Samkaup hlutu í vikunni menntaverðlaun atvinnulífsins 2022, en verðlaunin voru afhent á Menntadegi atvinnulífsins í Hörpu. Samkaup fóru af stað í jafnréttisátak síðasta haust, Jafnrétti fyrir alla ? Samkaup alla leið, í samvinnu við Samtökin ?78, Þroskahjálp og Mirru, rannsókna- og fræðslusetur fyrir erlent starfsfólk, um margvíslega fræðslu fyrir starfsfólk. Fyrir átakið hlutu Samkaup í lok síðasta árs tvenn hvatningarverðlaun jafnréttis sem Samtök atvinnulífsins og Háskóli Íslands standa að, annars vegar í flokki fjölmenningar og hins vegar í flokki fötlunar. Þá hafa Samkaup verið tilnefnd til Blaze Inclusion Awards, sem eru norræn jafnréttisverðlaun veitt af norsku samtökunum Diversify. Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Samkaupa, kom í þáttinn og sagði frá.
Hér á landi hefur starfað félag áhugafólks um dulspeki í meira en 100 ár. Það hét áður Guðspekifélagið, en skipti um nafn 2018 og kallast nú Lífspekifélagið. Íslandsdeild félagsins var formlega stofnuð í ágúst 1921 en fyrir þann tíma voru starfandi nokkrar stúkur á landinu. Haraldur Erlendsson geðlæknir hefur komið víða við og meðal annars verið viðriðinn þetta félag lengi, en langömmur hans tvær voru meðal stofnenda. Þór Fjalar Hallgrímsson, starfsnemi hér á Rás 1, tók á honum hús og fékk hann til að segja aðeins frá sjálfum sér og félaginu.
Svo var það lesandi vikunnar. Í þetta sinn var það Kolbrún Anna Björnsdóttir. Hún er ein þriggja höfunda sjónvarpsþáttanna Vitjanir, sem eru sýndir á sunnudagskvöldum hér á RÚV, auk þess að leika hlutverk Hönnu í þáttunum. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina.
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON