Búið er að tryggja rúmenskum verkamönnum sem talið er að brotið hafi verið á hjá starfsmannaleigu, fæði og húsnæði, samkvæmt upplýsingum frá Alþýðusambandi Íslands. Forseti ASÍ segir að flýta þurfi tillögum sem lengi hafa legið fyrir til að taka á brotastarfsemi á vinnumarkaði.
Hlutabréfaverð í Icelandair hafði lækkað um tæplega 16 prósent þegar kauphöllinni var lokað síðdegis í dag.
Þjóðvegir á Austurlandi verða ekki opnaðir í dag ýmist vegna veðurs eða snjóflóðahættu. Athugað verður með opnanir í fyrramálið. Snjó kyngir niður fyrir austan og búist er við að éljunum sloti ekki fyrr en eftir miðnætti.
Tveir palestínskir táningar voru skotnir til bana á landamærum Gaza og Ísraels í dag. Ísraelsher segir að þúsundir Palestínumanna hafi tekið þátt í mótmælaaðgerðum á landamærunum.
Það styttist í að nýr Herjólfur verði tekinn í gagnið og Vestmannaeyingar binda miklar vonir við að ný ferja sem oftar getur siglt úr Landeyjahöfn verði ferðaþjónustu í bænum lyftistöng.
___
Það er húsnæðisvandi á Íslandi - ætti óhefðbundið húsnæði og selvbyggeri að vera hluti af lausninni? Hvað þarf til þess að svo geti orðið? Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Önnu Guðmundu Ingvarsdóttur, aðstoðarforstjóra Íbúðalánasjóðs sem leiddi vinnu átakshóps stjórnvalda í húsnæðismálum, Drífu Snædal, forseta ASÍ og Friðrik Ágúst Ólafsson viðskiptastjóra byggingariðnaðar hjá Samtökum iðnaðarins.