Heimsglugginn

Heimsglugginn

By RÚV
Download on the App Store

Heimsglugginn episodes

  • Leiðtogafundur NATO og vandræði breska Verkamannaflokksins
    Bogi Ágústsson og Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs, ræddu niðurstöður leiðtogafundar NATO í Haag í gær. Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu svo við Boga um vandræði breska Verkamannaflokksins. Stór hluti þingflokksins hefur lagst gegn frumvarpi stjórnarinnar um breytingar á velferðarkerfinu og niðurskurð um milljarða punda.
    Undir lokin sagði Björn frá því að Morgunvaktin er að fara í sumarfrí og Heimsglugginn sömuleiðis. Umsjónarmaður Heimsgluggans snýr sér að undirbúningi sjónvarpsþátta um „sögumisskilning“ Íslendinga þar sem leitast verður við að skoða sögu landsins í öðru ljósi en venja er.
    25 min
  • Pópúlistar helsta hættan við frjálslynt lýðræði
    Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson ræddu í upphafi um stöðuna í Mið-Austurlöndum. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus, var aðalgestur þáttarins og hann og Bogi ræddu hættu sem stafar að frjálslyndu lýðræði. Ólafur sagði Donald Trump grafa undan lýðræði í Bandaríkjunum, eins og Viktor Orban í Ungverjalandi. Hann sagði ekki miklar ytri hættur steðja að lýðræðisríkjum, helsta hættan kæmi frá þjóðernissinnuðum pópúlistum.
    24 min
  • Heimsglugginn: Ísrael, óeirðir í Los Angeles og Ballymena og konungsheimsókn í Færeyjum
    Bogi Ágústsson og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu um refsiaðgerðir gegn ísraelskum ráðherrum, óeirðir í Los Angeles í Bandaríkjunum og Ballymena á Norður-Írlandi, heimsókn Friðriks Danakóngs til Færeyja og Pétur og köttinn Brand. Barnabækurnar um þá félaga Pétur og Brand (Pettson och Findus) eftir Sven Nordqvist hafa verið bannaðar í Rússlandi vegna þess að þýðandinn, Aleksandra Polívanova, er í ónáð hjá yfirvöldum og hefur verið lýst „erlendur útsendari“.
    24 min
  • Heimsglugginn: Gaza, Úkraína, skuldaþak Bandaríkjanna, vestræn varnarmál
    Ástandinu á Gaza hefur verið lýst sem „verra en helvíti“ og forseti Alþjóðaráðs Rauða krossins var afar þungorð um ástandið í viðtali við BBC. Þetta var meðal þess sem Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu við Boga Ágústsson í Heimsglugga vikunnar. Þau ræddu einnig styrjöldina í Úkraínu, frumvarp Trumps Bandaríkjaforseta sem hann kallar „Big beautiful bill“, stóra dásamlega frumvarpið. Elon Musk, sem lauk störfum fyrir Trump í síðustu viku, hefur ráðist harkalega á frumvarpið og sagt skuldaaukningu ríkisins sem fylgdi samþykkt þess leiða til þjóðargjaldþrots.
    Í lokin ræddu þau hugarfarsbreytingu ráðamanna á Vesturlöndum til varnarmála og aukin útgjalda til varna.
    24 min
  • Stjórnmál í Portúgal og ógnarástand á Gaza
    Bogi Ágústsson ræddi við Einar Loga Vignisson, sem þekkir vel til í Portúgal, um úrslit þingkosninga þar um helgina. Einar Logi segir áframhaldandi minnihlutastjórn líklegasta kostinn því engin fylking fékk nægilegan stuðning til að geta myndað meirihlutastjórn.
    Í síðari hluta Heimgsluggans ræddu Bogi, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ástandið á Gaza. Stór hluti alþjóðasamfélagsins virðist vera að búinn að fá yfir sig nóg af framferði Ísraelsmanna.
    25 min
  • Ísland, norðurslóðir og ný heimsmynd
    Magnús Skjöld, dósent í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, var gestur Heimsgluggans að þessu sinni. Hann er meðal fyrirlesara á ráðstefnu í Norræna húsinu: Ísland og norðurslóðir í nýjum heimi. Þar verður fjallað um ógnir, öryggi, áskoranir og tækifæri í breyttum heimi. Þeir Bogi Ágústsson ræddu ráðstefnuna og alþjóðamálin.
    Bogi og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu svo meðal annars niðurskurð til þróunaraðstoðar og hjálpar við fátæk ríki. Bandaríkjastjórn hefur skorið niður fjárveitingar til helstu þróunarsamvinnustofnunar Bandaríkjanna, USAID, um meira en 80 prósent. USAID hefur styrkt aðrar stofnanir víða um heim og þær finna áþreifanlega fyrir samdrættinum. Þannig hefur Dansk Flygtningehjælp tilkynnt að 650 störf verði lögð niður til viðbótar 1300 störfum sem hafa verið lögð niður frá því í febrúar. Þetta hefur bein áhrif á líf hálfrar milljónar manna. Þá hafa Bretar og Frakkar tilkynnt niðurskurð til þróunarmála og aukin útgjöld til varnarmála.
    25 min
  • Fjölmiðlar, andúð erlendis gegn Trump, Indland og Pakistan
    Bogi Ágústsson, Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu um nýja skýrslu Blaðamanna án landamæra um frelsi fjölmiðla í heiminum. Þar er Ísland eftirbátur annarra norrænna ríkja. Andúð erlendis á Donald Trump Bandaríkjaforseta og stefnumálum hans má merkja í kosningaúrslitum í Kanada og Ástralíu og jafnvel í hergagnakaupum. Að síðustu var minnst á átök Indverja og Pakistana um Kasmír-hérað sem eiga sér langa sögu.
    23 min
  • Kúvending í Washington
    Heimsglugginn fjallaði að mestu um skyndilega stefnubreytingu Bandaríkjaforseta þegar hann frestaði um þrjá mánuði flestum tollahækkunum. Hlutabréfamarkaðir réttu strax úr kútnum en margir velta fyrir sér hvað hafi valdið kúvendingunni. Flestir hallast að því að verðlækkun bandarískra ríkisskuldabréfa og hærri ávöxtunarkrafa hafi orðið til þess að forsetinn breytti um stefnu.
    Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu einnig við Boga Ágústsson um nýja stjórn í Þýskalandi og kosningar sem fara fram í Kanada og Ástralíu á næstu vikum.
    22 min
  • Mörgæsirnar tollaðar
    Donald Trump kynnti í gærkvöld með miklum tilþrifum nýja tolla á vörur sem eru fluttar inn til Bandaríkjanna. Tollurinn verður minnst 10 prósent og Ísland lendir í þeim tollflokki. Í sama flokki eru einnig Heard og McDonald-eyjur. Þær eru með afskekktustu stöðum á jörðinni, 4000 kílómetra frá næsta byggða bóli og þar hafa aldrei búið menn. Þar er hins vegar að finna skordýr, sjófugla, seli og mörgæsir. Ýmsir hafa hent gaman að þessu þó að þeir séu fleiri sem hafi áhyggjur af áhrifum verndartolla á efnahagslíf heimsins. Þetta ræddu Bogi Ágústsson, Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1.
    Þau ræddu einnig heimsókn danska forsætisráðherrans til Grænlands, mótmæli í Tyrklandi og stjórnmál í Kanada.
    22 min
  • Danski þrællinn sem flúði til Íslands og endurmat sögunnar
    Gísli Pálsson, prófessor emeritus, var gestur Heimsgluggans og ræddi um nýja leikna heimildarþáttaröð Danmarks Radio sem nefnist Slave af Danmark og fjallar um þrælahald á dönsku Jómfrúareyjum og í Danmörku. Ein höfuðpersóna þáttaraðarinnar er Hans Jónatan sem flúði til Íslands í byrjun 19. aldar. Gísli skrifaði bók, Hans Jónatan: maðurinn sem stal sjálfum sér, um ótrúlegt líf Hans Jónatans. Gísli sagði okkur frá Hans Jónatan, rannsóknum sínum á ævi hans, ætt og þrælahaldi í Danmörku.
    Í lokin var rætt stuttlega um ferðir bandarískra ráðamanna til Grænlands og skoðanaskipti æðstu manna í Washington á samskiptamiðlinum Signal sem þykja þeim ekki til mikils sóma.
    23 min

About Heimsglugginn

From the publisher's feed

Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni.

More shows like Heimsglugginn

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

6 Listeners

Spegillinn by RÚV

Spegillinn

6 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

129 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

9 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

17 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners