Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Synir Egils 17. ágúst - Friðarviðræður, pólitíkin, innflytjendur, glæpir og rasismi
    Sunnudagurinn 17. ágúst
    Synir Egils: Friðarviðræður, pólitíkin, innflytjendur, glæpir og rasismi
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma fyrst þau Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB, Sirrý Hallgrímsdóttir verkefnastjóri og Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri og fara yfir fréttir af stríð og friði, stöðu samfélags og heims. Síðan mun Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur, Nichole Leigh Mosty doktorsnemi og Snorri Másson þingmaður koma að borðinu og ræða innflytjendamál og glæpatíðni og rasisma sem oft tengist umræðu um þau mál. Í lokin fara þeir bræður yfir stöðuna í pólitíkinni með sínu nefi.
    2 hr 26 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Snærós Sindradóttir
    Laugardagur 16. ágúst
    Helgi-spjall: Snærós Sindradóttir
    Snærós Sindradóttir, listfræðingur og fjölmiðlakona ræðir við Maríu Lilju um lífið og tilveruna, pólitík, VG, menningarverðmæti, erfitt fólk, sjálfið, stíl og elegans, vinalegt hægrafólk og hefnd nördanna í skemmtilegu og einlægu samtali.
    1 hr 11 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 33
    Föstudagur 15. ágúst
    Vikuskammtur: Vika 33
    Í vikuskammt föstudaginn 15. ágúst mæta til Maríu Lilju þau Askur Hrafn Hannesson, aðgerðarsinni, Helga Ögmundar, mannfræðingur, María Pétursdóttir, myndlistarkona og Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata. Þau fara yfir fréttir vikunnar sem voru meðal annars fundur Trump og Pútín, Gaza, Lax, plastmengun, biluð tæki á landspítala, bílastæði, ljósmyndir á Facebook, veggjalús, menning og allskonar fleira.
    1 hr 11 min
  • Rauða borðið 14. ágúst - Málfrelsi, Alaska, ESB & eldislax, heilbrigðiskerfið og drykkja ungmenna
    Fimmtudagur 14. ágúst
    Málfrelsi & þjóðarmorð, Alaskafundur, ESB & eldislax, heilbrigðiskerfið og drykkja ungmenna
    Ingólfur Gíslason lektor við menntavísindasvið mótmælti fyrirlestri ísraelsk prófessors í Þjóðminjasafninu og hefur verið gagnrýndur fyrir það bæði úr háskólasamfélaginu og frá stuðningsmönnum Ísraelshers. Gunnar Smári ræðir við hann um þjóðarmorðið, málfrelsi, akademískt frelsi og borgaralega skyldu gagnvart þjóðarmorði. Gunnar Smári ræðir líka við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um fund Pútín og Trump á morgun. Er fundurinn þegar sigur fyrir Pútin, er engin góð niðurstaða fyrir Trump og hvað vill Evrópa og Úkraína? María Lilja spyr almenning um afstöðu hans til umsóknar Íslands um aðild að ESB og strandeldis. Ragnheiður Davíðsdóttir tekur við Ólaf Sigurðsson, faðir uppkomins einhverfs/geðfatlaðs manns, en Ólafur hefur barist við kerfið í mörg ár til að fá þjónustu fyrir son sinn. Katrín Ella Jónsdóttir sálfræðingur og fagstjóri sálfélagslegu meðferðarinnar á Vogi ræðir vanda ungra notenda. Því yngri sem við erum þegar við hefjum neyslu alkóhóls því meiri líkur eru á vanda. Björn Þorláks ræðir við Katrínu.
    3 hr 37 min
  • Miðvikudagur 13. ágúst - Reynsluboltar, neytendur, unglingadrykkja og Kína
    Miðvikudagur 13. ágúst
    Reynsluboltar, neytendur, unglingadrykkja og Kína
    Una Margrét Jónsdóttir, Hörður Torfason og Kristín Ástgeirsdóttir eru gestir Sigurjóns Magnúsar í umræðu reynsluboltanna um fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins. Breki Karlsson hjá Neytendasamtökunum ræðir baráttumál íslenskra neytenda með Birni Þorláks. Unglingadrykkja hefur stóraukist seinni ár. Björn Þorláks ræðir við Hörpu Henrysdóttur kennara. Gunnar Smári heldur áfram samtali sínu við Ragnar Baldursson samanburðarstjórnmálafræðing um íina, samfélagið þar og stjórnkerfi, og stöðu Kína í breyttum heimi.
    3 hr 38 min
  • Rauða borðið 12. ágúst - Lög og réttur, Kína, grunnskóli og tollar
    Þriðjudagur 12. ágúst
    Lög og réttur, Kína, grunnskóli og tollar
    Gísli Tryggvason lögmaður ræðir lögfræðileg álitamál sem oftast tengjast fréttum líðandi stundar. Sauðfé sem bítur blóm í kirkjugörðum og Reynisfjara meðal umfjöllunarefna. Björn Þorláks ræðir við Gísla. Ragnar Baldursson samanburðarstjórnmálafræðingur hefur búið í Kína í 25 ár af síðustu fimmtíu árum. Gunnar Smári ræðir við hann um ris Kína, kínverskt samfélag, stjórnmál og menningu. Meðvirkni og metnaðarleysi ríkin innan grunnskólakerfisins í sumum skólum og gagnast engum að þegja og láta vandann hlaða utan á sig frá degi til dags heldur þvert á móti. Þetta segir Arnar Ævarsson kennslufræðingur í samtali við Björn Þorláks. Þorvaldur Gylfason prófessor ræðir við Gunnar Smára um áhrif tollastefnu Trump á efnahags Bandaríkjanna og heimshagkerfið, en líka áhrifin á pólitíkina heima fyrir og erlendis.
    3 hr 39 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

460 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

64 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners