Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Afrópean, rafíþróttir, ofríki Kínverja í Tíbet
    Blaðakonan Barbara Demick hefur ferðast um heiminn undanfarinn aldarfjórðung og fjallað um nokkur af lokuðustu samfélögum heims. Í nýjustu bók sinni fjallar hún um bæinn Ngaba í Tíbet sem er einn allra lokaðasti staður í Kína. Við ræddum við Barböru á bókmenntahátíð í Reykjavík í síðustu viku, um starf erlenda fréttaritarans, um ofríki kínverja í Tíbet, og hvað gæti gerst eftir að andlegur leiðtogi Tíbeta, hinn áttræði Dalai Lama, fellur frá.
    Í október fer eitt stærsta rafíþróttamót heims fram í laugardagshöll þar sem stjörnur í heimi tölvuleiksins League of Legends takast á. Mótið er stærðarinnar skrautfjöður í hatt Rafíþróttasamtaka íslands sem einblína þó ekki á peningana, heldur setja heilsu og velferð ungs fólks í miðið í sinni vinnu.
    Og Steindór Grétar Jónsson flytur okkur pistil um bókina Afropean: Notes from Black Europe eftir Johny Pitts. Pitts þessi nýtir þetta hugtak, afrópean eða afrópskur, til að lýsa sjálfum sér og öðrum svörtum evrópumönnum í bókinni sem er allt í senn ferðabók og djúpköfun hvað það þýðir að vera svartur í Evrópu.
    55 min
  • Æði, Slay, Living
    Tveir meðlima þríeykisins úr sjónvarpsþáttunum Æði, þeir Brynjar Steinn Gylfason, betur þekktur sem Binni Glee, og Patrekur Jamie taka sér far með Lestinni.
    Þeir spjalla um lífið sem raunveruleikastjörnur, slangurskotið tungutak sitt og pólitík.
    55 min
  • Laxveiðiljósmyndir, bíó og R. Kelly
    Nú standa yfir réttarhöld í New York yfir manni sem kallar sig ?the Pied Piper of RnB?. Nafngiftin er óþægileg, í ljósi þeirra ásakana sem R.Kelly situr undir, óþægilega viðeigandi.
    Ásgeir H. Ingólfsson sendir okkur seinni pistil sinn um kvikmyndahátíðina í Karlovy Vary í Tékklandi, en hátíðin er ein sú virtasta sem fer fram ár hvert. Hann segir okkur frá þremur myndum, hina frönsku Les Olympiades, dönsku Verdens Verste Menneske og finnsku Klefa númer 6.
    Laxveiðiljósmyndin er orðin að þekktu minni í sjónrænni menningu íslensks samtíma. Íslenskri karlmenn hafa verið duglegir að nota þessar myndir á samfélagsmiðlum og ekki síst á stefnómótaforritinu Tinder, kannski til að sýna að þeir séu ævintýragjarnir útivistarmenn, eða kannski til að séu raunverulegir karlmenn, geti fært björg í bú. Við ræðum við myndlistarkonuna Rakel McMahon sem rannsakar karlmennsku og laxveiðiljósmyndir í sýningu sem opnar um helgina.
    55 min
  • Gróa, vinabæir, bíræfni bókaþjófurinn snýr aftur
    Í febrúar greindum við frá því að bíræfinn bókaþjófur herjaði á íslenska rithöfunda, og raunar rithöfunda um allan heim, og rændi frá þeim óútgefnum handritum. Nú hefur þrjóturinn látið aftur til skarar skríða hér á landi. Fríða Ísberg segir okkur sögu sína auk þess sem við köfum dýpra í blekkingarheim bókaþjófsins með hjálp blaðamanna New Yorker tímaritsins.
    Magnús Thorlacius notaði sumarið í að rannsaka sjálfsmynd Kópavogs. Hann skoðaði atburði í sögu bæjarfélagsins og kennileiti þess út frá óvæntum sjónarhornum og hann segir frá niðurstöðum sínum í pistlaröð hér í lestinni í haust. Í síðustu viku fjallaði hann um hinn svokallaða Skítalæk og í dag fjallar hann um vinabæi Kópavogs.
    Og hljómsveitin Gróa heimsækir okkur undir lok þáttar, en tríóið gaf nýlega út sína þriðju plötu, What I like to do. Karólína, Hrafnhildur og Fríða setjast um borð í Lestina og ræða plötuna, tónlistarmyndbönd, post-dreifingu, Berlín og lagasmíðar á tímum samkomutakmarkana.
    55 min
  • Týndar minningar, Aaliyah og löggiltur elskhugi (CLB)
    Certified Lover Boy nefnist sjötta breiðskífa rapparans Drake sem kom út nú á föstudag. Drake er kanadamaður af gyðingaættum og hóf ferilinn sem barnastjarna í sjónvarpi en hefur tekist að verða vinsælasti rapptónlistarmaður samtímans. Við spjöllum um Drake, nýju plötuna og ríginn við Kanye West við Bergþór Másson, skoðanabróður og rappspekúlant.
    Í ágúst voru 20 ár síðan þá upprennandi óskastjarna RnB tónlistarinnar, Aaliyah, fórst ásamt átta öðrum í flugslysi á Bahama eyjum, aðeins 22 ára gömul. Síðustu vikur hefur dánarbú hennar gefið út eldri tónlist á streymisveitum og tilkynnt um nýja plötu með óútgefinni tónlist, meðal annars í von um að hrifsa minningu hennar úr fangi harmleiksins. En á sama tíma eiga sér stað réttarhöld sem rífa upp önnur, eldri sár.
    Við minnumst söngkonunnar Aaliyuh í Lestinni í dag.
    Gamlar perlur kvikmyndasögunnar og stórmerkilegt menningarefni leynist oft á netinu þó fólk hafi talið það týnt og tröllum gefið. Þórður Ingi Jónsson skyggnist um á háalofti netheima í leit að fjársjóðum.
    55 min
  • Írönsk menning, eldað með Paris, Airwaves frestað
    Við kynnum okkur hvað er að gerast í íranskri samtímamenningu. Kjartan Orri Þórsson segir okkur frá írönskum sjónvarpsþáttum, bókum og tónlist
    Við rýnum í nýja raunveruleikaþætti þar sem hótelerfinginn Paris Hilton sýnir matreiðsluhæfileika sína, Júlía Margrét er búin að horfa á Cooking with Paris
    Og við fáum sorgarfréttir úr tónleikalífinu, Iceland Airwaves hefur verið frestað (AFTUR!). Við spjöllum við Ísleif Þórhallsson, framkvæmdastjóra Senu Live.
    53 min
  • Dýrið, Drífa Líftóra, Skítalækurinn og sótthreinsaðir Sex Pistols
    Við förum í skoðanaferð um vinnustofu fata-og textílhönnuðarinns Drífu Líftóru. Hún sýnir okkur græjurnar sínar og fatalínuna sem hún sérsaumar eftir pöntunum í mynstri sem hún þrykkir sjálf, en þar sækir hún innblástur í eigin myrkfælni og, af einhverjum ástæðum, kvikmyndina Hellraiser.
    Við förum til Tékklands, á kvikmyndahátíðina Karlovy Vary þar sem Ásgeir H Ingólfsson sá íslensku kvikmyndina Dýrið og nýjustu mynd ísraelska leikstjórans Nadav Lapid, hnéskeljar Ahed.
    Magnús Thorlacius eyddi sumrinu í að rannsaka sjálfsmynd Kópavogs. Hann skoðaði atburði í sögu bæjarfélagsins og kennileiti þess út frá óvæntum sjónarhornum og ætlar að setja niðurstöður sínar í samhengi fyrir okkur í pistlaröð á næstu vikum. Magnús byrjar á að velta sér upp úr skítalæknum.
    Og nýir sjónvarpsþættir um pönksveitina Sex Pistols bera á góma.
    55 min
  • Kanye, klósettmenning og konan sem þrífur
    Það er alltaf stórviðburður í poppheiminum þegar ný plata kemur frá rapparanum Kanye West, enda er hann einhver skærasta og útreiknanlegasta stjarnan í dægurtónlist samtímans. Tvö ár eru frá síðustu plötu hans Jesus is King, en Kanye hefur ekki setið auðum höndum því á sunnudag kom út 27 laga platan Donda. Davíð Roach Gunnarsson sökkvir sér ofan í Dondu.
    Við pælum í mannaskít og klósettmenningu í Lestinni í dag. Ferðumst frá fyrstu salernum Mesópótamíu og yfir í gömlu almenningsklósettin í Bankastræti Núll þar sem Hannes Agnarson Johnson sýndi um helgina ljósmyndir sem hann hefur tekið af hundruðum klósetta undanfarinn áratug.
    Og við veltum fyrir okkur 40 ára gömlu ljóði sem á af einhverjum ástæðum óþægilega vel við enn í dag.
    58 min
  • Má ég sparka?
    Lestin snýr aftur úr sumarfríi og veður beint í boltann. Þáttur dagsins er tileinkaður fótbolta, þeirri fögru íþrótt, en þó alls ekki íþróttinni sjálfri heldur því sem gengur á hjá fólkinu allt í kringum hana, menningu og ómenningu íslensku fótboltahreyfingarinnar.
    Tómas Þór Þórðarson, ritstjóri Enska boltans í Sjónvarpi Símans, Sævar Pétursson framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags Akureyrar, KA, og stjórnarmeðlimur í Íslenskum toppfótbolta, ÍTF, og Halla Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri ASÍ sem bauð sig fram til formanns KSÍ árið 2007 setjast með okkur í hljóðstofu og kryfja stöðuna sem upp er komin í efstu röðum Knattspyrnusambands Íslands.
    55 min
  • Fótbolti og fórnarkostnaður, kínverski kommúnistaflokkurinn, þreyta
    Þetta er seinasti þáttur Lestarinnar fyrir sumarfrí og, við erum svolítið þreytt. Ekki á ykkur, elsku hlustendur, bara á því að sitja við skrifborðið og á öllu þessu erfiða sem er í fréttum og við reynum að fjalla um og okkur finnst við eiga að fjalla um og trúum því ekki að við þurfum ennþá að fjalla um... svo í dag tölum við við Nönnu Hlín Halldórsdóttur, doktor í heimspeki og nýbakaða móður sem rannsakar þreytu, bæði í vinnunni og einkalífinu, sem nýbökuð móðir.
    Mikil hátíðarhöld hafa farið fram í alþýðulýðveldinu Kína í dag, því er fagnað að fyrir nákvæmlega öld var kommúnistaflokkur landsins stofnaður í Sjanghæ. Á hundrað árum hefur fámennur hópur róttæklinga orðið að einhverjum valdamesta afli á jörðinni. Við kynnum okkur kínverska kommúnistaflokkinn og heyrum um viðhorf kínverja til hans.
    Ingólfur Eiríksson flytur okkur sitt sjötta bréf til Birnu. Meðal þess sem ber á góma eru starfsumsóknir, samkennd og evrópumeistaramót í fótbolta - en eins og álfan sat Ingólfur í losti ásamt föður sínum fyrir framan sjónvarpið þegar danski knattspyrnumaðurinn Christian Eriksen hneig niður.
    55 min