Spegillinn 21. ágúst 2019
Í yfirlýsingu sem miðstjórn Alþýðusambands Íslands sendi frá sér í dag segir að þolinmæði launafólks sé á þrotum. Forseti sambandsins krefst þess að ríkisstjórnin standi við loforð sín um skattalækkanir fyrir lágtekjufólk.
Vestmannaeyjaferjan Herjólfur hefur á síðustu vikum tvisvar rekist utan í hafnarkantinn í Landeyjahöfn. Framkvæmdastjóri Herjólfs segir tjónið óverulegt.
Nokkrar plánetur sem líkjast jörðinni hafa fundist á undanförnum árum. Þetta segir prófessor í stjarneðlisfræði sem tekur þátt í 600 manna ráðstefnu stjörnufræðinga í Reykjavík.
Síðustu íslensku frímerkin kunna að líta dagsins ljós eftir tvö ár. Mikið tap hefur verið á frímerkjaútgáfu Íslandspósts síðustu ár.
Danir eru gramir og hlessa yfir því að Bandaríkjaforseti hætti við opinbera heimsókn sína þangað til lands, en búast ekki við því að það spilli samskiptum til langframa. Anna Kristín Jónsdóttir.
Starfsfólk á lokaðri deild Landakotsspítala fyrir fólk með heilabilun segir þörf sjúklinga fyrir lyfjagjöf hafa minnkað eftir að farið var af stað með tónlistarmeðferðarstundir á deildinni. Daglegt nudd hafi líka gefið góða raun. Arnhildur Hálfdánardóttir fylgdist með músíkþerapíu og ræddi við Önnu Herdísi Pálsdóttur, aðstoðardeildarstjóra á deildinni og Þóru Gunnarsdóttur deildarstjóra.
Hópur vísindamanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að pláss sé fyrir 11 milljónir vindmylla í Evrópu. Útreikningar þeirra sýna að þær gætu framleitt meiri orku en áætlað er að framleidd verði á heimsvísu 2050. Arnar Páll Hauksson fjallar um nýja skýrslu.