Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Jósep Blöndal
    Laugardagur 31. maí
    Helgi-spjall: Jósep Blöndal
    Jósep Blöndal, læknir segir frá lífi sínu og ákvörðunum teknum af rælni og ræðir um líf sitt, ástir og æsku, tónlistina, fíknina og fjölskyldulífið en líka um læknisfræðina, hlustunina, heilahvelin, næringafræðina, heilbrigðiskerfið, einkavæðinguna og uppbygginguna á einstakri verkja-meðferð í Hólminum, hvernig tókst að byggja hana upp með teymisvinnu og nýstárlegri nálgun og verja hana fyrir arðsemishugmyndafræðinni.
    2 hr 57 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 22
    Föstudagur 30. maí
    Vikuskammtur: Vika 22
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Jóna Benediktsdóttir kennari og formaður stjórnarskrárfélagsins, Kjartan Sveinsson formaður Félags strandveiðimanna, Lóa Hjálmtýsdóttir teiknari og Þrándur Þórarinsson listmálari og ræða fréttir vikunnar og ástandið á samfélaginu okkar í upphafi sumar.
    1 hr 42 min
  • Sjávarútvegsspjallið - 51. þáttur
    Fimmtudagur 28. maí
    Sjávarútvegsspjallið - 51. þáttur
    Grétar Mar fær að þessu sinni til sín þá Ólaf "ufsa" Jónsson skipsstjóra, Jón Kristjánsson, fiskifræðing og Ingimund Elísson stýrimann og skipsstjóra.
    1 hr 3 min
  • Rauða borðið 28. maí: Oscar, hamingja barna, Gaza, Rússland, blaðamennska og gervigreind
    Miðvikudagur 28. maí
    Oscar, hamingja barna, Gaza, Rússland, blaðamennska og gervigreind
    Haraldur Þorleifsson frumkvöðull og tónlistarmaður, Arna Grét­ars­dótt­ir, sókn­ar­prest­ur í Reyni­valla­prestakalli, Bjarni Karlsson, prestur og guðfræðingur hjá sálgæslu- og sálfræðistofunni Haf, ræða við Gunnar Smára um mál Oscars And­ers Florez Bocanegra, 17 ára drengs frá Kólumbíu. Og um hlutverk borgara þegar stjórnvöld brjóta gegn siðferðiskennd þeirra. Inger Erla Thomsen, sérfræðingur í málsvarastarfi UNICEF á Íslandi og Eva Bjarnadóttir, teymisstjóri innanlandsdeildar UNICEF ræða lífshamingju barna við Maríu Lilju. Helen Ólafsdóttir öryggissérfræðingur ræðir við Gunnar Smára um stuðning stjórnvalda í Evrópu við þjóðarmorðið í Gaza og hvort von sé til þess að almenningi takist að breyta þeirri afstöðu. Natasha S. ljóðskáld ræðir um Rússland við Gunnar Smára, vanda þess að vera Rússi á Íslandi og hvernig það er að koma til móðurlandsins í skugga innrásar Pútins í Úkraínu. Blaðamannafélagið kynnti á félagsfundi í gærkvöld nýjar lausnir er varða framtíð fjölmiðla og blaðamennsku. Meðal hugmynda er að tekjur af auglýsingasölu Rúv renni til einkarekinna miðla. Ritstjórnarfulltrúar Samstöðvarinnar, þeir Gunnar Smári Egilsson og Björn Þorláks, ræða hvort lausnirnar séu raunhæfar. Björgmundur Örn Guðmundsson, ráðgjafi í nýsköpun ræðir femínskan vinkil á innleiðingu gervigreindar á vinnumarkaði við Maríu Lilju.
    4 hr 7 min
  • Rauða borðið 27. maí - Lýðræði. list og gervigreind, ölæði, Landbúnaðarháskólinn og náttúruvefur
    Þriðjudagur 27. maí
    Lýðræði. list og gervigreind, ölæði, Landbúnaðarháskólinn og náttúruvefur
    Valur Ingimundarson sagnfræðingur og Jón Ólafsson heimspekingur ræða við Gunnar Smára um lýðræðið í austustu Evrópu og lýðræðisþróun í okkar heimshluta. Trump ber á góma ásamt hinum ýmsu Evrópuleiðtogum í bland við stríð, pólitík og uppgang fasisma. Hlynur Helgason, myndlistarmaður, dósent i listfræði HÍ og varaformaður Sambands íslenskra myndlistarmanna ræðir um gervigreind, myndlist, falsanir og höfundarrétt við Oddnýju Eir. Margt bendir til þess að fjárhagsleg afkoma íþróttafélaga ráði för þegar áfengi er selt á viðburðum í kringum börn. Spurt er hvort vegi þyngra, fjármál eða lýðheilsa barna. Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi segir áfengismenninguna út úr kú. Björn Þorláks ræðir við hann. Christian Schultze, umhverfisskipulagsfræðingur og landslagsarkitekt, sviðsstjóri rannsókna- og alþjóðamála í Landbúnaðarháskóla Íslands kemur þar á eftir til Oddnýjar Eirar og segir okkur frá alþjóðasamstarfi og nýjustu verkefnum og ræðir mikilvægi öflugs rannsóknarumhverfis á sviði landbúnaðar á nýjum tímum. Sólrún Harðardóttir, kennari og námsefnishöfundur lokar svo samtali kvöldsins einnig með Oddnýju og ræðir við hana um nýjan náttúruvef fyrir borgarbörn og önnur náttúrubörn.
    3 hr 36 min
  • Rauða borðið 26. maí: Samstöðin, Mótmæli, Aðildarumsókn, Akureyrar-cóvíd og Þokkabót
    Rauða borðið, mánudaginn, 26. maí.
    Samstöðin, Mótmæli, Aðildarumsókn, Akureyrar-cóvíd og Þokkabót
    Við hefjum Rauða borðið á smá spjalli um stöðu Samstöðvarinnar og kynnum síðan dagskrá kvöldsins. Við byrjum á því að fara niðrí bæ á mótmæli. María Lilja og Oddný Eir ræddu við fólk sem kom til að mótmæla brottvísun Oscars Andres Flor­ez Boca­negra. Þær hittu fyrir þjóðþekkt andlit og önnur minna þekkt, fólk sem er vant að mótmæla og aðra sem eru að uppgötva samtakamáttinn. Gunnar Smári ræðir því næst við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor í stjórnmálafræði um mögulega aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu, um muninn á krónu- og evruhagkerfinu. Og svo ræða þeir um síðustu skeyti Trump og afstöðu John Bolton, fyrrum öryggisráðgjafa, til stöðu Íslands gagnvart Bandaríkjunum. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor í stjórnmálafræði um mögulega aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu, um muninn á krónu- og evru-hagkerfinu. Og svo ræða þeir um síðustu skeyti Trump og afstöðu John Bolton, fyrrum öryggisráðgjafa, til stöðu Íslands gagnvart Bandaríkjunum. Í tímaritinu Súlur hefur birst ný grein eftir Grétar Þór Eyþórsson prófessor á Akureyri um covid-tímann á Akureyri. Grétar ræðir rannsóknina að baki þeirri grein í samtali við Björn Þorláks sem og hallarbyltingu sósíalista. Hljómsveitin Þokkabót er komin á kreik á ný en Íslendingar kannast vel við smelli fortíðar úr smiðju hljómsveitarinnar líkt og Litlir kassar. Þeir Lárus Halldór Grímsson, Ingólfur Steinsson og Halldór Gunnarsson ræða við Björn Þorláks um pólitíska texta, listina að hlusta – og margt fleira.
    3 hr 6 min
  • Synir Egils 25. maí - Stjórnin, stjórnarandstaðan, flóttabörn og mótmæli
    Sunnudagurinn 25. maí
    Synir Egils: Stjórnin, stjórnarandstaðan, flóttabörn og mótmæli
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Helga Vala Helgadóttir lögmaður, Helen María Ólafsdóttir öryggissérfræðingur og Björn Leví Gunnarsson tölvunarfræðingur og fyrrum þingmaður og ræða fréttir vikunnar og stjórnmálaástandið. María Lílja ræðir síðan við Sonju Magnúsdóttur og Svavar Jóhannsson, fósturforeldra Oscars Bocanegra Florez frá Kólumbíu, sem vísa á úr landi. Í lokin fara þeir bræður síðan yfir pólitíkina með sínu nefi.
    2 hr 10 min
  • Vikuskammtur 23. maí: Vika 21
    Föstudagur 23. maí
    Vikuskammtur: Vika 21
    Í Vikuskammtinum að þessu sinni koma að Rauða borðinu ásamt Maríu Lillju þau Guðmundur Ingi Þóroddsson, Formaður Afstöðu félags fanga. Svala Jóhannesardóttir, formaður Matthildarsamtakanna um skaðaminnkun, Sanna Magdalena Mörtudóttir, leiðtogi Sósíalista og formaður velferðarráðs Reykjavíkur og Pétur Eggerz, tæknistjóri og aðgerðasinni. Það hefur margt gengið á innanlands sem utan en hæst ber að nefna margt varðandi Gaza, mótmæli, málþing, rasisma, hnífstungu og mannskæðan bruna. Þá mælti heilbrigðisráðherra fyrir frumvarpi sem segir nikótínpúðum stríð á hendur, Trump lét gamminn geysa um hin ýmsu mál, úttekt Viðskiptaráðs um kostnað ríkis og bæja vegna latra starfsmanna vakti hörð viðbrögð, búvörulögin voru staðfest af Hæstarétti og Perlan seldist. Þá heyrum við jafnan hvað gestir okkar aðhöfðust í vikunni sem leið en þau eru öll sérstaklega iðin við baráttuna fyrir betra samfélagi.
    1 hr 11 min
  • Rauða borðið 22. maí: Sérhagsmunapot, fangar, geggjun, Gaza og frumlegur listamaður
    Fimmtudagur 22. maí
    Sérhagsmunapot, fangar, geggjun, Gaza og frumlegur listamaður
    Við hefjum leik við Rauða borðið á viðtali við framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda, Ólaf Stephensen. Hann er stóryrtur eftir dóm Hæstaréttar í búvörulagafrumvarpinu og segist hissa á ástandinu í hans gamla flokki, Sjálfstæðisflokknum. Fréttir af Gaza verða sagðar við Rauða borðið. Magga Stína var áberandi í fjölmiðlum í gær og hún vaknaði við holskeflu af viðbjóðslegum skilaboðum. Hún ræðir við Maríu Lilju um fréttir af Gaza, áreitið og ofbeldið sem aktívistar verða fyrir, fyrir það eitt að standa gegn barnamorðum. María Lilja mætti á stórmerka ráðstefnu sem Afstaða, félags fanga blés til í tilefni af 20 ára afmæli félagsins. Hún tók nokkra þátttakendur tali. Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, segir Oddnýju Eir Ævarsdóttur allt að frétta frá geggjað góðri dagskrá um geðheilbrigðismál um síðustu helgi. Við endum þáttinn í kvöld úti á landi. Egill Logi Jónasson, listamannsnafn hans er Drengurinn fengurinn, er nýr bæjarlistamaður á Akureyri og ræðir í samtali við Björn Þorláks kúnstina að vera til og það sturlaða plan að reyna að þrífast og lifa á listinni.
    2 hr 59 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

460 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

64 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners