Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið 11. ágúst - Palestína, pólitík, brennivín & sport, ESB og danslög við fiðlu
    Mánudagur 11. ágúst
    Palestína, pólitík, brennivín & sport, ESB og danslög við fiðlu
    Qussay Oddeh, íslenskur Palestínumaður, ræðir við Gunnar Smára um ástandið í Palestínu. Sem hefur aldrei verið verra. Ólafur Þ. Harðarson og Eva H. Önnudóttir prófessorar í stjórnmálafræði ræða við Björn Þorláks um stöðu ríkisstjórnarinnar, stjórnarandstöðu og gat í hinu pólitíska litrófi. Markaðsöflin vilja normalisera drykkju á íþróttaviðburðum segir Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi í samtali við Björn Þorláks. Er Íslandi betur borgið í ESB eða utan? Vilhjálmur Bjarnason fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Ágúst Ólafur Ágústsson aðstoðarmaður borgarstjóra og Erna Bjarnadóttir hagfræðingur hjá Bændasamtökunum kryfja málin með Birni Þorláks. Atli Freyr Hjaltason, þjóðfræðingur ræðir við Maríu Lilju um útgáfu Danslaga fyrir fiðlu, gleymd menningarverðmæti Jónasar Helgasonar.
    3 hr 38 min
  • Bridgeþátturinn 10. ágúst - Noregur og nýliðar
    Sunnudagur 10. ágúst
    Bridgeþátturinn með Birni Þorláks
    Aron Þorfinnsson, í hópi okkar sterkustu spilara, þekkir bridds í Noregi ansi vel og ber saman okkar briddsmenningu og Norðmanna. Systkinin Harpa og Blæring Henrysbön lýsa upplifun sinni sem nýliðar í bridds.
    41 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 32
    Föstudagur 8. ágúst
    Vikuskammtur: Vika 32
    Í vikuskammtinn að þessu sinni koma þau Tótla I. Sæmundsdóttir framkvæmdastjóri Barnaheilla, Jakob Frímann Magnússon Stuðmaður og varaþingmaður Miðflokksins, Viktor Orri Valgarðsson, stjórnmálafræðingur og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og formaður velferðarráðs og ræða fréttir vikunnar við Maríu Lilju. Það var ýmislegt sem gekk á innan lands sem utan en hæst ber að nefna Tolla, Gaza, Trump, óánægju með ferðamannaiðnaðinn, bréfaskriftir sakborninga í gæsluvarðhaldi, hinsegindagar, dvalarleyfi og deilur Verkalýðsforingja, fjúkandi Þjóðhátíðargestir og allskonar fleira.
    1 hr 3 min
  • Rauða borðið 7. ágúst - Helför á Gaza, Bjarg, ferðamannaplága, fjölmiðlar, matur, rödd skálds og pistahöfundar
    Fimmtudagur 7. ágúst
    Helför á Gaza, Bjarg, ferðamannaplága, fjölmiðlar, matur, rödd skálds og pistahöfundar
    Inga Þóra Haraldsdóttir helfararsagnfræðingur ræðir um þjóðarmorðið á um Gaza og samsvörun þess við helför nasista gegn gyðingum, eðli zíonismans og áhrif ástandsins á gyðingasamfélagið í heiminum. Grímur Atlason formaður Geðhjálpar og Sigurþóra Bergsdóttir bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi og varaþingmaður Samfylkingarinnar ræða við Maríu Lilju um óánægju bæjaryfirvalda með öryggisvistun fanga á Bjargi, vistheimili fyrir geðfatlaða karla sem fjallað var um á Samstöðinni í sumar. Páll Ásgeir Ásgeirsson leiðsögumaður segir samfélagsbreytingar hér á landi vegna uppgangs ferðaþjónustu einar þær mestu í seinni tíð. Hann líkir aðgreiningu erlendra starfsmanna í greininni við samfélag innfæddra Apartheid. Engin stjórn sé á greininni. Björn Þorláks ræðir við hann. Æ meira hallar á fjölmiðla. Skúli Bragi Geirdal, Fjölmiðlanefnd segir að yngsti aldurshópurinn treysti nú samfélagsmiðlum betur en fjölmiðlum. Björn Þorláks ræðir fárveika stöðu einkarekinna fjölmiðla við Skúla og Ólaf Arnarson, blaðamann á DV. Laura Sólveig, forseti ungra umhverfissinna, ræðir matargjafir náttúru landsins sem eru við hvert fótmál án þess að við vitum endilega af því. Björn Þorláks kynnti sér málið. Jón Hallur Stefánsson útvarpsmaður, skáld og trúbador ræðir við Gunnar Smára um stöðu pistlahöfundar, skálds og trúbadors í samfélaginu.
    4 hr 42 min
  • Matartíminn - 6. ágúst
    Miðvikudagur 6. ágúst
    MATARTÍMINN
    Gunnar Smári fær til sín gesti til að ræða um mat, matarmenningu og samfélag. Að þessu sinni koma í heimsókn þau Sólveig Ólafsdóttir þjóðfræðingur og Friðrik V. Hraunfjörð matreiðslumaður, kallaður Friðrik fimmti.
    1 hr 39 min
  • Rauða borðið 6. ágúst - Spilling, vinstrið, ferðamenn, okur og hinsegin
    Miðvikudagur 6. ágúst
    Spilling, vinstrið, ferðamenn, okur og hinsegin
    Sigurbjörn Daði Dagbjartsson, blaðamaður á Víkurfréttum, ræðir tengslaspillingu við eftirlit og öryggi í eftirmálum Grindavíkurhamfara. Hann segir í viðtali við Björn Þorláks að tilteknir aðilar hafi hagsmuni af því að maka krókinn fjárhagslega. Drífa Snædal talskona Stígamóta, fyrrum forseti Alþýðusambandsins og framkvæmdastjóri Vg ræðir við Gunnar Smára um stöðu vinstrisins og sósíalismans á Íslandi og í okkar heimshluta. María Lilja tekur púlsinn á almenningi, hvort fólk hafi fengið nóg af túrismanum. Breki Karlsson hjá Neytendasamtökunum ræðir nýtt álitamál við gjaldtöku á bílastæðum, vaxtamun banka og hvers vegna sterkt gengi krónunnar gagnvart dollar skilar sér ekki til íslenskra heimila. Björn Þorláks ræðir við Breka. Ugla Stefanía Kristjönudóttir og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir ræða við Maríu Lilju um menningarátök, pólitík og mannréttindi mtt hinseginleikans en hinsegindagar voru settir formlega í dag.
    4 hr 1 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

460 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

64 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners