Með lífið í lúkunum

Með lífið í lúkunum

Download on the App Store

Með lífið í lúkunum episodes

  • 54. Hvað geymir líkaminn þinn? (Þungamálmar, heildræn tannlæknastofa og munurinn á lífinu í USA og á Íslandi). Sigríður Friðriksdóttir

    Í þættinum ræðir Erla við Sigríði Friðriksdóttur eða Siggu eins og hún er alltaf kölluð. Sigga er hjúkrunarfræðingur, búsett í Bandaríkjunum og starfar á heildrænni tannlæknastofu. Þar er hún með heilsu- og næringarþjálfun auk þess að gera alls konar mælingar á skjólstæðingum sínum, t.d. að taka og greina blóðprufur, skanna fyrir þungamálmum í líkamanum og fleira. 

    Sigga bendir á að góð munnheilsa/tannheilsa skiptir miklu máli fyrir alhliða heilsu og getur meira að segja minnkað líkur á hjarta og æðasjúkdómum.

    Hún segir okkur einnig frá því hvernig líf í Bandaríkjunum er frábrugðið lífinu á Íslandi og kemur með mörg góð ráð til að bæta heilsu okkar bæði með mataræði og lífsstíl. 

    Ég minni á gjafaleikinn á Instagram þar sem þú getur unnið glæsilegan gjafapakka frá Heilsuhillunni og Heilsumarkþjálfun hjá mér. Vítamínin sem Sigga mælir með að taka fást öll í heilsuhillum Nettó.

    Við Sigga kíktum svo auðvitað á Spíruna þegar hún var hérna á klakanum og hún var yfir sig hrifin að geta fengið svona góðan og næringarríkan mat á góðu verði í dásamlegu umhverfi.  

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    1 hr 14 min
  • 53. Þú vaknar ekki bara einn daginn með sykursýki 2. (Heilsulæsi, forvarnir, efnaskipti, insúlínviðnám og tískubylgjur í mataræði.) Lukka Pálsdóttir og Sigurður Örn Ragnarsson

    Hlaðvarpið er unnið í samstarfi við:
    Nettó - netto.is
    Spíruna - spiran.is
    Heilsuhilluna - heilsuhillan.is 


    Í þættinum ræðir Erla við Lukku Pálsdóttur og Sigurð Örn Ragnarsson hjá Greenfit um heilsulæsi, forvarnir, ákjósanlegt matar- og hreyfiumhverfi, efnaskipti, insúlínviðnám, tískubylgjur í vinsældum orkuefna, þ.e. fitu, kolvetna og próteina og hvernig við hámörkum heilsu okkar.

    Þau ræða einnig um hvaða hindranir standi í vegi fyrir því að bæta lýðheilsu þjóðarinnar og hvernig við og samfélagið virðumst bara setja ,,plástra" á flest vandamál. 

    Sykursýki er samfélagslegt mein. Þú vaknar ekki bara einn daginn með sykursýki, þetta gerist yfir langan tíma, oft áratugi og unga fólkið okkar er í mun meiri áhættu á sykursýki 2 en eldri kynslóðir.

    Við erum búin að normalísera óheilbrigða lifnaðarhætti og þurfum öll í samfélaginu að taka höndum saman og breyta þessu.

    Lukka segir t.d. að það ætti að vera fæðingarréttur hvers barns að það fái holla og góða fæðu þangað til að það hefur vit og aldur til að taka ákvarðanir sjálft. 

    Lukka og Siggi starfa hjá Greenfit og markmið Greenfit er að bæta og efla heilsu fólks, auka lífsgæði, auka heilsulæsi og hjálpa einstaklingum að fá aðgengi að upplýsingum sem að þeirra mati eru lykilatriði til þess að valdefla fólk þannig að það geti tekið ábyrgð á heilsunni sinni. 

    Lukka hefur áratuga reynslu af að hjálpa fólki að bæta heilsu með mataræði og hreyfingu. Hún hefur starfað í 30 ár við þjálfun og ráðgjöf og hefur skrifað 3 bækur um tengsl næringar og heilbrigðis. 

    Siggi hefur yfirumsjón með efnaskipta- og álagsmælingum Greenfit. Hann sér einnig um úthaldsþjálfun og ráðgjöf ásamt því að semja fræðsluefni og halda fyrirlestra. 

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    1 hr 38 min
  • 52. Kvenlíkaminn er algjör töffari. (Ofspenna í grindarbotni, kynlíf, breytingarskeið kvenna, þvagleki, legsig og endómetríósa.) Þorgerður Sigurðardóttir

    Þátturinn er í boði Nettó og Unbroken

    Í þættinum ræðir Erla við Þorgerði Sigurðardóttur, kvenheilsusjúkraþjálfara um ýmis málefni sem tengjast heilsu kvenna og hafa áhrif á lífsgæði þeirra, t.d. þvagleka, legsig, endaþarmssig, blöðrusig, ofspennu í grindarbotni og endómetríósu. Þær ræða einnig um áhrif meðgöngu og fæðingar á kvenlíkamann, mæðravernd eftir fæðingu, íþróttakonur, mikilvægi grindarbotnsæfinga og hvernig er best að framkvæma þær, kynlíf, breytingarskeið kvenna, mikilvægi slökunar og öndunar og margt fleira.  

    Þorgerður er einn fremsti sérfræðingur landsins á sviði kvensjúkdóma- og fæðingarsjúkraþjálfunar og hefur starfað í kvenheilsu í 30 ár. Hún starfar á flestum sviðum kvenheilsusjúkraþjálfunar og býður einnig upp á mæðravernd eftir fæðingu en það er nátengt mastersrannsókn og doktorsrannsóknum hennar.

    Þorgerður segir að það sé mikivægt að líta á manneskjuna sem heild því sjaldan standa mál ein og sér, verkir geta t.d. verið tengdir áfallasögu eða andlegum veikindum. 

    Þorgerður segir að margar konur haldi að þær séu einar í heiminum að glíma við eitthvert vandamál og hafa jafnvel átt þrautargöngu í heilbrigðiskerfinu. Þá segir hún að það sé mikilvægast af öllu að það sé hlustað á konur og að þær viti að það er víða til hjálp. Í flestum tilvikum er hægt að bæta heilsu, líðan og lífsgæði.  

    Áhugasamir geta fundið upplýsingar á heimasíðu Þorgerðar og einnig á Instagram og Facebook 

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    1 hr 5 min
  • 51. Ungbarnasund, þjófstart inn í framtíðina? (Tengslamyndun, jafnvægi, samhæfing, þroski, söngur og gleði og heilsufarslegur ávinningur.) Snorri Magnússon

    Þátturinn er í boði Nettó og Unbroken

    Í þættinum ræðir Erla við Snorra Magnússon, þroskaþjálfa, íþróttakennara og ungbarnasundkennara um gagnsemi ungbarnasunds, tengslamyndun, jafnvægi, samhæfingu, þroska, söng og gleði og heilsufarslegan ávinningar af ungbarnasundi. Undir lokin ræða þau einnig um almenna heilsu og mikilvægi þess að njóta lífsins og vinna sig ekki í kaf.

    Snorri er að eigin sögn karl sem kominn er á sjötugs aldur og er fæddur á Skaganum. Hann lærði að synda þegar hann var 9 ára og hefur verið kenndur við sundlaug síðan. Hann hefur bæði þjálfað, kennt og æft sund, er frumkvöðull í ungbarnasundi og hefur kennt það í 34 ár. Hann byrjaði með tvíburana sína og svo hefur þetta heldur betur undið upp á sig.

    Aðalmarkmið með ungbarnasundi er ekki köfun eins og margir halda heldur er það tengslamyndun foreldra og barns, aðlögun að vatni, jafnvægi, eftirtekt og athygli, samhæfing augna og handa og hljóðfall, söngur og gleði.

    Fyrstu 2-3 æviárin eru líklega þau mikilvægustu í þróun barns, bæði varðandi tengslamyndun og hreyfiþörf.  Foreldrar þurfa að búa til þannig umhverfi að börn fái útrás fyrir hreyfiþörf sína. Sundlaug er kjörinn vettvangur til þess að hjálpa börnum að þroskast, hvort sem það er líkamlega, andlega eða félagslega þar sem að umhverfið er örvandi og ögrandi en um leið öruggt. 
     
    Snorri ítrekar hversu mikilvæg tengslamyndun er í þróun barnsins og hún á sér fyrst og fremst stað í gegnum snertingu en einnig með augnsambandi og tali. Ef illa tekst til með tengslamyndun þá getur það haft áhrif á okkur á fullorðins árum. 


    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    1 hr 2 min
  • 50. Sá einhverfi og við hin. (Foreldrahlutverkið, að þiggja aðstoð, mikilvægi húmors og hið eilífa samviskubit.) Jóna Á. Gísladóttir

    Þátturinn er í boði Nettó og Unbroken

    Í þættinum ræðir Erla við Jónu Á. Gísladóttur rithöfund, markþjálfa og móður um foreldrahlutverkið, einhverfu, mikilvægi þess að foreldrar barna með sérþarfir gleymi ekki að sinna sjálfum sér og sambandinu og muni eftir því að huga að líkamlegri og andlegri vellíðan og séu óhrædd við að þiggja aðstoð. Þá ræða þær einnig um andlega heilsu, mikilvægi húmors, hvernig  það er mikið auðveldara að gefa öðrum ráð heldur en að fara eftir þeim sjálfur,  hið eilífa samviskubit og það að vera ekki nóg.

    Jóna er að eigin sögn miðaldra húsmóðir í úthverfi sem elskar að sitja og hekla og hlusta á skemmtilegar hljóðbækur eða hlaðvörp og er einnig  forfallinn golfari. Hún segist enn vera að ákveða hvað hún ætli að verða þegar hún verður stór en hana langaði alltaf að verða rithöfundur og dýralæknir.

    Jóna var einn vinsælasti bloggari landsins þegar ,,bloggið" var upp á sitt besta. Hún skrifaði þá einlægar og skemmtilegar bloggfærslu um fjölskyldulífið og tilveruna og meðal annars um það hvernig það er að ala upp dreng með einhverfu. Hún skrifar enn af og til pistla á Facebook og er með eindæmum fyndin og hreinskilin og alltaf með húmorinn að vopni.

    Ég hvet alla sem ekki hafa lesið eða hlustað á bókina hennar, Sá einhverfi og við hin, að gera það sem allra fyrst. Bókin snertir hjartað. Ótrúlega hreinskilin og einlæg skrif og Jóna nefnir svo margt sem aðrir þora ekki að segja upphátt en líklegast flestir hugsa. Hún er einstaklega lunkin við að koma tilfinningum í orð og þessi bók er einfaldlega dásamleg hlustun, bæði hlátur og grátur.

    Ég get svo glatt ykkur hlustendur hlaðvarpsins með því að Jóna segist vera með fullt af hugmyndum í kollinum og stefnir á að gefa út eitthvað á ritvellinum t.d. á storytel og ýtir því vonandi úr vör sem fyrst. 

    p.s. Ég biðst velvirðingar á smá hnökrum í hljóðinu.

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    1 hr 18 min
  • 49. Nærðu þig fallega. (Vinnusemi, mikilvægi hreyfingar, lesblinda, andvana fæðing, gallstasi og sorg.) Anna Marta Ásgeirsdóttir

    Í þættinum ræðir Erla við Önnu Mörtu Ásgeirsdóttur frumkvöðul, eiginkonu, móður og stjúpmóður um mótbyr og meðbyr í lífinu, vinnusemi, lesblindu, mikilvægi hreyfingar, hvernig á að næra sig fallega, andvana fæðingar vegna gallstasa, sorgina sem fylgdi og mikilvægi þess að hugsa um heilsuna.

    Anna Marta segir okkur fallegu söguna af því hvernig hún og Ingólfur maður hennar komu af stað góðgerðarverkefninu Ísbirninum Hring, fígúru sem léttir lund veikra barna og hefur glatt ófá hjörtu. En Hringur er lukkudýr Barnaspítala Hringsins sem kemur fram og hefur ofan af fyrir börnunum á spítalanum, skemmtir þeim og fræðir.

    Anna Marta er matarþjálfari og stofnandi fyrirtækisins Anna Marta sem hún rekur ásamt tvíburasystur sinni Lovísu. Bakgrunnur hennar er í líkamsrækt og heilsuþjálfun en hún hefur starfað sem þjálfari í áratugi ásamt því að vera menntaður þjónn. Hún hefur því alltaf unnið með fólki og hefur brennandi ástríðu fyrir því að bæta núvitund í matarmenningu og hreyfingu.

    Þó að lífið leiki við Önnu Mörtu þessa dagana þá upplifði hún mikinn mótbyr þegar hún fæddi dóttur sína Sól andvana eftir fulla meðgöngu árið 2008. Það kom síðar í ljós að Anna Marta var með gallstasa sem olli því að dóttir hennar lést. Eftir þessa lífsreynslu hefur hún gert það sem hún getur til þess að vekja umtal um þennan sjúkdóm því að það er hægt að koma í veg fyrir andvana fæðingu vegna sjúkdómsins. Hún vill ekki að neinn þurfi að upplifa það sama og hún og hvetur konur til þess að hlusta á innsæi sitt og líðan sína.

    Anna Marta er mjög orkumikil kona og segist alveg stundum vera til í að gefa eitthvað af þessari miklu orku. Hún segir þær systur vera mjög þjónustuglaðar og þó þær kunni að segja nei þá séu þær ekkert rosa glaðar að nota það. Hún segist ekki vera markmiðadrifin heldur lifi hún frekar eftir gildunum að blómstra í lífinu og að fylla á viskubrunninn sinn og deila úr honum sem hún gerir svo sannarlega í þessu spjalli.


    Þátturinn er í boði Nettó og Unbroken

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    1 hr 25 min
  • 48. Streita og heilsa. Hvað er til ráða? (Kvíði, þunglyndi, kulnun, mikilvægi hvíldar, kyrring hugans, áhrif vímuefna, adhd, mildi og mikilvægi félagslegrar heilsu). Dr. Ólafur Þór Ævarsson

    Í þættinum ræðir Erla við Dr. Ólaf Þór Ævarsson geðlækni og heilsuáhrifavald um streitu, kvíða, þunglyndi, kulnun, mikilvægi hvíldar, kyrringu hugans, áhrif vímuefna, adhd, mildi, mikilvægi félagslegrar heilsu og hvernig við getum safnað streituráðum.

    Ólafur Þór hefur lengi starfað að lækningum og kennslu, veitt ráðgjöf um heilbrigðismál og beitt sér fyrir fræðslu og forvörnum. Hann hefur haft sérstakan áhuga á mikilvægi góðrar geðheilsu og geðheilsueflingu, svo og áhrifum streitu og kulnunar á líf og heilsu. Hann stofnaði Streituskólann árið 2002 og starfar sem geðlæknir og ráðgjafi í fjölfaglegu teymi Streituskólans og Heilsuverndar.

    Ólafur Þór telur forvarnastarf gegn streitu og kulnun vera góða leið til að bæta samskipti og efla geðheilsu. Hann telur hvíld afra mikilvæga og það að geta búið til eitthvað í lífstílnum sem hjálpar manni að hvílast yfir daginn.

    Þátturinn er í boði Nettó og Unbroken. 
    Unbroken fæst einmitt í heilsuhillum Nettó. 

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    1 hr 12 min
  • 47. Histamín óþol og heilsa. (Birtingamyndir, áhrif myglu, streitu og lífsstíls og hlutverk þarmaflórunnar). Katrín Sigurðardóttir

    Í þættinum ræðir Erla við Katrínu Sigurðardóttur hjúkrunarfræðing og heilsumarkþjálfa um Histamín óþol og hvernig við getum haft áhrif á það með mataræði okkar og lífsstíl. Farið er yfir helstu birtingamyndir óþolsins, hlutverk þarmaflórunnar, áhrif myglu, áhrif streitu og hvað er tl ráða. 

    Katrín með Master í heilbrigðisvísindum og "Board certified Health and Wellness Coach" og aðstoðar fólk með margvísleg vandamál að bæta heilsu sína. Hún er að eigin sögn miðaldra hjúkrunarfræðingur úr Kópavoginum sem strarfar nú í draumastarfi sínu á heilsugæslunni í efra Breiðholti við lífstílsmóttöku og sykursýkiseftirliti. Hún sinnir einnig Heilsumarkþjálfun í gegnum síðuna sína Heilsuvarðan.is.

    Hefur þú einhvern tíman verið með alls konar einkenni en ekki fengið svör við því hvað er að angra þig eða ekki fundið rót vandans? Þá gæti mögulega kveiknað á einhverjum ,,ljósaperum" við hlustun þessa þáttar. 

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    1 hr 6 min
  • 46. Hættu aldrei að láta þig dreyma. (Heilsa, húmor, hreyfing, sjálfsmynd, andleg heilsa og heimsókn í SOS Barnaþorp). Eva Ruza Miljevic

    Í þættinum spjallar Erla við Evu Ruzu skemmtikraft, útvarpskonu, velgjörðasendiherra SOS með meiru um heilsu, húmor, hreyfingu, heimsókn í SOS-barnaþorp, áhugann á fræga fólkinu í Hollywood, draumastarfið, sjálfsmynd og mikilvægi þess að sinna andlegu heilsunni.

    Það er ekki að undra að Eva Ruza sé einn vinsælasti skemmtikraftur landsins því hún á afar auðvelt með að létta lund landans. Hún tekur sjálfri sér ekki of hátíðlega og það er alltaf stutt í húmorinn. Þó að hún elski að hafa sig til þá segir hún að það sé alltaf mjög stutt í króatísku sveitakonuna. 

    Eva Ruza segist fyrst og fremst vera mamma og eiginkona, hún er mikil fjölskyldukona og segir fjölskylduna vera númer 1, 2 og 10. Hún er búin að vera með Sigga sínum í 24 ár og saman eiga þau 15 ára tvíbura.

    Eva er með útvarpsþátttinn Bráðavaktina á K100 með Hjálmari vini sínum og þeir sem þekkja til vita að það er aldrei lognmolla í kringum þau tvö. Hún segir húmor vera besta meðalið við andlegri og líkamlegri heilsu og að það sé engin víma betri en að hlæja eða vera í galsa. Hún segir að við megum aldrei missa húmorinn úr lífi okkar, hann er svo smitandi.

    Eva hugsar vel um heilsuna og byrjar alla daga á því að hreyfa sig, annað hvort á Boot camp æfingu, nokkrum ferðum í Himnastiganum í Kópavogi eða fer út að hlaupa.  Hún segist alltaf mæta á æfingu sama hversu þreytt hún sé, bæði fyrir félagsskapinn og fyrir sálina. Hún hefur líka alltaf hugsað vel um mataræðiði og hefur alveg frá unglingsaldri verið meðvituð um að líkaminn þyrfti gott ,,bensín". 

    Eva segir að þrátt fyrir að það sem allir haldi sé hún rólegasta manneskja sem þú getur fundið, mjög heimakær en þó hvatvís með sumt og vill oft að hlutirnir gerist núna!

    Hún er með fallega sýn á lífið, er þakklát og segist vera að lifa drauminn sinn. Hún hvetur líka alla hlustendur til þess að hætta aldrei að láta sig dreyma!

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    1 hr 16 min
  • 45. MS-sjúkdómurinn og heilsa. (Einkenni, greining, úrræði, lyf og áhrif lífsstíls á framgang sjúkdómsins). Hjördís Ýrr Skúladóttir

    Í þættinum ræðir Erla við Hjördísi Ýrr Skúladóttur, formann MS félags Íslands um MS-sjúkdóminn,  fjölbreytt einkenni hans, greiningu, úrræði, tegundir lyfja og hvernig heilbrigður lífstíll getur haft áhrif á framgang sjúkdómsins og einkenni hans. 

    MS-sjúkdómurinn er oft nefndur sjúkdómurinn með 1000 andlit þar sem að einkenni hans eru mjög fjölbreytt og óútreiknanleg. MS er langvinnur bólgusjúkdómur í miðtaugakerfinu, þ.e. heila og mænu, þar sem ónæmiskerfið ræðst á mýelín, efnið sem myndar slíður utan um taugasíma (taugaþræði) og ræður hraða og virkni taugaboða. Hægt er að lesa nánar um sjúkdóminn á heimasíðu MS- félagsins. 

    Sjúkdómurinn getur verið lífstílstengdur og það er mikilvægt að huga vel að almennri heilsu. Einkenni geta t.d. látið á sér kræla þegar stressið fer að banka upp á.

    Hjördís segir að þeir sem eru með sjúkdóminn geti bætt lífsgæði sín með því að velja í  hvað þeir nýta orkuna sína, hafa jafnvægi í mataræði, hreyfingu og svefni og þora að lyfta þungu og reyna á sig.

    Hjördís greindist sjálf með MS árið 2015 og finnst sjúkdómurinn ekki mjög hamlandi fyrir sitt líf. Það er sjaldan lognmolla í kringum Hjördísi og þó að hún upplifi sig með minni orku en áður þá segist hún þó gera meira en margir sem eru ekki með MS.

    Sjúkdómurinn gaf henni aðra innsýn inn í lífið og það er hennar von að hún geti verið falleg fyrrimynd fyrir einhverja og látið gott af sér leiða. Heilsa fyrir Hjördísi er að finna innri frið og finna sína gleði. Jafnvægi er sterkasta orðið sem hún finnur fyrir heilsu, þ.e. að gera ekki of og ekki van.

    MS-félagið  er hagsmunafélag einstaklinga með MS, stofnað 20. september 1968. Félagið hvetur einstaklinga með MS-sjúkdóminn, aðstandendur og aðra áhugasama til að skrá sig í félagið og njóta þannig góðs af því sem félagið hefur upp á að bjóða. Maí er einmitt vitundarvakningarmánuður hjá MS félaginu og þemað í ár er Mitt MS - mín greining. Alþjóðadagur MS er 30.maí en vorhátíð verður síðasta miðvikudag í maí.

    Hjördís segir það verða spennandi að sjá hvað framtíðin beri í skauti sér og draumur hennar er að það verði til lækning eða bólusetning við MS.

    MS félagið á Instagram


    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    1 hr 16 min

About Með lífið í lúkunum

From the publisher's feed

Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð…

More shows like Með lífið í lúkunum

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Heilsuvarpid by Ragga Nagli

Heilsuvarpid

10 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Í alvöru talað! by Gulla og Lydía

Í alvöru talað!

1 Listeners

UltraForm Hlaðvarp by Sigurjón Sturluson

UltraForm Hlaðvarp

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Auðnast by Ghost Network®

Auðnast

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms by heilsuhladvarp

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

4 Listeners