Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Manngildi - 1. þáttur: Ekkert um okkur án okkar
    Mánudagur 19. október
    Manngildi - 1. þáttur: Ekkert um okkur án okkar
    Í fyrsta þætti Manngildis er gesturinn Elísabet Sóldís Þorsteinsdóttir, varaformaður Átaks, félags fólks með þroskahömlun. Við kynnumst Sóldísi, ræðum starf Átaks og mikilvægi þess að fólk með þroskahömlun fái sjálft að hafa áhrif á ákvarðanir sem varða líf þess. Hlustar samfélagið á raddir fatlaðs fólks? Hvernig stöndum við okkur þegar kemur að sjálfsákvörðunarrétti, sjálfstæði og þátttöku í samfélaginu? Manngildi er nýr samtalsþáttur á Samstöðinni þar sem við gefum fólki rödd, aukum skilning og ræðum hvernig við getum skapað betra samfélag fyrir okkur öll.
    37 min
  • Synir Egils 18. okt - Upplausn í flokkum og ASÍ, fákeppni og misnotkun, stríð og staða flokka
    Sunnudagurinn 18. október
    Synir Egils: Upplausn í flokkum og ASÍ, fákeppni og misnotkun, stríð og staða flokka
    Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB, Helga Vala Helgadóttir lögmaður og Þórður Snær Júlíusson framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar og ræða ágreining innan Viðreisnar og Alþýðusambandsins, okur og fákeppni, stöðu stjórnar og flokka og margt annað. Þá kemur nýr forseti Alþýðusambandsins að borðinu, Georg Páll Skúlason, og ræðir um stöðu ASÍ við bræðurna og Sigurð Pétursson sagnfræðinginn sem er manna fróðastur um sögu verkalýðsbaráttunnar. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
    2 hr 9 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 42
    Föstudagur 16. október
    Vikuskammtur: Vika 42
    Þau koma að Rauða borðinu, Magnea Gná Jóhannsdóttir varaborgarfulltrúi, Jóhanna Malen Skúladóttir jarðeðlisfræðingur og varaforseti Ungra umhverfissinna, Gagga Jónsdóttir kvikmyndagerðarkona og Viktor Pétur Finnsson varaþingmaður og ræða við Gunnar Smára um fréttir vikunnar sem einkenndust af átökum og deilum, svindli og afsögnum, óveðri og óknyttaskap.
    1 hr 38 min
  • Rauða borðið 15. okt - Reynsluboltar, verkó, norrænt sambandsríki, umhverfistímarit, andlegur þroski og Heilsuerla
    Fimmtudagur 15. október
    Reynsluboltar, verkó, norrænt sambandsríki, umhverfistímarit, andlegur þroski og Heilsuerla
    Margrét Sanders, Arnar Björnsson og Gunnar Salvarsson voru gestir Sigurjóns að þessu sinni. Þau tala af reynslu og yfirvegun um helstu málefni líðandi stundar. Sigurður Pétursson sagnfræðingur ræðir við Gunnar Smári um spennu milli VR og Eflingar og átökin innan Alþýðusambandsins. Hrannar Björn Arnarsson formaður Norræna félagsins og Jón Yngvi Jóhannsson bókmenntafræðingur og ævisöguritari Gunnars Gunnarssonar ræða um sambandsríki Norðurlandanna í tilefni af fyrirlestri Gunnars Wetterberg á morgun. Jean-Rémi Chareyre segir Gunnari Smára frá Umskipti tímariti um framtíðarvelsæld og þolmörk jarðar. Sigurður Skúlason segir Gunnari Smára frá andlegri þroskasögu sinni og bókinni Í leit að því sem er, sem fjallar um það ferðalag. Heilsumarkþjálfinn landsþekkti, Erla Guðmundsdóttir örmagnaðist og grét í þrjár vikur. Hún leitaði sér aðstoðar og komst að því að hún hafði lent í einelti, verið meðvirk og aftengd sjálfri sér. Hún lærði að hlusta á innsæið, velja það sem nærir hana og láta álit annarra ekki stjórna sér. Ásdís ræðir við Erlu.
    5 hr
  • Rauða borðið 14. okt - Trumptíminn, Cornellmálið, umhverfismál, listamenn og samtalið
    Miðvikudagur 14. október
    Trumptíminn, Cornellmálið, umhverfismál, listamenn og samtalið
    Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi, Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur og Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur fara yfir stöðuna á Trump með Gunnari Smára, samning hans við Pútín og aðrar tilraunir hans til að bæta stöðu sína fyrir kosningarnar eftir tæpar þrjár vikur. Getur kona í vímu veitt upplýst samþykki? Sú spurning er nú í brennidepli eftir Cornell-málið, sem hefur orðið táknrænt fyrir umræðuna um kynferðisofbeldi í Bandaríkjunum. Drífa Snædal frá Stígamótum og Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, kynjafræðikennari, ræða málið við Ásdísi Olsen. Halla Hrund Logadóttir þingmaður Framsóknarflokksins ræðir ýmis umhverfismál við Björn Þorláksson, svo sem vindorku, ferðamennsku og sjókvíaeldi. Nýjar hugmyndir um grunnlaun til starfandi listamanna hefur verið komið á víða í Evrópu og nú kalla íslenskir listamenn eftir grunndvallar framfærslu. Birna Hafstein, formaður Félags íslenskra listamanna í sviðslistum og kvikmyndum og Jóna Hlíf Halldórsdóttir forseti Bandalags íslenskra listamann ræða við Ásdísi Olsen. Lísa Margrét Gunnarsdóttir háskólanemi og Vigdís Jóhannsdóttir í hópi skipuleggjenda, fara yfir samtalið sem forseti Íslands hratt af stað um helgina. Þær ræða helstu atriði sem komu fram í vinnu fólksins og hvað við þurfum að endurskoða. Björn Þorláks ræðir við þær.
    4 hr 31 min
  • Græna borðið - 24. þáttur: Sjókvíaeldi og vernd Seyðisfjarðar
    Miðvikudagur 14. október
    Græna borðið - 24. þáttur: Sjókvíaeldi og vernd Seyðisfjarðar
    Það var pólitísk ákvörðun að hleypa sjókvíum of víða í firðina okkar. Það er líka pólitísk ákvörðun að stoppa þær - og getur ekki verið flóknari. Baráttan fyrir vernd Seyðisfjarðar er komin á borð tveggja ráðherra og stjórnarþingmenn sjá fyrir sér að fiskeldi færist á endanum í lokaðar kvíar eða upp á land. En mega hagsmunir náttúrunnar og almennings sín einhvers gegn þrýstingi fjármagnsaflanna? Við ræðum sjókvíaeldi og vernd Seyðisfjarðar við Græna borðið. Gestir þáttarins eru þau Eiríkur Björn Björgvinsson, Jóhanna Malen Skúladóttir, Magnús Guðmundsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson. Stjórnandi er Andrés Ingi Jónsson
    1 hr
  • Rauða borðið 13. okt - Menning, klofningur, handanheimurinn, þjóðnýting, nýjar bækur
    Þriðjudagur 13. október
    Menning, klofningur, handanheimurinn, þjóðnýting, nýjar bækur
    Logi Einarsson menningarmálaráðherra, Anna Rún Tryggvadóttir myndlistarmaður og formaður Samband íslenskra myndlistarmanna og Atli Bollason listamaður og menningarýnir ræða við Gunnar Smára um menningarastefnuna, hver hún er og hver hún ætti að vera. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar ræðir við Gunnar Smára um komandi þing ASÍ en hún segir Alþýðusambandið klofnara nú en fyrir fjórum árum þegar hún og félagar hennar gengu af þinginu. Hún ræðir einnig mögulega úrsögn Eflingar úr ASÍ. Við skygnumst inn í aðra vídd með þeim Ester Sveinbjarnardóttur og Sigrúnu Gunnarsdóttur, en þær eru í góðu sambandi við leiðbeinendur að handan. Í samtali við Ásdísi Olsen ræða þær um framtíð heimsins, friðarferlið í Evrópu, hækkandi tíðni, hvað gerist eftir dauðann, hvernig þær vinna með „drauga“ og hvernig við heilum það sem situr í okkur frá forfeðrunum. Jón Ferdinand Estherarson, formaður sósíalista, telur rétt að þjóðnýta bankana, leysa þá upp í núverandi mynd. Hann segir Birni Þorláks hvers vegna.Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur segir Gunnari Smára frá bók sinni um Dauðadæmd – sakamál á 18. öld, um fólk sem dæmt var til dauða og þrælkunarvinnu á sínum tíma. Viðtalið er ekki fyrir viðkvæma.Komin er út ný skáldsaga eftir Hauk Arnþórsson stjórnsýslufræðing. Haukur tekst á við liðinn tíma fyrir austan, á Seyðisfirði jólin 1966. Hann segir Birni Þorláks hvers vegna hann skrifaði bókina log les einnig upp úr henni.
    5 hr 21 min
  • Bókaborðið - 5. þáttur: Uppáhalds bókin
    Þriðjudagur 13. október
    Bókaborðið 5. þáttur - Uppáhalds bókin
    Vigdís Gríms spjallar við Kristínu Helgu, Sveinbjörgu Bjarna og Hólmfríði Helgu un nokkrar uppáhaldsbækur þeirra. Þær koma með nokkrar bækur með sér og ræða hvers vegna þær völdu þessar en ekki aðrar. Við veltu fyrir okkur mörgum spurningum. Einsog t.d. Hvers vegna verða bækur okkur hjartfólgnar? Hvað er það sem við viljum finna í bókum? Standa uppáhaldsbækurnar tímans tönn. Segir valið kannski meira um okkur sjálf en bækurnar sem við völdum.
    1 hr 4 min
  • Rauða borðið 12. okt - Forseti ASÍ, Djöflar, markaðsbrestur, gervigreind, Hugarafl og laxar
    Mánudagur 12. október
    Forseti ASÍ, Djöflar, markaðsbrestur, gervigreind, Hugarafl og laxar
    Þeir Arnaldur Grétarsson starfsmaður Félags hjúkrunarfræðinga, ritstjóri og framleiðandi og Georg Páll Skúlason formaður Grafíu vilja báðir verða forseti Alþýðusambandsins. Þeir segja Gunnari Smára frá hvers vegna og hvernig ASÍ þeir vilja sjá. Stefán Jónsson leikstjóri, Hlín Agnarsdóttir þýðandi og leikarahjónin Hilmir Snær Guðnason og Vala Kristín Eiríksdóttir ræða við Gunnar Smára um sýninguna á Djöflum eftir Lars Norén sem sýnd er í Borgarleikhúsinu. Margt bendir til markaðsbrests og jafnvel markaðsmisnotkunar á fasteignamarkaði. Yngvi Ómar Sigrúnarson formaður Samtaka leigjenda bendir á að leiga á íbúðum sem fólk missti í hruninu hafi margfaldast. Björn Þorláks ræðir við hann. Hjálmar Gíslason nörd og framkvæmdastjóri Grid ræðir við Gunnar Smára um gervigreind, hættuna af henni og ávinning og sérstöðu Íslands. Auður Axels hjá Hugarafli ræðir mismunandi nálgun á geðræn málefni, fíkn og fleira. Þau Ólafur Örn Ævarsson geðlæknir sem oft hefur rætt málin á Samstöðinni eru ekki sammála um alla hluti. Björn Þorláks ræðir við Auði. Á fimm árum hafa 20 milljónir laxa drepist í sjókvíum hér á landi sem er til marks um óboðlegar aðstæður. Sigurður Héðinn Harðarson fluguhnýtingamaður hefur tekið saman frá MAST og birt viðkvæmar upplýsingar um fiskeldi. Björn Þorláks ræðir við hann.
    4 hr 39 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

9 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

17 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners