Kanna á í Svíþjóð hvort nauðgunarmál á hendur Julian Assange verði tekið upp að nýju. Það var látið niður falla fyrir tveimur árum.
Utanríkisráðherra segir ekki útlit fyrir því að viðskiptaþvingunum á Rússland verði aflétt á næstunni. Forseti Íslands fundaði með Rússlandsforseta í gær.
Umsjónarmaður sanngirnisbóta segir það ánægjuleg tíðindi að stjórnvöld ætli að greiða fötluðum börnum sem vistuð voru á heimilum sanngirnisbætur. Um mikla réttarbót að ræða fyrir þennan hóp.
Meðan tekist er á um þriðja orkupakkann hér heima er Evrópusambandið komið langt með að innleiða fjórða orkupakkann, þar sem lögð er áhersla á að ná markmiðum Sameinuðu þjóðanna í loftslagsmálum.
Hér á landi vantar heildarsýn fyrir byggingariðnaðinn, reglur og fjárhagslega hvata til að hér verði reistar umhverfisvænar byggingar. Þetta segir framkvæmdastjóri Grænni byggðar á degi grænni byggðar sem er í dag.
Grunnskólanemendur sem fréttastofa hitti í dag eru allt að átta tíma á dag í símanum.
Á sama tíma og Íslendingar takast á um þriðja orkupakkann vinnur Evrópusambandið að því að innleiða fjórða orkupakkann. Í honum er markið sett á að uppfylla markmið Parísarasamkomulagsins í loftlagsmálum þar sem megináherslan verður lögð á að auka græna orku og orkunýtingu og að draga markvisst úr orkunotkun. Ekki liggur fyrir hvenær þessi nýi pakki verður innleiddur hér á landi. Arnar Páll talar við Baldur Dýrfjörð.
Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Grænni byggðar segir að engin stefnumótun sé til fyrir byggingariðnaðinn eða reglur um hvernig eigi að hvetja til þess að hér á landi verði reistar umhverfisvænar byggingar. Dagur grænni byggðar er í dag. Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir. Bergljót Baldursdóttir talaði við Þórhildi Fjólu Kristjánsdóttur.
Á 13 árum hafa árlegar fjárfestingar í vindorku rösklega fimmfaldast á heimsvísu. 2004 námu þær um 2.300 milljörðum íslenskra króna en 2017 voru þær komnar upp í um 12.700 milljarða. Þó að vindorkan sé endurnýjanlegur orkugjafi eru vaxandi efasemdir um hana. Arnar Páll Hauksson sagði frá.