Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Manngildi - 3. þáttur: Maðurinn, listin og baráttan fyrir jöfnum tækifærum
    Manngildi 9. nóv - Þórir Gunnarsson, Listapúkinn
    Maðurinn, listin og baráttan fyrir jöfnum tækifærum
    Í þessum þætti af Manngildi er gesturinn Þórir Gunnarsson, betur þekktur sem Listapúkinn.
    Þórir er litríkur persónuleiki, hæfileikaríkur myndlistarmaður, mikill íþróttaáhugamaður og ötull talsmaður jafnra tækifæra fyrir fólk með þroskahömlun.
    Við kynnumst manninum á bak við Listapúkann og ræðum æskuna, daglegt líf, sundið, ræktina og hlaupin. Þórir segir frá ástríðu sinni fyrir Aftureldingu, eftirminnilegum úrslitaleik í Lengjubikarnum og því hvað það þýðir að tilheyra samfélagi stuðningsmanna.
    Við förum einnig yfir myndlistarferilinn, heimsókn hans til listmálarans Tolla og þekkta einstaklinga sem hafa eignast verk eftir hann.
    En lífið hefur líka verið barátta. Þórir ræðir hindranir sem hann hefur mætt, baráttu sína fyrir aðgengi að listnámi og mikilvægi þess að fólk með þroskahömlun fái að njóta hæfileika sinna, taka eigin ákvarðanir og hafa sömu tækifæri og aðrir.
    Persónulegt, einlægt og skemmtilegt samtal um lífið, listina, draumana og samfélag þar sem allir eiga að fá að vera þeir sjálfir.
    Manngildi – Samtal sem breytir samfélagi.
    24 min
  • Synir Egils 8. nóv - Endalok Trumptímans, svín, uppsagnir, lífskjarakrísa og fjölmiðlar
    Sunnudagurinn 8. nóvember
    Synir Egils: Endalok Trumptímans, svín, uppsagnir, lífskjarakrísa og fjölmiðlar
    Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ, Arna Lára Jónsdóttir, þingkona Samfylkingar og Illugi Jökulsson blaðamaður og ræða helstu fréttir og stöðu mála hér heima og erlendis. Þá koma þau Eyrún Magnúsdóttir stofnandi Gímaldsins, Jón Trausti Reynisson framkvæmdastjóri Heimildarinnar og Magnús Magnússon ritstjóri og framkvæmdastjóri Skessuhorns og ræða stöðu fjölmiðla og umræðunnar í samfélaginu. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
    2 hr 14 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 45
    Föstudagur 6. nóvember
    Vikuskammtur: Vika 45
    Í Vikuskammti ræða í beinni útsendingu Lóa Hjálmtýsdóttir listakona, Heiðar Ingi Svansson útgefandi, Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri Rúv, Þorgerður María Þorbjarnardóttir hjá Landvernd og Bragi Páll skáld fréttir vikunnar í umsjá Björns Þorláks. Kjarnorkutíst upplýsingafulltrúa, raðáhrif í kjölfarið, Reykjavík Bangkok norðursins – eða ekki, upphafið að endalokum Trump, sögur brottrekinna starfsmanna, umhverfismál, hamfarapakki heimilanna, bækur og gott fólk verða til umræðu.
    1 hr 17 min
  • Rauða borðið 5. nóv - Reynsluboltar, meðvirkni, áhugaleikhús og Frakkland
    Fimmtudagur 5. nóvember
    Reynsluboltar, meðvirkni, áhugaleikhús og Frakkland
    Reynsluboltar þessa vikuna eru Benedikt Jóhannesson stofnandi Viðreisnar, Óðinn Jónsson fyrrum fréttastjóri RÚV og Þórunn Sigurðardóttir menningarfrömuður. Vandinn vegna Landsvirkjunar, orð Ólafs Ragnars og svar Þorgerðar Katrínar voru á dagskrá, íslenska óperan og fleira. „Áttu erfitt með að biðja um hjálp?“ Þá ertu líklega að glíma við meðvirkni, segja Gyða Dröfn Tryggvadóttir og Anton Ísak Óskarsson, en þau þekkja meðvirkni af eigin raun. Þau segja opinskátt frá eigin reynslu, leiðinni út úr meðvirkni og léttinum við að losna úr fjötrum meðvirkninnar í viðtali við Ásdísi Olsen. Vigdís Grímsdóttir rithöfundur, Rúnar Guðbrandsson leikstjóri og leikkonurnar Guðfinna Gunnarsdóttir og Íris Árný Magnúsdóttir ræða við Gunnar Smára um uppfærslu Leikfélags Selfoss á leikgerð upp úr þessari vinsælu bók. Gérard Lemarquis kennari sem lengi var fréttaritari Le Monde og AFP á Íslandi ræðir um ástandið í Frakklandi við Gunnar Smára.
    3 hr 52 min
  • Rauða borðið 4. nóv - Trumptíminn, fæðingarorlof, pendúlhreyfingar, tónlist og lagaleg álitaefni
    Miðvikudagur 4. nóvember
    Trumptíminn, fæðingarorlof, pendúlhreyfingar, tónlist og lagaleg álitaefni
    Friðjón R. Friðjónsson varaborgarfulltrúi, Magnús Helgason sagnfræðingur og Ólafur Þ. Harðarson prófessor fara yfir kosningaúrslitin í Bandaríkjunum í spjalli við Gunnar Smára í auka-Trumptíma. Marka kosningarnar endalok Trumptímans? Ásdís Olsen ræðir við Karítas Ólafsdóttur móður og sálfræðing en hún neitar að láta stjórnvöld ráða hennar eigin barneignum. Forgangsröðun fjármuna tekur ekki mið af þörfum barna. Þetta segir Grímur Atlason hjá Geðhjálp. Hann og Margrét Valdimarsdóttir doktor í afbrotafræði ræða við Björn Þorláks um muninn á vistun barns og brú yfir fljót. Á föstudag verður frumflutt stórvirkið ANOK eftir Högna Egilsson í Hallgrímskirkju. Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona er í aðalhlutverki í flutningnum og ræðir ásamt tónskáldinu Högna verkið í samtali við Björn Þorláks. Grímur Atlason hjá Geðhjálp og Margrét Valdimarsdóttir, dósent við HÍ, ræða kosningarnar í Bandaríkjunum í gær, áhrif þeirra á heiminn og þar á meðal hér á Íslandi. Björn Þorláks ræðir við þau. Gísli Tryggvason lögmaður fer yfir lagaleg álitaefni tengd fréttum líðandi stundar. Uppsagnir og uppsagnarákvæði, minnkandi samkeppni á matvörumarkaði og Landsvirkjunarmálið eru þar á meðal. Björn Þorláks ræðir við Gísla.
    4 hr 36 min
  • Græna borðið - 27. þáttur: Neysluhegðun
    Miðvikudagur 4. nóvember
    Græna borðið - 27. þáttur: Neysluhegðun
    Neysla samfélagsins hefur aldrei verið meiri. Í nóvembermánuði fyllast götur og miðlar af auglýsingum til þess að fá fólk til að neyta meira af hlutum sem það þarf ekki á að halda. Í þætti dagsins förum við djúpt í nægjusemi og neyslu. Freyr Eyjólfsson, verkefnastjóri hjá Sorpu og Ragnhildur Katla Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi Landverndar ræða við Breka Karlsson, formann Neytendasamtakanna og Rögnu Benediktu Garðarsdóttur, prófessor félagssálfræði við Háskóla Íslands.
    59 min
  • Rauða borðið 3. nóv - Uppsagnir, norðurslóðir, ópera og lækningar
    Þriðjudagur 3. nóvember
    Uppsagnir, norðurslóðir, ópera og lækningar
    Þorvaldur Ingi Jónsson ráðgjafi rýnir í hópuppsagnirnar hjá borginni og gefur aðferðafræðinni laka einkunn. Björn Þorláks heldur áfram umfjöllun Samstöðvarinnar um starfsmannamál og mannúð. Gunnar Smári ræðir við Rasmus Gjedssø Bertelsen prófessor í Tromsø um Grænlandssamning Bandaríkjanna, símtal forsætisráðherra Noregs og forseta Finnlands til Putín og önnur mál tengt norðurslóðum. Bjarni Snæbjörnsson leikstjóri, Íris Björk Gunnarsdóttir sópran og Bjarni Thor Kristinsson bassi segja Gunnari Smára frá óperunni 27 sem fjallar um lesbísku hjónin Gertrude Stein og Alice B. Toklas. Ásgeir Böðvarsson læknir og íslenskufræðingarnir Solveig Brynja Grétarsdóttir og Jón Torfason segja Gunnari Smára frá Jóni Jónssyni prest og lækni í Árskógi og á Grenjaðarstað, en hann lærði ekki til prests en fékk leyfi til að lækna gegn því að halda dagbækur, sem voru að koma út.
    4 hr 23 min
  • Bókaborðið - 8. þáttur: Myndhöfundar barnabóka
    Þriðjudagur 3. nóvember
    Bókaborðið - 8. þáttur: Myndhöfundar barnabóka
    Hvað eru myndhöfundar að bralla? Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir og Linda Ólafsdóttir segja Maríu Hjálmtýsdóttur frá starfinu, mikilvæginu, harkinu og pólitíkinni. Það er nefnilega pólitík í öllu ef vel er að gáð. Meira segja í barnabókabransanum. Er hægt að verða rík af því að teikna barnabækur á Íslandi? Eru íslenskir myndhöfundar í stanslausri samkeppni hver við annan eða eru þau vinir? Eru þau kannski í keppni við gervigreindina?
    1 hr 6 min
  • Rauða borðið 2. nóv - Hópuppsagnir, Trump, uppreisnir, heimshvörf og samfélagsmiðlar
    Mánudagur 2. nóvember
    Hópuppsagnir, Trump, uppreisnir, heimshvörf og samfélagsmiðlar
    Ómannúðlegar aðferðir við uppsagnir starfsfólks og áhrif þess, persónubundin og samfélagsleg, verða til umræðu hjá Viðari Eggertssyni leikara og Sigríði Kristjánsdóttur kvikmyndasérfræðingi. Þau urðu vitni að því sem Viðar kallar “slátrun” í hópuppsögn hjá Ríkisútvarpinu þar sem Sigríður missti vinnuna og lýsir nú í fyrsta skipti þeirri bitru reynslu. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Degi fyrir kosningar í Bandaríkjunum spá sagnfræðingarnir Sveinn Máni Jóhannesson, Magnús Helgason og Guðmundur Hálfdanarson í spilin með Gunnari Smára. Munu Repúblikanar tapa kosningunum svo illa að marki endalok Trumptímans? Hvað er að gerast í Evrópu og meðal ungs fólks víða um heim? Róttæklingarnir Ólafur Páll Sigurðsson, Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir og Lúkas Lilliendahl ræða við Gunnar Smára um uppreisn ungs fólks, hverju þau mótmæla og hvers vegna. Er gamli heimurinn að líða undir lok? Gísli Bachmann stjórnspekingur hefur fengið sýnir sem hann tengir við Völuspá, Ragnarök og upphaf nýrrar aldar. Hann telur að erfiðir tímar séu fram undan, átök og upplausn, en að úr þeim hreinsunareldi geti sprottið nýr heimur og andleg vakning mannkyns. Ásdís Olsen ræðir við hann. Halldóra Mogensen fyrrum þingmaður, sérfræðingur í gervigreind, ræðir samfélagsmiðla og hvernig stjórnvöld sváfu á verðinum gagnvart börnunum okkar. Björn Þorláks ræðir við Halldóru.
    5 hr 15 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

9 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

17 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners