Heimsglugginn

Heimsglugginn

By RÚV
Download on the App Store

Heimsglugginn episodes

  • Kosningasvindl og ólga í Tansaníu
    Fjallað var um Tansaníu í Heimsglugga vikunnar og einnig kosningarnar í Bandaríkjunum sem voru í fyrradag. Jón Geir Pétursson, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við HÍ, þekkir afar vel til í Afríku, hefur búið og starfað í nokkrum löndum álfunnar og er einn höfunda bókarinnar Afríka sunnan Sahara í brennidepli II, sem kom út í fyrra.
    Tansanía er stórt land og þar búa um 47 milljónir manna en fréttir frá landinu eru ekki daglegt brauð í vestrænum miðlum. Ólga og blóðug mótmæli í tengslum við forsetakosningar þar í síðustu viku hafa verið í fréttum. Samia Suluhu Hassan var endurkjörin forseti með 98 prósentum atkvæða og augljóst að brögð voru í tafli. Jón Geir sagði okkur frá Tansaníu og við byrjuðum fyrir meira en hundrað árum.
    24 min
  • Trump hundsar þrískiptingu ríkisvaldsins
    Bandarísk stjórnmál voru til umfjöllunar í Heimsglugga vikunnar. Bogi Ágústsson ræddi við Sigríði Rut Júlíusdóttur héraðsdómara um skautun, kjördæmabreytingar, borgarstjórnarkosningar í New York, valdsvið forseta og margt annað.
    24 min
  • Vandræðaprinsinn Andrés
    Bresk málefni voru til umfjöllunar í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1. Bogi Ágústsson ræddi við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um stöðuna í breskum stjórnmálum þar sem Umbótaflokkurinn (Reform) ber höfuð og herðar yfir aðra stjórnmálaflokka í könnunum og hver krísan á fætur annarri ríður yfir Keir Starmer og stjórn hans.
    Bogi ræddi svo við Önnu Lilju Þórisdóttur fréttamann um Andrés prins, yngri bróður Karls þriðja konungs. Andrés hefur þurft að hætta að nota aðalstitla vegna tengsla við bandaríska barnaníðinginn og kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Sífellt bætast við nýjar upplýsingar um tengsl þeirra og hefur málið valdið konungsfjölskyldunni miklum vandræðum og varpað skugga á störf konungs.
    24 min
  • Hrökklast úr stjórnmálum vegna hatursorðræðu
    Anna-Karin Hatt, leiðtogi Miðflokksins (Centerpartiet) í Svíþjóð, hættir eftir einungis fimm mánuði í starfi vegna hótana og hatursorðræðu. Bogi Ágústsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu afsögnina í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1.
    Þau ræddu einnig valdarán á Madagaskar þar sem forsetinn, Andry Rajoelina, flúði land eftir mikil mótmæli þar sem afsagnar hans var krafist.
    25 min
  • Vopnahlé á Gaza og ný bók um fjölþáttaógnir
    Heimsglugginn hófst á umræðu um vopnahlé á Gaza sem Donald Trump Bandaríkjaforseti skýrði frá. Trump tilkynnti á samfélagsmiðlum seint á miðvikudagskvöld að tekist hefðu samningar um vopnahlé Hamas og Ísraelsmanna. Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson ræddu stöðuna.
    Aðalefni Heimsgluggans var samtal Boga og Bjarna Braga Kjartanssonar alþjóðastjórnmálafræðings um nýja bók um fjölþáttaógnir. Bjarni Bragi er einn höfunda bókarinnar.
    25 min
  • Ógnin frá Rússlandi rædd á leiðtogafundi Evrópuleiðtoga
    Bogi Ágústsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu fundahöld evrópskra leiðtoga í Kaupmannahöfn um fjölþáttaógnina frá Rússum. Leiðtogar Evrópusambandsins þinguðu í gær og í dag bætast fleiri evrópskir leiðtogar í hópinn, þar á meðal Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands.
    Þá var einnig rætt um úrslit kosninga í Moldóvu þar sem PAS-flokkurinn (Aðgerðir og samstaða), fékk meirihluta þingsæta. PAS vill náið samstarf við Vesturlönd og inngöngu í Evrópusambandið.
    24 min
  • Drónar, danska ríkissambandið og stórkarlalegar yfirlýsingar Trumps
    Bogi Ágústsson ræddi fyrst við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um drónaflug í Danmörku sem Troels Lund Poulsen varnarmálaráðherra lýsir sem fjölþáttaárás.
    Þau ræddu svo vestnorræna samvinnu og breytta afstöðu Færeyinga til sambandsins við Dani. Jafnvel Sambandsflokkurinn vill breytingar og flestir Færeyingar virðast vilja samband sem líkist því sem var með Danmörku og Íslandi 1918-1944.
    Þá var rætt um stórkarlalegar yfirlýsingar Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í vikunni, allt frá lyfjamálum til Úkraínustríðsins.
    24 min
  • Herská Frederiksen og Bretar smjaðra fyrir Trump
    Bogi Ágústsson fjallaði um dönsk varnarmál og heimsókn Trumps Bandaríkjaforseta til Bretlands.
    Mette Frederiksen forsætisráðherra Dana sagði í gær að Danir ætluðu að kaupa langdrægar eldlaugar. Frederiksen lýsti ákvörðun ríkisstjórnarinnar sem þáttaskilum í dönskum varnarmálum. Aðeins eru örfáir dagar frá því að tilkynnt var um kaup á loftvarnarflaugum sem voru mestu vopnakaup í danskri sögu.
    Donald Trump Bandaríkjaforseti er í opinberri heimsókn í Bretlandi og gestgjafarnir hafa skemmt honum með íburðarmiklum seremóníum og skrautsýningum. Allt var þetta á bak við lokaða múra Windsor-kastala svo forsetinn yrði ekki var við nein mótmæli.
    25 min
  • Pólitísk morð í Bandaríkjunum og stjórnmál í Noregi eftir kosningar
    Charlie Kirk, ungur hægrisinnaður áhrifavaldur, var skotinn til bana á fundi í Utah Valley-háskólanum í Bandaríkjunum í gær. Rætt var um pólitísk morð í upphafi Heimsgluggans. Aðalefnið var þó stjórnmálastaðan í Noregi eftir kosningarnar á mánudag. Hallgrímur Indriðason fréttamaður fylgdist með kosningunum og var gestur Heimsgluggans.
    24 min
  • Spennandi stórþingskosningar í Noregi
    Norðmenn ganga til kosninga um helgina og útlit er fyrir spennandi kosningar þó að margir telji að þokkalegar líkur séu á að Jonas Gahr Støre verði áfram forsætisráðherra. Verkamannaflokkur hans hefur farið með stjórnarforystu síðustu fjögur ár og frá því í febrúar setið einn í minnihlutastjórn. Verkamannaflokkurinn nýtur mests fylgis samkvæmt könnunum, næstur kemur Framfaraflokkurinn. Hann er pópúlískur hægriflokkur. Sylvi Listhaug, formaður flokksins, vill fækka innflytjendum og hún hefur talað fyrir þyngri fangelsisdómum. Flokkurinn hefur, eins og hægripópúlistar í mörgum öðrum löndum, farið mikinn um lög og reglu og vill skera niður fjárveitingar til umhverfis- og velferðarmála og minnka skriffinnsku.
    23 min

About Heimsglugginn

From the publisher's feed

Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni.

More shows like Heimsglugginn

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

6 Listeners

Spegillinn by RÚV

Spegillinn

6 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

129 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

9 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

17 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners