Heimsglugginn

Heimsglugginn

By RÚV
Download on the App Store

Heimsglugginn episodes

  • „Grænland verður sjálfstætt fyrr eða síðar“
    Rasmus Gjedssø Bertelsen, prófessor í norðurslóðafræðum við háskólann í Tromsø, telur að Grænlendingar verði sjálfstæð þjóð í framtíðinni. Hann telur Bandaríkjamenn þegar hafa allan rétt á Grænlandi sem þeir óski og Danir hafi alltaf uppfyllt allar óskir þeirra, meðal annars leyft kjarnorkuvopn í herstöðinni í Thule. Þeir hafi logið um það bæði að dönsku þjóðinni og Grænlendingum. Ásælni Trumps Bandaríkjaforseta í innlimun Grænlands sé sálfræðilegs eðlis. Bertelsen var gestur í Heimsglugganum.
    23 min
  • Risagjaldþrot í Svíþjóð, vopnahlé í Úkraínu og óvænt úrslit á Grænlandi
    Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu að fimmtudagsvenju við Boga Ágústsson um erlend málefni í Heimsglugga vikunnar. Að þessu sinni var rætt um stærsta gjaldþrot í sænskri viðskiptasögu. Northvolt átti að verða lykilfyrirtæki í sókn evrópskra bílaframleiðenda á rafbílamarkaðnum en reksturinn gekk aldrei eins og skyldi. Fyrirtækið er nú gjaldþrota og þrjú þúsund manns í Skellefteå í Norður-Svíþjóð hafa misst vinnuna.
    Úkraínumenn hafa fallist á tillögur Donalds Trumps um vopnahlé en Rússar hafa ekki svarað enn. Trump hefur hótað Rússum auknum refsiaðgerðum fallist þeir ekki á vopnahlé.
    Úrslit þingkosninganna á Grænlandi komu verulega á óvart, enginn bjóst við því að mið-hægriflokkurinn Demokratiit yrði stærsti flokkurinn. Jens-Frederik Nielsen, leiðtogi flokksins, reynir nú að mynda stjórn. Búist er við að hann reyni að mynda stjórn með IA, sem er lengst til vinstri í grænlenskum stjórnmálum, og hugsanlega einnig með hægriflokknum Atassut.
    23 min
  • Serbía, tollastríð og óánægja í Tasiilaq
    Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu að fimmtudagsvenju við Boga Ágústsson um erlend málefni í Heimsglugga vikunnar. Að þessu sinni var rætt um óeirðir í þinginu í Belgrad og víðtæk mótmæli í Serbíu. Mótmælin hófust þegar þak á lestarstöð í Novi Sad hrundi í nóvember og 15 létust.
    Þá var rætt um afleiðingar refsitolla Donalds Trumps á efnahagslíf heimsins, Kanadamenn eru reiðir Bandaríkjastjórn og forðast að kaupa bandarískar vörur. Bílaframleiðendur og bændur í Bandaríkjunum eru einnig gramir vegna tollanna. Einnig var rætt um óánægju í Tasiilaq á austurströnd Grænlands vegna lélegra samgangna og í lokin fjallað um framburð á nafni pólsku frelsishetjunnar Lech Wałęsa.
    24 min
  • Gleymdu stríðin í Afríku
    Fáir Íslendingar þekkja jafn vel til Afríku og Stefán Jón Hafstein sem hefur um áratugaskeið starfað að þróunaraðstoð. Stefán Jón var gestur Boga Ágústssonar í Heimsglugganum á Morgunvakt Rásar 1.
    24 min
  • Hvíta gullið á Grænlandi og árásir Trumps á Úkraínuforseta
    Danmarks Radio hefur tekið úr birtingu „Grønlands hvide guld“, umdeilda heimildarmynd um kríólítvinnslu á Grænlandi. DR rak einnig ritstjóra sem bar ábyrgð á henni. Myndin var gagnrýnd meðal annars fyrir að rugla saman hagnaði af kríólítvinnslunni og veltu í rekstrinum.
    Donald Trump Bandaríkjaforseti fer mikinn í árásum á Volodymyr Zelensky forseta Úkraínu, kallar hann einræðisherra og segir hann bera ábyrgð á innrás Rússa í Úkraínu. Zelensky segir Trump vera í heimi rússneskrar upplýsingaóreiðu. Evrópskir leiðtogar hafa til þessa verið tregir við að andmæla röngum staðhæfingum Bandaríkjaforseta en Keir Starmer hringdi í Zelensky til að lýsa stuðningi við hann og Mette Frederiksen sagðist ekki skilja þessa árás á lýðræðislega kjörinn forseta Úkraínu. Í lokin heyrðum við Chris Rea flytja lag sitt The Road to Hell.
    23 min
  • Albert Jónsson: Vopnahlé líklegra en friðarsamningar í Úkraínu
    Gestur Boga Ágústssonar í Heimsglugga vikunnar var Albert Jónsson, sérfræðingur í öryggis- og utanríkismálum og fyrrverandi sendiherra. Hann telur að litlar líkur séu á að hægt verði að gera friðarsamninga á milli Rússa og Úkraínumanna. Verði Trump Bandaríkjaforseti að ósk sinni um að stríðinu ljúki verði það líklega með vopnahléi. Albert bendir á að friðarsamningar hafi aldrei verið gerðir á milli Norður- og Suður-Kóreu en þar hafi verið vopnahlé í meira en 70 ár.
    24 min
  • Sænska þjóðin í sorg, kosningar á Grænlandi, ný norsk stjórn og fjör í breska þinginu
    Í Heimsglugganum var sjónum beint að norrænum málum. Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddi við Boga Ágústsson um sorgina í Svíþjóð eftir fjöldamorð í skóla í Örebro, kosningar sem hafa verið boðaðar á Grænlandi 11. mars og minnihlutastjórn norska Verkamannaflokksins. Þá heyrðum við Keir Starmer í breska þinginu úthúða fyrri stjórn fyrir veisluhöld á COVID-tímanum.
    23 min
  • Utanríkismál í hverfulum heimi
    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Íslands, ræddi öryggis- og varnarmál við Boga Ágústsson. Þorgerður Katrín sagði nú vera óvissu, jafnvel ólgutíma, og nauðsyn að vera í náinni samvinnu við mestu vinaþjóðir okkar. Hún lagði áherslu á nauðsyn þess að reglur væru virtar í alþjóðasamskiptum. Hún sagði mikla samstöðu með norrænu ríkjunum og að norræn og evrópsk samvinna skipti miklu máli. Hún sagði einnig að Íslendingar þyrftu að bæta í þegar kemur að öryggi og framlögum til varna landsins.
    24 min
  • „Í Guðs bænum sýndu miskunn“
    Donald Trump var aftur til umræðu í Heimsglugganum á Morgunvakt Rásar 1 og við heyrðum í biskupi Washington biðja forsetann um að sýna miskunn. Ummæli Trumps um Panama og Grænland voru einnig á dagskránni er Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu við Boga Ágústsson um erlend málefni. Fjallað var um sögu Panama og skipaskurðinn þar.
    25 min
  • Vopnahlé á Gaza, Grænland, Eystrasalt og afsögn bresks ráðherra
    Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu erlend málefni við Boga Ágústsson eins og jafnan á fimmtudagsmorgnum á Morgunvaktinni. Samið hefur verið um vopnahlé á Gaza eftir grimmdarleg átök, þar sem talið er að nærri 50 þúsund Palestínumenn hafi beðið bana og á annað þúsund Ísraelsmenn. Forsætisráðherra Dana ræddi í síma í gær við verðandi Bandaríkjaforseta og lagði áherslu á að Grænlendingar ættu að ráða eigin framtíð. Leynistríð Rússa gegn vestrænum ríkjum var til umræðu. Ríki við Eystrasalt hafa miklar áhyggjur af skemmdarverkum á neðansjávarköplum. Þau ætla að stórefla gæslu á Eystrasalti gegn svokölluðum skuggaflota Rússa. Finnar handtóku áhöfn skips úr þeim flota, Eagle S. Allt bendir til þess að skipverjar hafi dregið akkeri yfir kapla á milli Eistlands og Finnlands. Verkamannaflokkurinn vann stórsigur í þingkosningum á Bretlandi í fyrra. Hálfu ári síðar hefur flokkurinn misst traust stórs hluta kjósenda sinna og á undir högg að sækja. Í gær þurfti ráðherra að segja af sér vegna mögulegra tengsla við spillingarmál í Bangladess. Þykir háðulegt að ráðherrann bar ábyrgð á baráttu gegn spillingu í bresku stjórninni.
    24 min

About Heimsglugginn

From the publisher's feed

Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni.

More shows like Heimsglugginn

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

6 Listeners

Spegillinn by RÚV

Spegillinn

6 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

129 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

9 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

17 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners