Fréttir:
Fall krónunnar veldur þrýstingi á hækkandi verðbólgu. Þetta segir lektor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík. Forsætisráðherra segir að engar töfralausnir sé að finna þegar talað sé um gjaldmiðil þjóðar.
Auka þarf sjálfvirkni og fækka störfum til að bregðast við bágri afkomu ferðaþjónustufyrirtækja á landsbyggðinni, segir ferðamálastjóri. Mun lakari afkoma er hjá hótelum á Norðurlandi en á höfuðborgarsvæðinu.
Mikilvæg sýni við rannsókn á hvarfi sádiarabíska blaðamannsins Jamals Khashoggi fundust í gær við húsleit í tveimur byggingum sem tengjast ræðisskrifstofu Sádi-Arabíu í Istanbúl í Tyrklandi.
Göngudeild SÁÁ á Akureyri verður líklega ekki lokað um áramót, segir formaður SÁÁ. Bæjarstjórn er tilbúin að styðja við starfsemina með öflugri hætti en áður.
Lengri umfjallanir:
Forsætisráðherra Noregs, hefur beðist afsökunar á illri meðferð sem norskar konur, sem áttu í sambandi við Þjóðverja í síðari heimsstyrjöldinni, máttu þola. Framkoma yfirvalda hafi ekki verið samboðin réttarríki. Bogi Ágústsson fjallar um málið.
Langri rimmu stærsta lántaka Kaupþings, Roberts Tchenguiz (tjengviss) við þrotabú bankans lauk í gær. Sigrún Davíðsdóttir var viðstödd réttarhöldin í gær.
Fjöldaframleiðsla er hafin á vetnisbílum. Fimmtán bílar voru fluttir hingað til lands í vor. BL ætlar að hefja almenna sölu á vetnisbíl frá Hyundai sem verður kynntur á næstunni. Nú eru reknar tvær vetnisstöðvar og von er á þeirri þriðju. Framkvæmdastjóri Íslenskrar Nýorku segir mikilvægt að styrkja innviði og fjölga vetnisstöðvum.Arnar Páll Hauksson talaði við Jón Björn Skúlason.
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir
Tæknimaður: Grétar Þór Ævarsson