Skynja má töluverða valdabaráttu í aðdraganda fundar Norðurskautsráðsins í Hörpu á fimmtudag. Forsætisráðherra segir greinilegt að bæði Rússar og Bandaríkjamenn séu að marka sér stöðu fyrir fundinn.
Íþróttasamband Íslands krefst þess að íþróttafólk sem tekur þátt í alþjóðlegum verkefnum fyrir Íslands hönd fái forgang í bólusetningu. Sóttvarnalæknir segir að ekki sé hægt að bregðast við öllum áköllum án þess að riðla öllu kerfinu.
Bregðast þarf með markvissum hætti við fjölgun fólks með sykursýki tvö á Íslandi. Rannsókn Hjartaverndar sýnir að tvöfalt fleiri voru með sykursýki tvö árið 2018 en 2005.
Þolendur ofbeldis þurfa aukið tillit á vinnustöðum vegna #metoo. Þetta kemur fram í stuðningsyfirlýsingu BSRB.
Skimað verður í gámum á planinu utan við Leifsstöð á Keflavíkurflugvelli og búast má við bið eftir skimun síðdegis þegar margar flugvélar lenda á svipuðum tíma. Tvöfalda þarf fjölda starfsmanna við skimun, að minnsta kosti, segir framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Vonast er til að slembibólusetning geti hafist í næstu viku og að í lok júní geti fólk pantað sér tíma í bólusetningu og valið bóluefni. Ragnhildur Thorlacius talar við Ragnheiði Ósk Erlendsdóttur.
Hagfræðideild Landsbankans spáir því að fjöldi ferðamanna í ár verði um 800 þúsund. Á næsta ári komi hingað ein og hálf milljón ferðamanna og 2023 verði ferðamannafjöldinn kominn í tvær milljónir. Þá er því spá að verðbólgan á þessu ári verði 4% en fari niður í 2,5% á næsta ári. Þá eru horfur á atvinnuleysi verði tæplega 9% á þessu ári. Arnar Páll ræðir við Daníel Svavarsson.
Það er margt að breytast í Bretlandi í kjölfar Brexit, úrgöngu Breta úr Evrópusambandinu, um síðustu áramót. Þá einnig reglur um búsetu, varða bæði fólk frá ESB- og EES-löndum, því einnig Íslendinga. Breytingarnar varða bæði fólk, sem þegar býr í Bretlandi og fólk, sem hyggst flytja þangað. Sigrún Davíðsdóttir ræddi við Sturlu Sigurjónsson sendiherra Íslands í Bretlandi um þessar breytingar. Sigrún Davíðsdóttir segir frá