Heimsglugginn

Heimsglugginn

By RÚV
Download on the App Store

Heimsglugginn episodes

  • Krísa gömlu flokkanna í Bretlandi
    Kristján Guy Burgess, alþjóðastjórnmálafræðingur og fyrrverandi fréttaritari RÚV í Lundúnum, var gestur Heimsgluggans og ræddi við Boga Ágústsson um bresk stjórnmál. Hefðbundnu stjórnmálaflokkarnir tveir sem lengst af hafa farið með völd, Íhaldsflokkurinn og Verkamannaflokkurinn, glíma báðir við tilvistarvanda. Ástæðan er uppgangur Reform, Umbótaflokksins, undir stjórn Nigels Farage. Reform nýtur mestra vinsælda breskra flokka samkvæmt nýjustu könnunum. Fjöldi málsmetandi fyrrverandi ráðherra hefur hlaupist á brott úr Íhaldsflokknum og gengið til liðs við Reform.
    24 min
  • Úkraína og mögulegt samkomulag um Grænland
    Friðrik Jónsson, sendiherra í Póllandi og Úkraínu, var gestur Heimsgluggans og ræddi stöðuna í Úkraínu. Hann segir viðstöðulausar árásir Rússa á borgaralega innviði í Úkraínu hafa leitt til rafmagnsskömmtunar, ekki sé hægt að hita hús í höfuðborginni Kyiv þegar rafmagnið fari. Hann segir þessar árásir séu stríðsglæpi.
    Bogi Ágústsson ræddi einnig stuttlega um bresk stjórnmál þar sem Robert Jenrick hafi yfirgefið Íhaldsflokkinn og gengið til liðs við Nigel Farage og Umbótaflokk hans, Reform.
    Þá var rætt um málefni Grænlands þar sem Trump Bandaríkjaforseti hafi lýst yfir að samkomulag „til eilífðar“ hafi tekist.
    23 min
  • Blaðamenn drepnir, Gaza og Grænland
    Samtökin Blaðamenn án landamæra (Reporters sans frontières) segja að 67 blaðamenn, hið minnsta, hafi verið drepnir á síðasta ári, Flestir þeirra féllu á Gaza fyrir hendi Ísraelshers. Bandaríkjastjórn hefur lýst því yfir að annað þrep vopnahléssamkomulags á Gaza hafi tekið gildi. Samkvæmt því eiga Hamas-samtökin að afvopnast og Ísraelsher að draga sig enn frekar frá Gaza. Þá skal alþjóðleg nefnd taka við stjórn á Gaza og fjölþjóðlegt friðargæslulið sjá þar um öryggi. Í lok Heimsgluggans var rætt um fund utanríkisráðherra Danmerkur og Grænlands með bandarískum ráðamönnum um Grænland. Ákveðið var að viðræðum yrði haldið áfram en Bandaríkjaforseti heldur til streitu kröfum um bandarísk yfirráð á Grænlandi.
    24 min
  • Skrítin ásælni Trumps í Grænland
    Margir furða sig á röksemdafærslu bandarískra ráðamanna er þeir krefjast yfirráða á Grænlandi; varnarsamningur Danmerkur og Bandaríkjanna leyfi Bandaríkjamönnum nánast allt sem þeir vilja. Margt í málflutningi Donalds Trumps og annarra ráðamanna er beinlínis rangt, forsetinn hefur til dæmis haldið því fram að 30 þúsund manns búi á Grænlandi. Íbúar landsins eru nær tvöfalt fleiri eða tæp 57 þúsund.
    24 min
  • Hlutabréfaverð vestra tvöfalt hærra en ætti að vera
    Gylfi Magnússon, prófessor við Viðskiptadeild Háskóla Íslands, var gestur Heimsgluggans á Morgunvaktinni á Rás 1. Bogi Ágústsson ræddi við hann um stöðu og horfur í efnahagsmálum heimsins. Gylfi sagði að hann teldi að hlutabréfaverð í hlutfalli við hagnað fyrirtækja í Bandaríkjunum væri orðið tvöfalt hærra en það væri við eðlilegar aðstæður. Annars var Gylfi þokkalega bjartsýnn á horfur í efnahagsmálum heimsins og Íslands. Hann sagði að þrátt fyrir áföll ætti ekki að vera neitt óþolandi ástand á Íslandi þó að kannski muni ekki smjör drjúpa af hverju strái.
    25 min
  • Úkraína og vandræði norskra og danskra krata
    Bogi Ágústsson, Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu í Heimsglugga vikunnar um stöðuna í friðarviðræðum í Úkraínu. Rússar hafa ekki hvikað frá ítrustu kröfum sínum svo litlar líkur virðast á vopnahléi eða friði á næstunni. Í Noregi og Danmörku eiga leiðtogar Jafnaðarmanna og forsætisráðherrar landanna í nokkrum erfiðleikum. Litlu munaði að norska stjórnin félli vegna deilna um fjárlög og staða Mette Frederiksen hefur veikst verulega eftir sveitarstjórnarkosningarnar í nóvember.
    24 min
  • Íslendingar eiga allt undir því að alþjóðlegar reglur séu virtar
    Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, sækir Ísland heim í dag og Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs – samtaka um vestræna samvinnu, var gestur Heimsgluggans. Umræðuefnið var þátttaka Íslands í NATO og staða heimsmála.
    Davíð segir meðal annars að Íslendingar eigi allt undir því að alþjóðaskipulag sé virt og aðrar þjóðir viðurkenni að Ísland sé herlaust land. Rússnesk stjórnvöld hafi farið gegn þessu með innrásinni í Úkraínu og taka eigi alvarlega ógnina sem stafi af stjórnvöldum í Kreml.
    24 min
  • Trump snýr við blaðinu og stórtap Jafnaðarmanna í Danmörku
    Aðalefni Heimsglugga vikunnar voru dönsk stjórnmál og úrslit sveitarstjórnakosninga þar sem Jafnaðarmenn misstu embætti borgarstjóra Kaupmannahafnar eftir að hafa farið með forystu í höfuðborginni í 123 ár.
    Fyrst var þó rætt um lög, sem Donald Trump staðfesti í gær, og kveða á um að Epstein-skjölin svokölluðu verði birt. Trump talaði í kosningabaráttunni fyrir því að skjölin yrðu birt, breytti svo um stefnu eftir að hafa tekið við forsetaembættinu á ný og sneri svo aftur við blaðinu um síðustu helgi þegar hann sá fram á að lögin yrðu samþykkt í fulltrúadeildinni þrátt fyrir andstöðu hans.
    24 min
  • BBC í ólgusjó og kristalnætur minnst
    Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu í Heimsglugganum við Boga Ágústsson um vandræði breska ríkisútvarpsins vegna mistaka í fréttaskýringaþættinum Panorama sem fjallaði um Donald Trump. Einnig ræddu þau um minningarathafnir um kristalsnóttina svokölluðu í nóvember 1938 þegar nasistar réðust á heimili, eignir og samkunduhús gyðinga. Kristalsnóttin er talin hafa markað tímamót í ofsóknum gegn gyðingum.
    23 min

About Heimsglugginn

From the publisher's feed

Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni.

More shows like Heimsglugginn

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

6 Listeners

Spegillinn by RÚV

Spegillinn

6 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

129 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

9 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

17 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners