Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Biskup yfir sjálfum sér, Lexi Picasso, og Frjálsir menn á Cannes
    Við hringjum til Nairobi í Kenýa og ræðum við rapparann Lexa Picasso sem er þar búsettur um þessar mundir. Lexi bjó lengi í Atlanta höfuðborg rappsins í Bandaríkjunum og vakti mikla athygli þegar hann flaug í einkaþyrlu inn á sviðið í íslensku rappi árið 2016. Við ræðum við Lexa um lífið í afríku, um föðurhlutverkið og nýja plötu sem hann er að leggja lokahönd á, þar sem hann rappar í fyrsta skipti á hinu ástkæra ylhýra.
    Frie mænd nefnist útskritftarverkefni leikstjórans Óskars Kristins Vignissonar úr danska kvikmyndaskólanum. Þessi hálftíma grínmynd um tvo lánlausa starfsmenn í fiskvinnslu í danmörku hefur verið valin til sýninga á kvikmyndahátíðinni í Cannes, en þetta er í fyrsta skipti í 18 ár sem nemandi úr skólanum fær inni á hátíðinni með útskriftarverkefni sitt. Við ræðum við Óskar í Lestinni í dag um Cannes, um danska kvikmyndaskólann og kúnstina að gera kómedíur.
    Og við köfum ofan í eina af yfirstandandi sýningum safnasafnsins: sýningu tengda manni sem var ?biskup? yfir sjálfum sér, sýningu sem inniheldur bæði frímerkja mósaík og HM 95 trefil, sýningu sem fylgir dularfull ráðgáta sem safnstjórinn leitar svara við.
    55 min
  • Britney, grafin tónlist, óumbeðnar kvittanir og Góðan daginn faggi
    Góðan daginn faggi er einleikur þar sem fertugur söngleikjahommi, Bjarni Snæbjörnsson leikari, leitar skýringa á skyndilegu taugaáfalli sem hann fékk upp úr þurru einn blíðviðrisdag. Og já, verkið er að sjálfsögðu söngleikur.
    Ég er ekki hamingjusöm, sagði Britney Spears við dómarann í Los Angeles sem hefur sjálfræðismál hennar á sínum snærum. Skyldi engann undra. Á síðustu misserum hafa aðstæður hennar sem líkja má við vinnuþrælkun, smám saman orðið almenningi ljósar, en í vitnisburði Spears kom einnig fram að hún hafi verið svipt frjósemi sinni með hormónalykkjunni, nauðug viljug.
    Við heyrum svo í Hildi Maral sem fer fyrir plötuútgáfunni Mercury KX, sem er undirfyrirtæki Decca. Útgáfan fer óhefðbundna leið við útgáfu á nýrri plötu skoska tónlistarmannsins Erlands Coopers en eina eintak plötunnar verður grafið í jörð á Orkneyjum og látin óhreifð næstu þrjú árin, ef enginn hefur rambað á hana fyrr verður hún gefin út nákvæmlega eins og jörðin skilar henni af sér.
    En við ætlum að byrja á sannri sögu úr samtímanum. Jónas Reynir Gunnarsson, rithöfundur, flytur fyrir okkur færslu sem hann birti á samfélagsmiðlinum twitter í gær.
    55 min
  • Safnasafnið, Chaplin tvíburarnir og hugarheimur Jóhanns Jóhannsson
    Tónskáldið og kvikmyndagerðarmaðurinn Jóhann Jóhannsson lést langt fyrir aldur fram árið 2018. Indí, diskó, rafrænar hljóðtilraunir og kvikmyndatónlist, allt þetta og meira tók hann þessi fjölhæfi listamður sér fyrir hendur á meira en þriggja áratugalöndum tónlistarferli. The creative space of Jóhann Jóhannsson er umfangsmikið verkefni þar sem sköpunaraðferðum og listferli Jóhanns verða gerð skil í heimildarmynd, veglegu bókverki og gagnasafni. Orri Jónsson kemur og segir frá verkefninu og ástæðum þess að farið var af stað.
    Við rennum úr höfuðborginni norður á bóginn, inn á Safnasafnið á Svalbarðsströnd þar sem við fáum leiðsögn um nokkrar af sýningum ársins og ræðum við safnstjórann Níels Hafstein um íslenska alþýðulist.
    Og Melkorka Gunborg Briansdóttir segir okkur sérkennilega sögu bresku tvíburanna Fridu og Gretu Chaplin sem lifðu algjörlega samhæfðu lífi, klæddu sig eins og töluðu samtímis.
    55 min
  • Skrattar. tónlist fyrir kindur og N-fjórir
    Við lítum við hjá einu sjónvarpsstöð landsins með höfuðstöðvar utan höfuðborgarsvæðisins. N fjórir skilgreinir sig sem landsbyggðamiðil og dagskráin ber þess svo sannarlega merki en digurbarkaleg borgarbörn ættu að fara varlega í að kalla N fjóra ?lítin? fjölmiðil.
    Við ræðum við tónskáldið og gítarleikarann Hafdísi Bjarnadóttur um nýtt verkefni hennar og Passepartout Dúósins.En þau vinna nú að tónlist sem á að höfða til sauðkindarinnar ekki síður en mannfólksins.
    Og við tökum forskot á sæluna og rýnum í nýja plötu Skratta, plötuna Hellraiser IV sem kemur út á næstunni. Davíð Roach Gunnarsson sekkur sér í djöfullegan tónheim sveitarinnar.
    52 min
  • Daníel Laxness, Powerhouse/Spennistöð, Feminísk heimspeki
    Nú á dögunum kom út mikið og þykkt safnrit, Handbók Oxford um Feminíska heimspeki, þar sem reynt er að ná utan um ýmsar stefnur og strauma, já og spurt hvað það eiginlega er, feminísk heimspeki. Annar ritstjóranna er Ásta Kristjana Sveinsdóttir prófessor í heimspeki við ríkisháskólann í San Francisco. Ásta sest um borð í Lest dagsins.
    Við hringjum til Seyðisfjarðar og ræðum við tónlistarmanninn og plötuútgefandann Daníel Laxness, sem kallar sig Daníel Ness. Eins og nafnið gefur til kynna er Daníel barnabarnabarn nóbelsskáldsins en hann hefur alist upp og er allrajafna búsettur í London.
    Og Lestin brunar svo til Hjalteyrar þar sem sýniningin Powerhouse/Spennistöð opnar um helgina. Þar koma saman verk ólíkra listamenn sem ekki hafa mæst áður: Vídeóverk, teikningar og skúlptúrar sem tendra vélarafl umhverfisins að nýju: Þenja strengi, byggja upp spennu, umbreyta, hreyfa og keyra áfram.
    55 min
  • Katla gagnrýnd, Holy Hrafn, Icedocs og Kaktus
    Við rýnum í Kötlu, nýja sjónvarpsþætti Baltasars Kormáks og Netflix. Júlía Margrét Einarsdóttir sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar spændi í gegnum þættina átta um helgina eins og svo margir aðrir, og hún segir okkur hvað henni finnst.
    Við heimsækjum grasrótargalleríið Kaktus á Akureyri þar sem norðlenskir listamenn rækta andann.
    Og tónlistarmaðurinn Holy Hrafn sest um borð í Lestina og segir frá nýrri plötu sem hann gaf út á dögunum, S.S. Tussunæs.
    En við byrjum á heimildarmyndum. Ingibjörg Halldórsdóttir frá heimildarmyndahátíðinni Icedocs sem hefst á morgun á Akranesi, og stendur yfir fram á sunnudagskvöld, mætir og segir okkur frá því helsta á hátíðinni í ár.
    54 min
  • Vofufræði, líkamsvirðing á youtube, síðasta kvöldið í Hannesarholti
    Á laugardagskvöldið var afrísk menning allsráðandi við Grundarstíg í Reykjavík. Björk Guðmundsdótti þeytti skífum með taktföstum afrískum tónum og gambíski kokkurinn Alex Jallow galdraði fram dýrindis kvöldverð. Allt átti þetta sér stað í skugga þeirrar vitneskju að daginn eftir myndi rýmið - Hannesarholt - loka dyrum sínum.
    Melkorka Gunborg Briansdóttir fjallar um Youtube-rásina Style like you, þar sem bandarískar mæðgur með áhuga á tísku og stíl spyrja fjölbreytta viðmælendur sínar spjörunum úr, bókstaflega, en í lok situr viðmælandann varnarlaus og hálfnakinn á nærfötunum einum fata.
    Og við veltum fyrir okkur vofum með Veru Knútsdóttur sem varði fyrir helgi doktorsritgerð sína um vofulegar minningar í íslenskri menningu.
    55 min
  • Konur/menn, Vináttuvél, Skuggahverfið, A Quiet Place II, Koddahjal
    Eftir því sem tölvuleikjaiðnaðurinn hefur stækkað hafa áhrif hans orðið víðtækari, efnahagslega, menningarlega og ekki síst á persónuleg samskipti fólks. Einstaklingar spjalla, þeir kynnast, verða vinir, fella hugi saman í gegnum stafræna hliðarheima tölvuleikjanna. Tölvuleikir geta á vissan hátt virkað eins og vináttuvélar. Það er að minnsta kosti kenningin sem liggur að baki nýju netnámskeiði Háskóla Íslands sem er unnið í samstarfi við tölvuleikjaframleiðandann CCP. Annar kennara námskeiðsins, Ársæll Arnarson, heimsækir Lestina í dag og ræðir vináttuna.
    Við rýnum í tvær nýjar kvikmyndir í þætti dagsins, hryllingsmyndina A Quiet Place 2 eða Þöglavík, eins og Ásgeir H. Ingólfsson kvikmyndagagnrýnandi þýðir það, og nýja íslenska kvikmynd á ensku, Shadow Town, Skuggahverfið.
    Við gerum okkur ferð á Borgarbókasafnið í grófinni þar sem innsetningin Koddahjal - Endurhlaða eftir Sonju Kova?evi? var opnuð á dögunum. Framsetningin er einföld ; hátalarar hafa verið settir á samanbrjótanlega bedda, eins og notaðir eru sem rúm fyrir hælisleitendur og úr hátölurum heyrast síðan frásagnir flóttamanna á Íslandi.
    Í tilefni kvenréttindadagsins 19. júní veltum við fyrir okkur staðhæfingu Vigdísar Finnbogadóttur frá 1980 að þjóðin ætti ekki að kjósa hana vegna þess að hún væri kona heldur af því að hún væri maður.
    55 min
  • Súpersport!, afturfætur fíls, Að-liggja-út-af-ismi, hvíta Hollywood
    Við fáum þriðja og síðasta pistilinn frá Xinyu Zhang bókmenntafræðing í pistlaröð sem hefur yfirskriftina Formsatriði. Að þessu sinni veltir hann fyrir sér andstæðunum að standa upp og leggjast út af, og segir meðal annars frá hreyfingu og hugmyndafræði sem mætti kalla ?að-liggja-út-af-isma" en sífellt fleiri kínversk ungmenni nota þá athöfn eða athafnaleysi sem felst í að liggja út af sem andspyrnu gegn væntingum samfélagsins um virkni og velgengni.
    Melkork Gunborg Briansdóttir flytur innslag byggt á viðtölum hennar við þrjár ungar konur um stöðu kvenna í heimalöndum þeirra. Viðtalið var tekið árið 2017, en á enn vel við. Ein er frá Eistlandi, önnur frá Pakistan og sú þriðja frá Tælandi, en þar er hlutverki kvenna líkt við afturfætur fíls.
    Við höldum svo áfram að rýna í það hvernig ýmis konar annarleg sjónarmið hafa haft áhrif á framleiðslu Hollywood-kvikmynda í gegnum tíðina. Að þessu sinni fjallar Steindór Grétar Jónsson um hugmyndafræði hvitrar kynþáttahyggju og hvernig hún hefur mótað kvikmyndasöguna.
    Og við fáum til okkar hljómsveitina Súpersport sem var að gefa út fyrsta lagið af væntanlegri fyrstu breiðskífu sinni, Tveir dagar. Þau ætla að spjalla við okkur og leika lifandi tónlist hér í útvarpshúsinu, troða sér inn í hljóðver númer 9.
    52 min
  • Baltasar Kormákur: Katla og Idris Elba, Hollywood og heima
    Við hringjum til Suður Afríku og ræðum við Baltasar Kormák, kvikmyndaleikstjóra. Hann er þar staddur við tökur á kvikmyndinni Beast með Idris Elba í aðalhlutverki.
    Á sama tíma er verið að frumsýna eitthvað stærsta sjónvarpsverkefni íslandssögunnar, náttúruvísindafantasíuna Kötlu, sem Baltasar á heiðurinn af.
    Baltasar ræðir einnig um vísindi og þjóðtrú, Hollywood og íslenskan-kvikmyndaiðnað.
    55 min