Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið 18. júní - Vg, pólitík, Íran, heimsendi, vinstrið og samræmd próf
    Miðvikudagur 18. júní
    Vg, pólitík, Íran, heimsendi, vinstrið og samræmd próf
    Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingmaður, segir Birni Þorláks að spilling og valdsækni áhrifafólks innan VG, ekki síst Svandísar Svavarsdóttur, skýri bágt gengi flokksins undanfarið. Ólafur Þ. Harðarson prófessor emeritus í stjórnmálafræði upplýsir Björn að traust til Alþingis sé að aukast frá því sem verið hefur. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um hvort Bandaríkin muni taka frekari þátt í loftárásum Ísraels á Íran. Og um Ísland og Evrópusambandið. Oddný Eir og María Lilja rabba við fólk um hugsanlegan heimsenda, um landamæri, efnahagsflótta, einmanaleika, skattaskjól og önnur hressileg frétta- og ekki-fréttamál. Pétur Tyrfingsson, sálfræðingur og Marxisti, svarar Gunnari Smára um hvers vegna vinstrið og sósíalisminn hafi ekki risið þegar nýfrjálshyggjan féll í Hruninu. Jón Torfi Jónasson prófessor á eftirlaunum talar um skólakerfið við Gunnar Smára og segir hvers vegna hann geldur varhug við samræmdum prófum eins og kallað er eftir.
    5 hr 33 min
  • Rauða borðið 16. júní - Íran og Ísrael, Striplab og njósnir, blaðamennskan, Víkingahátíð og listir
    Mánudagur 16. júní:
    Íran og Ísrael, Striplab og njósnir, blaðamennskan, Víkingahátíð og listir
    Við hefjum Rauða borðið á spjalli við Kjartan Orra Þórsson, Miðausturlandafræðing og sérfræðing í málefnum Írans. Hann ræðir við Gunnar Smára um stríðsátök milli Ísraels og Íran og íranska þjóðerniskennd sem á sér mörg þúsund ára rætur. Ari Logn og Renata Sara Arnórsdóttir, aktívistar í Rauðu regnhlífinni ræða við Maríu Lilju og Oddnýju Eir um strip, femínisma, fordóma á Íslandi og njósnir í Svíþjóð. Ásdís Ásgeirsdóttir blaðamaður á Morgunblaðinu og Skúli Geirdal, Fjölmiðlanefnd, ræða pólaríseringu íslenskra fjölmiðla, starfsskilyrði blaðamanna, vinnubrögð, falsfréttir og traust til fjölmiðla við Björn Þorláks. Samkvæmt óbirtri könnun treysta hægri menn Morgunblaðinu best en Rúv síður. Við heimsækjum Víkingahátíð í Hafnarfirði þar sem sólin skín á tjöld, eldstæði, baráttu og hljómleik. Oddný Eir og María Lilja fóru og ræddu við víkingana um hátíðarhöld, handverk, hefðir og hugmyndir sem kvikna í ullartjöldunum og samverunni. Gunnar Guðbjörnsson, skólastjóri Söngskóla Sigurðar Demetz, ræðir við Björn Þorláks um starfsaðstæður skapandi greina, mikilvægi þess að ungt fólk fái að stunda þá list sem það brennur fyrir og skyldur hins opinbera.
    3 hr 58 min
  • Synir Egils 15. júní - Málþóf, mótmæli. loftárásir og skautun
    Sunnudagurinn 15. júní
    Synir Egils: Málþóf, mótmæli. loftárásir og skautun
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma fyrst þau Þóra Kristín Ásgeirsdóttir upplýsingafulltrúi, Benedikt Jóhannesson tölfræðingur og Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og ræða um málþóf á Íslandi, átökin í Mið-Austurlöndum, mótmæli í Bandaríkjunum og hér heima og fleiri fréttir. Síðan koma þau Halla Gunnarsdóttir formaður VR, Guðrún Margrét Guðmundsdóttir mannfræðingur og Davíð Þór Jónsson prestur og halda umræðunni áfram og ræða líka um skautun og upplausn milli ríkja og innan ríkja. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
    2 hr 35 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Gnarr
    Laugardagur 14. júní
    Helgi-spjall: Gnarr
    Jón Gnarr segir okkur frá föður sínum og móður, frá föðurnum á himnum, húmor og pólitík, hugrekki sínu og hugsunarleysi, tímanum þegar hann tapaði sér og gildi þess að tala ekki of mikið um hlutina.
    3 hr 20 min
  • Rauða borðið 12. júní - Kulnun skólamanns, Ný Sýn, gegn rasisma, breytt Bandaríki og skipulagsmál
    Fimmtudagur 12. júní
    Kulnun skólamanns, Ný Sýn, gegn rasisma, breytt Bandaríki og skipulagsmál
    Við hefjum leik á uppgjöri Valgarðs Más Jakobsssonar, skólameistara Framhaldsskólans í Mosfellsbæ, en hann berskjaldar sig og lýsir einkennum kulnunar í starfi og hvað þurfti að gerast til að hann rambaði á rétta hillu á ný. Björn Þorláksson ræðir við Valgarð. Það eru vendingar á fjölmiðlamarkaði og hefur verið tilkynnt um breytingar á rekstrarfyrirkomulagi Sýnar, Stöð 2 er úr sögunni. Frosti Logason fjölmiðlamaður kemur til Maríu Lilju og ræðir stöðu fjölmiðla og mikilvægi fjölbreytni. Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû, stuðningsfulltrúi, Margrét Pétursdóttir, leiðsöguman og Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata svara kröfum hópsins Ísland þvert á flokka í tengslum mótmælin á Austurvelli sem boðuð eru fyrir helgi. Þær ræða líka við Oddnýju Eir Ævarsdóttur um uppákomuna í Húsdýragarðinum, rasismann og staðreyndir málsins. Oddný Eir ræðir einnig við dr. Áka Jarl Lárusson, líffræðing hjá Hafrannsóknarstofnun, sem ólst upp í Los Angeles, um ofbeldið í Bandaríkjunum, orsakir og afleiðingar. Og Björn Teitsson, borgarfræðingur mætti til Maríu Lilju og ræddið borgarsamfélagið. Þau fóru yfir samræðuna um bílastæði, einkabílinn, opin rými og hvers meirihluti höfuðborgarbúa óski sér í þeim efnum.
    3 hr 5 min
  • Auðlindin 12. júní
    Fimmtudagur 12. júní
    Auðlindin
    Gestir Maríu Lilju og Björns Þorlákssonar í landsbyggðaþættinum Auðlindin í dag eru Kristín Magnea Sigurjónsdóttir blaðamaður á trolli.is í Fjallabyggð Margrét Gauja Magnúsdóttir leiðsögumaður og skólastjóri Lýðsskólans á Flateyri og Sigurður Erlingsson landvörður í Vatnajökulsþjóðgarði. Þau ræða fréttir og tíðaranda í héraði, landsmál og fleira.
    1 hr 4 min
  • Rauða borðið 11. júní: Flugvöllurinn, hafið, reynsluboltar, glæpasamtök, huldufólk og umbylting í læknavísindum
    Miðvikudagur 11. júní
    Flugvöllurinn, hafið, reynsluboltar, glæpasamtök, huldufólk og umbylting í læknavísindum
    Daði Rafnsson hjá samtökunum Hljóðmörk sem berjast gegn óþarfa flugumferð á Reykjavíkurflugvelli og Ólafur Hjálmarsson hljóðverkfræðingur ræða við Björn Þorláks stöðu vallarins, vítaverða og vaxandi hljóðmengun og alvarlegt atvik í gærkvöld. Flugvallarvinir hafa hótað fólki sem vill minnka umferð um völlinn að því er kemur fram í umræðunni. Kristín Vala Ragnarsdóttir, sérfræðingur í sjálfbærni og prófessor emerita í jarðvísindadeild Háskóla Íslands, ræðir við Oddnýju Eir um aðgerðarleysi og hugsanavillur tengdum hagvexti sem ógna hafinu og framtíð okkar. Reynsluboltar vikunnar voru þingkonurnar fyrrverandi; Álfheiður Ingadóttir, Kristín Ástgeirsdóttir og Oddný Harðardóttir. Rætt var um helstu fréttir og stjórnmál. Ekki síst að það vanti fólk á þingi sem talar frá vinstri og hefur áhuga á náttúruvernd. Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, félags fanga, ræðir við Maríu Lilju um glæpasamtök útlendinga í fangelsi og auknar valdheimildir lögreglu. Auður Aðalsteinsdóttir, bókmenntafræðingur, höfundur, rannsóknarlektor og forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit segir okkur frá nýjum rannsóknum á tengslum sköpunarkrafts og náttúru og hlutverki álfa, huldufólks í pólitík og menningu samtíma okkar. Páll Þórðarson, efnafræði-prófessor við háskóla í Sydney í Ástralíu segir Gunnari Smára frá umbyltingu í læknisfræði vegna RNA-tækni sem hann vinnur að.
    4 hr 36 min
  • Rauða borðið 10. júní - Herinn til LA, Thunberg, Trump, Grímur, lífeyrissjóðir og gervigreind
    Þriðjudagur 10. júní
    Herinn til LA, Thunberg, Trump, Grímur, lífeyrissjóðir og gervigreind
    Dröfn Ösp Rozas ræðir við Maríu Lilju um mótmælin í LA sem hún segir að sé mikilvægt að kalla ekki óeirðir. María Lilja ræðir við Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, lögmann og formann Siðmenntar um fleyið Madleen sem stöðvuð var með nauðsynlegar vistir fyrir utan Gaza stendur. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um Trump og heimsmálin, ástandið í Kaliforníu og Úkraínu, á Gaza og Mið-Austurlöndum og vaxandi stórveldaátök í heiminum. Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrum lögga, segir frá sjálfum sér, þinginu, ofbeldismálum í samfélaginu og ýmsu öðru í samtali við Björn Þorláksson. Björn Þorláksson heldur áfram umfjöllun sinni um lífeyrissjóði. Þórey Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, ræðir kosti og galla íslenska lífeyrissjóðakerfisins. Hvað aðgreinir okkur frá sambærilegum sjóðum utan landsteinanna? Þorsteinn Siglaugsson hagfræðingur ræðir við Gunnar Smára um þá afgerandi samfélagsbreytingu sem gervigreindin mun valda, ekki bara í samfélaginu og völdum innan þess, heldur á sjálfsmynd okkar sjálfra.
    4 hr 28 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

460 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

64 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners