Spegillinn

Yfirkjörstjórnin sektuð


Listen Later

Starfsfólk Hótels Borgarness sagði í vitnaskýrslu hjá lögreglu að það hefði aldrei átt við kjörgögn úr alþingiskosningunum í Norðvesturkjördæmi. Eini umgangurinn sem sést við talningarsalinn eftir að yfirkjörstjórn er farin eru starfsmenn hótelsins að ganga frá.
Karl Gauti Hjaltason, sem kærði endurtalningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi til lögreglu, segir að ákvörðun um að sekta yfirkjörstjórnina staðfesti að fyrsta talningin eigi að gilda.
Allt starfsfólk New York borgar verður að láta bólusetja sig að fullu gegn kórónuveirunni á næstu dögum. Ella verður það sent heim án launa.
Miðstjórn ASÍ varar við sölu á Mílu og krefst þess að stjórnvöld grípi til aðgerða til að tryggja almannahagsmuni.
Jón Hjartarson hlaut í dag Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir ljóðabókina Troðningar.
---
Karl Gauti Hjaltason, sem kærði endurtalningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi, segir að ákvörðun lögreglustjórans á Vesturlandi að bjóða kjörstjórnarmönnum að greiða sekt staðfesti að fyrri talningin eigi að standa. Frambjóðandi Pírata sem ekki náði kjöri segir að staðan í málinu kalli á að uppkosning fari fram í kjördæminu. Svo virðist sem kjörstjórnarmenn ætli ekki að þiggja boð um að greiða sekt. Það gæti varðað 12 daga fangelsi. Arnar Páll Hauksson talar við Karl Gauta Hjaltason og Davíð Norðdhal.
Öllum þjóðum var boðið að skila og kynna sína framtíðarsýn í loftslagsmálum fyrir loftslagsráðstefnuna í Glasgow. Íslensk stjórnvöld hafa ekki gert það og skila því auðu, sem eru mikil vonbrigði að sögn Halldórs Þorgeirssonar formanns Loftslagsráðs. Ragnhildur Thorlacius talaði við Halldór.
Eftir að vera í fararbroddi í að bólusetja gegn Covid-19 hafa Bretar nú tapað þeirri forystu. Ensk heilbrigðisyfirvöld felldu niður varnir í sumar, aðrir landshlutar hafa farið sér hægar. Vonir um að víðtæk bólusetning myndi ein og sér ráða niðurlögum veirufaraldursins hafa ekki gengið eftir. Nýjum tilfellum fjölgar mjög, nýtt breskt Delta-afbrigði komið upp. Vetrarhorfurnar eru því heldur kvíðvænlegar þó vísindamenn búist ekki að það verði þörf á lokunum líkt og í fyrravetur. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners