu á Diet Coke. Þetta segir íþróttanæringarfræðingur. Ákveðnir hópar íþróttamanna geti þó haft gagn af aukakoffíni.
Kjaradeila Starfsgreinasambandsins og sveitarfélaga er í hnút. Það gæti stefnt í hörð átök og jafnvel verkföll ef ekki tekst að höggva á hnútinn og semja. Arnar Páll talar við Flosa Eiríksson og Henný Hinz.
Innihaldslýsingar margra orkudrykkja sem markaðsettir eru sem heilsuvara er oft ekki ósvipaðar innihaldslýsingu á Diet Coke. Þetta segir íþróttanæringafræðingur. Ákveðnir hópar íþróttamanna geti þó haft gagn af koffíni. Forstöðumaður rannsóknarstofu í næringarfræði við Háskóla Íslands og Landspítala segir að amínósýrur hafi líklega lítil sem engin áhrif í því magni sem þær eru í drykkjunum. Arnhildur Hálfdánardóttir.
Franskur saksóknari telur að Landsbankinn hafi brotið lög þegar útibú bankans í Lúxemborg seldi ákveðna tegund fasteignalána til húseigenda í Frakklandi fyrir hrunið 2008. Einn níu ákærðra er Björgólfur Guðmundsson fyrrum stjórnarformaður og aðaleigandi Landsbankans. Saksóknari telur Björgólf hafa haft hag af sviksamlegum lánum og fer fram á þyngsta dóminn yfir honum, fimm ára fangelsi og háa sekt. Allir ákærðu hafna sök í þessu áfrýjunarmáli sem saksóknari tapaði á fyrsta dómsstigi.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

29 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners