Mánudagur 20. apríl
Kynferðisofbeldi, mannréttindi, útgerðarspilling, Ríkisútvarpið og píanóleikur
Steinun Ólína Þorsteinasdóttir leikkona hefur gefið út Ólínuskjölin þar sem hún segir frá hlutum sem legið hafa í þagnargildi, kynferðisofbeldi gegn henni sjálfri. Hún ræðir við Björn Þorláks um mein íslenska samfélags. Viðar Eggertsson leikstjóri og Sigríður Nanna Heimisdóttir, aðstoðarskólastjóri Hagaskóla, bregðast við umræðu Snorra Mássonar Miðflokksmanns um regnbogamenningu í skólum. Björn Þorláks ræðir við þau Þingmaðurinn Sigurjón Þórðarson og varaþingmaðurinn Grétar Mar Jónsson, Flokki fólksins, ræða spillingu í sjávarútvegi. Björn Þorláks ræðir við þá. Tekjur Samstöðvarinnar voru innan við eitt prósent af þeim tekjum sem Ríkisútvarpið naut á árinu 2025. Stefán Jón Hafstein, formaður stjórnar Rúv, ræðir við Björn Þorláks um gæði dagskrár, traust og fleira. Pálmi Sigurhjartarson píanisti gefur út fyrstu píanóplötu sína eftir nokkra daga. Covid varð honum uppspretta hugmyndar að útgáfunni. Björn Þorláks ræðir við hann.