Forystumenn verkalýðsfélaga segja að ferðaþjónustufyrirtæki hafi framið verkfallsbrot - en rúmlega tvö þúsund manns lögðu niður störf í dag. Formaður VR segir að þessu verði mætt af fullri hörku.
Sérfræðingar í vinnumarkaðsfræðum og ferðaþjónustu búast ekki við að verkföll í greininni eigi eftir að dragast á langinn og þau muni ekki kasta eða að þau kasti rýrð á Ísland sem áfangastað. Ástandið í flugmálum sé öllu alvarlegra.
Það er vonskuveður um nær allt land, í gildi bæði gular og appelsínugular viðvaranir og vegir víða ófærir.
Formenn stjórnarflokkanna segja engar ákvarðanir hafa verið teknar um fjárhagslega aðkomu ríkisins vegna viðræðna um kaup Icelandair á WOW. Stjórn Icelandair hefur samþykkt að hefja viðræður við WOW air um aðkomu að rekstri félagsins.
Karlmaður á fertugsaldri, sem hollenska lögreglan hefur haft í haldi grunaðan um skotárás í Utrecht á mánudag, játaði verknaðinn í dag. Hann kvaðst hafa verið einn að verki.
Íslensk stjórnvöld eru bæði með belti og axlarbönd, gagnvart helstu álitamálum sem hafa verið viðruð vegna Þriðja orkupakkans, svokallaða, þetta segir utanríkisráðherra.
Bretar munu vart ganga úr Evrópusambandinu eftir viku, eins og til stóð - en fátt annað er ljóst í Brexit-efnum.
Fækkað hefur í hópi þeirra sem sækja um alþjóðlega vernd hér á landi en samsetning hópsins hefur breyst. Færst hefur í aukana að hingað komi fólk sem þegar hefur sótt um eða fengið vernd í öðru Evrópuríki.