1. Desember 2020
Við Rauða borðið í kvöld ræðum við um fullveldi og samfélag. Fullveldi hverra varð til 1. desember 1918? Erum við að fagna fullveldi valdastéttarinnar og þeirra sem fljóta ofan á eða er fullveldið eitthvað sem ætti að ná til allra landsmanna; líka hinna smáðu, fátæku, jaðarsettu og útilokuðu? Þegar við horfum aftur þessi 102 ár; er það svo að fullveldi okkar hafi verið gott og öllum til blessunar?
Til að ræða þetta koma að Rauða borðinu:
Loubna Anbari, háskólanemi og innflytjandi af annarri kynslóð;
Íris Ellenberger, lektor við menntavísindasvið sem rannsakað hefur stöðu hinsegin fólks í samfélaginu;
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalagsins;
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR og
Þorleifur Friðriksson sagnfræðingur sem rannsakað hefur verkalýðssögu og stöðu hinna fátæku og valdalausu á fullveldistímanum.