Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Auðlindin - 15. maí
    Fimmtudagur 15. maí
    Auðlindin
    Gestir: Heiða Guðný Ásgeirsdóttir bóndi í Sveinungsvík í Þistilfirði, Haukur S Magnússon tónlistamaður og vert á Messanum Ísafirði, Aðalsteinn Baldursson verkalýðsfrömuður á Húsavík, Eyþór Stefáns, sjómaður á Borgarfirði eystri og bæjarfulltrúi í Múlaþingi og Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri Mýrdalshrepps.
    Hvað er að frétta?
    Fyrir norðan er það ekki síst að það hriktir í stoðum atvinnulífsins vegna Kísilverksmiðju á Bakka.
    Veðrið? Hitabylgjan
    Ferðaþjónustan í sumar?
    Listir-menning?
    Lífið?
    Sjávarútvegur ofl staða sveitarfélaga
    56 min
  • Rauða borðið 14. maí - Trump, náttúra, vinstrið, reynsluboltar, norðurslóðir og blíðan
    Miðvikudagur 14. maí
    Trump, náttúra, vinstrið, reynsluboltar, norðurslóðir og blíðan
    Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um ferð Trump til Sádí Arabíu og nágrannalanda og um mögulegar friðarviðræður í Istanbúl á morgun. Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, segir Oddnýju Eir hvernig þrengt er að starfi frjálsra félagasamtaka í náttúruvernd. Einar Már Jónsson, sagnfræðingur, rithöfundur og prófessor við Sorbonne-háskóla í París ræðir við Oddnýju Eir um möguleikann á vinstri breiðfylkingu í pólitík dagsins. Reynsluboltar heimsækja Sigurjón Magnús og ræða fréttir dagsins: Erna Indriðadóttir fréttakona, Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri og Páll Ásgeir Ásgeirsson fjallamaður. Magnús Árni Skjöld, dósent og stjórnmálafræðingur við Háskólann á Bifröst, ræðir við Gunnar Smára um Ísland og norðurslóðir í breyttum heimi, ekki síst vegna stjórnmálalegrar óvissu í Bandaríkjum Trump. Trausti Jónsson veðurfræðingur upplýsir í samtali við Björn Þorláks að ef undan er skilinn janúar hafi veður hér á landi verið mjög milt og gott allt árið, svo gott að sætir tíðindum.
    4 hr 19 min
  • Rauða borðið 13. maí - Fordómar, njósnir, arkitektúr, fegurð, dýravernd og félagsvandi fíkniefna
    Þriðjudagur 13. maí
    Fordómar, njósnir, arkitektúr, fegurð, dýravernd og félagsvandi fíkniefna
    Við hefjum Rauða borðið á samræðu um leigubílamálið; Íslendingur að nafni Navid Nouri segir svo komið að honum sé ekki stætt að stunda akstur leigubíls, líkt og hann hefur gert að atvinnu í nokkur ár, vegna aukinna fordóma í samfélaginu. Eiginkona Navids, Nanna Hlín Halldórsdóttir mætti með honum til Maríu Lilju. Jón Þórisson, arkitekt, segir frá stríðinu um söguskýringar á hruninu í tengslum við ásakanir á hendur sérstökum saksóknara, ræðir um njósnir og spillingu og segir okkur af samstarfi sínu við Evu Joly eftir hrun. Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt ræðir húsin í borginni í samtali við Björn Þorláks, um pólitík byggingarlistar, vöntun á frumkvæði og fegurð. Ágúst Ólafur Ágústsson, ritari Dýravelferðarsamtaka Íslands, mætir til Maríu Lilju og fer yfir hina meintu öfga í dýravernd. Eru öfgarnar kannski úr hinni áttinni? Við ræðum að lokum um vímuefnavandann. Erla Björg Sigurðardóttir, lektor í félagsráðgjöf og framkvæmdastýra á áfangaheimili fyrir konur, Helena Gísladóttir, dagskrárstjóri meðferðar Krýsuvíkursamtakanna og MA-nemi í félagsráðgjöf og Sara Karlsdóttir löggiltur áfengis og vímuefnaráðgjafi og dagskrárstjóri meðferðar hjá Samhjálp segja Gunnari Smára frá því hvernig félagsleg staða fólks með vímuefnaraskanir getur grafið undan möguleikum þess á bata.
    4 hr 16 min
  • Rauða borðið 12. maí - Trillusjómenn, spilling, fjölmiðlar, ofbeldi feðra, Me-dagurinn og heimþrá
    Mánudagur 12. maí
    Trillusjómenn, spilling, fjölmiðlar, ofbeldi feðra, Me-dagurinn og heimþrá
    Við hefjum Rauða borðið á spjalli Maríu Lilju við trillusjómenn sem voru fastir í landi vegna öldugangs í Faxaflóa. Hún kíkti um borð í Ríkey og ræddi við bræðurna um borð um daginn og sjóinn. Svo ræðir Björn Þorláks við Þorvald Logason spillingarfræðing um siðferðilegar meinsemdir líðandi stundar í þjóðfélaginu, um fjölmiðla og vaxandi ítök útgerðarinnar í upplýsingaheiminum, sölu Íslandsbanka og bankahrunið. Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir varði um daginn doktorsritgerð sína um feður sem beitt hafa ofbeldi. Hún kemur að Rauða borðinu og segir Gunnari Smára frá hvers hún varð vísari, veltir fyrir sér hvort ofbeldismenn geti breyst og hvernig samfélagið bregst við ofbeldinu og þeim sem beita því.Eyjólfur Eyvindsson mætir til Maríu Lilju og ræðir fréttir úr ríkjum sósíalismans. Þau fara á ferðalag um heiminn og ræða meðal annars nýtt bandalag Búrkína Fasó við Venesúela. Helga Edwardsdóttir, formaður ME félags Íslands og Stefanía Veiga Sigurjónsdóttir, flugfreyja og aðstandandi, ræða við Oddnýju Eir um ME á Íslandi í tilefni Alþjóðlegs dags ME vitundarvakningar. Æ fleiri glíma við langvarandi afleiðingar sýkinga og við þurfum að vera betur vakandi fyrir alvarlegum áhrifum þeirra á líf okkar. Jasmina Vajzovic sem fæddist í Bosníu en flutti ung til Íslands ræðir tilfinningar eins og heimþrá og ber saman kosti og galla landanna tveggja. Flókið getur verið að skilja táknkerfi Íslendinga, segir Jasmina. Björn Þorláks ræðir við hana í lok þáttar.
    4 hr 32 min
  • Synir Egils: Auðlindir, innviðir, traust og svik
    Sunnudagurinn 11. maí
    Synir Egils: Auðlindir, innviðir, traust og svik
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessi sinni koma þau fyrst Alma Ýr Ingólfsdóttir formaður ÖBÍ og þingmennirnir Halla Hrund Logadóttir og Sigmar Guðmundsson. Síðan taka þau við Árni Helgason lögmaður og varaþingmaður, Lilja Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknarflokksins og Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar og ræða veiðigjöld, bankasölu og fleira. Í lokin taka þeir bræður stöðuna á pólitíkinni með sínu nefi.
    3 hr 5 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Pétur Þorsteinsson
    Laugardagur 10. maí
    Helgi-spjall: Pétur Þorsteinsson
    Í Helgispjalli Ruða borðsins er Pétur Þorsteinsson prestur óháða safnaðarins, sem stendur á tímamótum. Á sunnudag messar hann yfir sóknarbörnum sínum í síðasta skipti, hann kallar það lífslokamessu. Pétur hefur lengi verið þekktur fyrir petrískuna en með gamansömum hætti hefur hann fundið upp nýyrði og gefið út, orð sem gjarnan snúa upp á tunguna. En hver er manneskjan á bak við tunguna og húmorinn? Björn Þorláks reynir að komast undir yfirborðið.
    1 hr 45 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 19
    Föstudagur 9. maí
    Vikuskammtur: Vika 19
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau María Hjálmtýsdóttir kennari, Margrét Örnólfsdóttir handritshöfundur, Haukur Már Helgason rithöfundur og Ása Björk Ólafsdóttir prestur og ræða fréttir vikunnar þar sem finna á njósnir, svik, deilur, þjóðarmorð, frið og nýjan páfa.
    1 hr 34 min
  • Rauða borðið 8. maí - Trillur, Grænland, ófriður, trans, þingkona og börn
    Fimmtudagur 8. maí
    Trillur, Grænland, ófriður, trans, þingkona og börn
    Strandveiði byrjaði í vikunni. Gunnar Smári ræðir við Kjartan Sveinsson, formann Félags strandveiðimanna, um gildi veiðanna og verðmæti fyrir þjóðarbúið. Ný sláandi heimildarmynd um uppljóstrun á áður óþekktu arðráni á Grænlandi er til umræðu hjá Oddnýju Eir. Sólveig Ásta Sigurðardóttir, bókmenntafræðingur og ný-doktor á hugvísindasviði HÍ, Már Wolfgang Mixa, dósent í Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, Bryndís Björnsdóttir, myndlistarkona og doktorsnemi í mannfræði og Linda Lyberth Kristiansen sérfræðingur i málefnum árþjóða hjá Arctic Circle, ræða um Grænland og nýlenduhyggju. Átök hafa brotist út milli Indlands og Pakistan og bæta þau enn við ófriðinn í heiminum. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor á Akureyri um þau átök en ekki síður um stefnu Bandaríkjastjórnar í alþjóðamálum og þá sérstaklega í Evrópu. Arna Magnea Danks, leikkona, leikstjóri, kennari, og mannréttinda-fréttaritari okkar segir Oddnýju Eir frá nýjustu Trans-tíðindin í tengslum við pólitík heima og heiman. Hinn óþekkti þingmaður þessarar viku er tónlistarkonan Ása Berglind Hjálmarsdóttir, ný þingkona Samfylkingarinnar. Ása Berglind ræðir líf sitt á persónulegum nótum við Björn Þorláks en í þættinum eru flest umræðuefni leyfð - önnur er pólitík! Eydís Ásbjörnsdóttir, þingkona og talsmaður barna á Alþingi segir okkur Oddnýju Eir frá helstu baráttumálum í málefnum barna um land allt og sérstaklega út frá sjónarhorni landsbyggðarinnar.
    5 hr 3 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

460 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

64 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners