Albína Thordarson arkitekt er fædd árið 1939 í Reykjavík og það er óhætt að segja að arkitektúrinn sé henni í blóð borinn. Faðir hennar Sigvaldi Thordarson rak um tíma arkitektastofu á heimili fjölskyldunnar í Hlíðunum og Albína sá aldrei neitt annað fyrir sér en að verða arkitekt. Teikniblöð og umræða um hönnun voru alltaf hluti af lífinu og leiðin lá rakleitt í nám í arkitektúr til Danmerkur eftir að að skyldunáminu lauk.
Albína á að baki langan og fjölbreyttan feril þar sem við sögu koma einbýli, fjölbýli, skólar, skrifstofuhúsnæði, orlofshús, kaffihús og leikskólar. Hún var formaður Arkitektafélags Íslands á árunum 2005–2007 og árið 2015 var hún gerð að heiðursfélaga fyrir ævistarf sitt. Fyrr í vetur hlaut hún heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands fyrir framlag sitt til byggingarlistar.
Albína er gestur í Svipmynd Víðsjár í dag og við ræðum ferilinn, hús og hönnun en einnig hið byggða umhverfi sem rís í dag. Albína er ekki hrifin af stefnuleysi stjórnvalda í skiplagsmálum og finnst þar vanta alla langtímahugsun. Hún trúir því að húsnæðiskreppan sé ekki bara vegna skorts á íbúðum, heldur einnig vegna skorts á húsnæði sem fólki hugnist sem heimili. Því miður séu gæði ekki lengur sett í fyrsta sæti.