Spegillinn

Virkjanaleyfi Hvammsvirkjunar fellt úr gildi, Boris Johnson snupraður


Listen Later

Spegillinn 15. júní 2023.
Virkjanaleyfi vegna Hvammsvirkjunar hefur verið fellt úr gildi. Ógilding leyfisins kemur Landsvirkjun á óvart. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá.
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra vill harðari löggjöf og skilvirkari vinnubrögð í málefnum fólks sem hér sækir um alþjóðlega vernd. Hann lætur væntanlega af embætti á mánudag en hefði viljað sitja lengur. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við hann.
Sendiherra Íslands í Moskvu tekur við stöðu sendiherra í Kaupmannahöfn í sumar og Þórdís Kolbrún Gylfadóttir, utanríkisráðherra ákvað að senda ekki annan sendiherra í hans stað. Starfsemi sendiráðs Íslands í Rússlandi og umfang rússneska sendiráðsins hér hefur verið rædd í ríkisstjórn og utanríkismálanefnd en ákvörðun um að leggja niður starfsemi í Moskvu var hennar.
Óttast er að mörg hundruð hafi farist þegar skip sökk undan strönd Grikklands í gær. Talið er að 750 flóttamenn hafi verið um borð, þar af hundrað börn í lestinni. Ástrós Signýjardóttir sagði frá.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur og skólastjórar borgarinnar hafa rætt umað banna snjallsímanotkun barna á skólatíma. Ákvörðun um símabann verður ekki sett fyrir haustið. Karitas M. Bjarkadóttir sagði frá.
-----------------
Boris Johnson fyrrverandi forsætisráðherra Breta á ekki afturkvæmt í framlínu stjórnmálanna að mati fréttaskýrenda. Hann er sakaður um að hafa vanvirt breska þingið með því að hafa sagt því ósatt átta sinnum.
Þórdís Kolbrún Gylfadóttir utanríkisráðherra segir að framtíð Úkraínu sé í Atlantshafsbandalaginu - það verði sterkara með Úkraínu innanborðs. Hún situr nú fund varnarmálaráðherra NATO ríkjanna í Brussel, og Björn Malmquist, ræddi við hana síðdegis, um málefni Úkraínu - en einnig um nýlega ákvörðun íslenskra stjórnvalda að loka tímabundið sendiráði Íslands í Moskvu og viðbrögðin við þeirri ákvörðun.
Kvikmyndamiðstöð Íslands tók til starfa fyrir rúmum tuttugu árum. Gísli Snær Erlingsson, kvikmyndagerðarmaður og fyrrverandi rektor London Film School, er nýráðinn forstöðumaður miðstöðvarinnar, sem er ætlað að efla kvikmyndamenningu, kynna íslenskar kvikmyndir á erlendum markaði og margt fleira. Ævar Örn Jósepsson ræddi við hann.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kári Guðmundsson. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

472 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

133 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

14 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

20 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

41 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

16 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners