Spegillinn

Zelenský ávarpar Alþingi, Svíar í NATO og eldgosatímabil


Listen Later

Forseti Úkraínu ávarpar Alþingi og íslensku þjóðina á morgun um fjarfundabúnað. Hann hefur þegar talað til hátt í þrjátíu þjóðþinga og beðið ráðamenn um aðstoð vegna stríðsins í Úkraínu. Anna Lilja Þórisdottir sagði frá og talaði við Birgi Ármannsson forseta Alþingis og Rögnu Árnadóttur, skrifstofustjóra þess.
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka býst við að vanskil aukist nú þegar stýrivextir hafa verið hækkaðir og verðbólga er í hæstu hæðum. Sunna Karen Sigurþórsdóttir sagði frá.
Englandsbanki varar við að verðbólga í Bretlandi fari í tveggja stafa tölu síðar á árinu og að efnahagslægð kunni að vera yfirvofandi. Stýrivextir bankans voru hækkaðir í eitt prósent í dag. Ásgeir Tómasson tók saman.
Íbúum í sveitarfélaginu Árborg hefur fjölgað mjög á undanförnum árum og innviðir eru víða komnir að þolmörkum. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir talaði við Díönu Óskarsdóttir forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.
Fiðringur, hæfileikakeppni ungmenna á Akureyri og nágrenni, fer fram í fyrsta skipti í Hofi í kvöld.
Óðinn Svan Óðinsson talaði við Heru Jónsdóttur og Maríu Pálsdóttur.
-----------
200 ára hlutleysisstefna Svía virðist senn á enda og allt stefnir í að Svíar og Finnar gangi Atlantshafsbandalagið á næstunni. Kári Gylfason tók saman og heyrist í Peter Hultquist varnarmálaráðherra Svíþjóðar, Joe Biden, forseta Bandaríkjanna og Tomas Ramberg, stjórnmálaskýranda sænska ríkisútvarpsins.
Jarðskjálftavirkni og kvikuheyfingar á Reykjanesskaga eru merki um við séum komin inn í eldgosatímabil segir Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur. Jarðskjálftar við Krýsuvík í nótt og skjálftavirkni undanfarið benda þó ekkert sérstaklega til þess að gos sé vændum. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann.
Umsjónarmaður: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar fréttahluta: Valgerður Þorsteinsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

473 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

135 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

23 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

20 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

41 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

12 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

16 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

30 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners