Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið 7. maí - Þjóðarmorð, reynsluboltar, fríhöfn, rafmagnsleysi, þroski barna og bridge
    Miðvikudagur 7. maí
    Þjóðarmorð, reynsluboltar, fríhöfn, rafmagnsleysi, þroski barna og bridge
    Gunnar Smári slær á þráðinn til Qussay Odeh í Jerúsalem og innir hann eftir viðbrögðum Palestínumanna við þjóðarmorðinu og vaxandi kúgun. Sigurjón fær til sín reynslubolta að ræða samfélagsmál: Ásmundur Friðriksson fyrrverandi þingmaður, Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og Jón G. Hauksson blaðamaður ræða helstu fréttamál. Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir Gunnar Smára hvernig erlent fyrirtæki sem rekur Fríhöfnina á Keflavíkurflugvelli misnotar einokunarstöðu sína til þrýsta niður verði frá birgjum. Fyrst og fremst til að auka eigin hagnað. Árni Baldur Möller verkfræðingur og Jón Skafti Gestsson hagfræðingur hjá Landsneti ræða um stórfellt rafmagnsleysi á Íberíuskaganum og velta fyrir sér í samtali við Gunnar Smára hvort sambærilegur skaði gæti orðið vegna veikleika flutningskerfisins hérlendis. Að fæðast snemma á árinu er stærri breyta en áður hefur verið talið þegar kemur að því að börn fái tækifæri til að keppa í úrvalshópum í námi og íþróttum. Daði Rafnsson doktorsnemi segir Birni Þorláks frá því hverju það skiptir að fæðast snemma árs eða seint. Bridgeþáttur Samstöðvarinnar fjallar í kvöld um úrslit Íslandsmótsins í sveitakeppni og hið stórskemmtilega kjördæmamót. Aðalsteinn Jörgensen stigahæsti spilari landsins og Ragnar Magnússon menntaskólakennari og glænýr Íslandsmeistari ræða við Björn Þorláks þáttastjórnanda og ber doblaða alslemmu á góma!
    4 hr 44 min
  • Sósíalísk stjórnarandstaða - 13. þáttur: Veiðigjöld og vald - hver á auðlindina?
    Miðvikudagur 7. maí
    Sósíalísk stjórnarandstaða - 13. þáttur
    Gestur þáttarins er Kári Jónsson, sósíalisti sem hefur starfað við ýmis störf í sjávarútveginum og hefur séð og fundið þær breytingar sem kvótakerfið hefur haft í för með sér.
    Fiskurinn í sjónum, hann hefur lengi verið gullkista þjóðarinnar. Í gegnum aldirnar hefur hann fætt okkur, haldið samfélögum gangandi og tryggt Íslandi sess á alþjóðlegum markaði. En á sama tíma hefur spurningin alltaf hangið yfir: Hver á fiskinn?
    Í þessum þætti ætlum við meðal annars rýna í frumvarp sem nú liggur fyrir Alþingi – um hækkun veiðigjalda. Með öðrum orðum: að útgerðir greiði hærra verð fyrir að nýta fiskimiðin okkar. En hvað þýðir það í raun? Þetta er réttlætismál fyrir land og þjóð.
    Hlusta má á þáttinn á youtube, í útvarpinu á FM 89.1, í appinu spilarinn.is, sjónvarpi Símans á rás 5 og á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Deildu ef þú vilt sjá réttlátara samfélag!
    1 hr
  • Rauða borðið 6. maí: Húsnæðismál, mótmæli, Gaza, Þýskaland, aðkomufólk, hannyrðir og maðkabækur
    Þriðjudagur 6. maí
    Húsnæðismál, mótmæli, Gaza, Þýskaland, aðkomufólk, hannyrðir og maðkabækur
    Ragnar Þór Ingólfsson, þingmaður Flokks fólksins, er formaður átakshóps ríkisstjórnarinnar um húsnæðismál. Sem eru í tómu tjóni. Ragnar segir Gunnari Smára hvernig hann ætlar að bjarga málunum. María Lilja ræðir við mótmælendur við ríkisstjórnarfundinn í morgun, fólk sem krefst aðgerða íslenskra stjórnvalda vegna þjóðarmorðs í Gaza. Guðný Gústafsdóttir, Júlía Björnsdóttir og Elínborg Angantýsdóttir hafa allar verið í virkum samskiptum við fólk og fjölskyldur sem búa við yfirstandandi þjóðarmorð á Gaza. Þær segja Laufey frá sínu fólki þar og þeirra daglegu baráttu um lífsnauðsynjar. Margt er upp í loft í þýskum stjórnmálum. Ný ríkisstjórn fékk ekki nægan stuðning í þinginu í fyrstu tilraun og vinsælasti flokkurinn í skoðanakönnunum er sagður vinna gegn mannhelgi er hornsteinn stjórnarskrárinnar. Ragnar Hjálmarsson stjórnmálafræðingur í Berlín fer yfir stöðuna í símtali við Gunnar Smára. Halldór S. Guðjónsson, dósent við Háskóla Íslands, vinnur að athugun á hversu margt af því fólki sem hefur flutt til Íslands mun eyða ævikvöldinu á Íslandi og hversu margt snýr til baka. Hann ræðir við Sigurjón um málið. Najlaa Atillah ræðir við Maríu Lilju um mikilvægar hefðir í palestínsku handverki og hvers vegna hún hefur tekið það upp að kenna Íslendingum palestínskan útsaum í miðju þjóðarmorði á fólkinu hennar. Íslenskar „maðkabækur“ eru til sölu á Amazon. Bækurnar fjalla ekki um orma heldur eru þetta matreiðslubækur. Bjarki Ármannsson, doktorsnemi í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands, vakti athygli á bókunum á bloggsíðu sinni Bjarkamál en hann ræðir við Maríu Lilju um málvísindi með tilliti til gervigreindar.
    4 hr 20 min
  • Rauða borðið: Gaza, Cecot, 500 milljarðar, tollar, kosningar og fangelsi
    Mánudagur 5. maí
    Rauða borðið: Gaza, Cecot, 500 milljarðar, tollar, kosningar og fangelsi
    Ísraelsstjórn samþykkti í morgun áætlun um að herða hernaðaraðgerðir á Gaza og leggja alfarið undir sig landsvæðið. Stjórnin hvatti íbúa til að færa sig til suðurs og von er á miklum blóðsúthellingum. Ingólfur Gíslason, kennari við menntavísindasvið er vel inni í málunum og ræðir við Maríu Lilju um nýjustu fréttir frá svæðinu. Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar ræðir við Sigurjón M um hve flókið það virðist að eiga næstum 500 milljarða króna á Ís­landi amk fyrir stórútgerðina. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, efast um rétt Bandaríkjamanna á réttlátri málsmeðferð, eins og stjórnarskrá Bandaríkjanna kveður á um. Hann hefur sent hundruði “ólöglegra innflytjenda” í öryggisfangelsið Cecot í el Salvador. Eyjólfur Eyvindsson, tónlistamaður er sérfróður um fangelsið og ræðir við Maríu Lilju. Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur ræðir við Gunnar Smára um tolla og efnahagsstefnu Donald Trump, sem hann segir að byggi á hagfræðikenningum Ravi Batra og sé raunhæf leið til að vinna gegn ójöfnuði í Bandaríkjunum. Páll Þórðarson efnafræðiprófessor í Sydney segir Gunnari Smára frá kosningabaráttunni í Ástralíu þar sem mikill viðsnúningur varð, það sem leit út fyrir að geta orðið stórsigur íhaldsmanna varð á endanum sögulegur ósigur. Er þetta enn eitt merkið um áhrifin af Trump, sem virðist hafa kallað bakslag yfir nýja hægrið. Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu - félags fanga, tekur að sér leiðsegja Gunnari Smára um yfirfull fangelsi og langa biðlista. Hverjir sitja í fangelsi sem ekki ættu að vera þar og hverjir komast ekki í afplánun?
    4 hr 38 min
  • Synir Egils 4. maí: Njósnir, verðbólga, veiðigjöld og íþróttir
    Sunnudagurinn 4. maí
    Synir Egils: Njósnir, verðbólga, veiðigjöld og íþróttir
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Svandís Svavarsdóttir formaður Vg, Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður og væntanlegur þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir fyrrverandi þingkona Framsóknar og ræða fréttir vikunnar, átök og umræðu í samfélaginu. Síðan koma þrír af frambjóðendum til formanns Íþrótta- og ólympíusambands Íslands: Valdimar Leó Friðriksson, Magnús Ragnarsson og Brynjar Karl Sigurðsson og ræða íþróttahreyfinguna. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
    2 hr 24 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: GVA
    Laugardagur 3. maí
    Helgi-spjall: GVA
    Gunnar V. Andrésson ræðir um æsku sína og uppruna og samfélagið sem hann skráði sem ljósmyndari í rúma hálfa öld, en stór sýning með myndum hans sem blaðaljósmyndari verður opnuð í Ljósmyndasafninu í dag.
    1 hr 41 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 18
    Föstudagur 2. maí
    Vikuskammtur: Vika 18
    Stór fréttavika að baki og margt að ræða. Ásamt Maríu Lilju mæta til borðs þau: Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar, samtaka gegn kynbundu ofbeldi, Pétur Eggerz tæknistjóri og aðgerðasinni, Birkir Fjalar Viðarsson, metalhaus og þreyttur faðir og Helga Þórey Jónsdóttir, kennari og menningarfræðingur. Saman fara þau yfir þetta helsta og áhugaverðasta eins og t.d. rasisma og falsfréttir, bænastað á Keflavíkurflugvelli og furðulega andstöðu við iðkun trúarbragða á meðal leigubílstjóra. Við ræðum um opinn fund Sjórnskipunar -og eftirlitsnefndar um meðferð mála tengdum Ásthildi Lóu. Kveikur afhjúpaði njósnir lögreglumanna fyrir auðmenn, írsku rapparana í Kneecap og tónleika þeirra á Coachella sem orðnir eru að utanríkismáli í Bretlandi og Bandaríkjunum. Förum yfir nýafstaðna kröfugöngu á 1. maí, rafmagnsleysi á Spáni og fregnir af því að Kári Stef hafi látið af störfum fyrir Erfðagreiningu. Nágrannar hafa fengið nóg af ólykt og öskufalli sem fylgir líkbrennslu í Fossvogi. Þá undirrituðu Bandaríkin og Úkraína milli sín auðlindasamning sem á sér fáar hliðstæður, Ísrael brennur og Palestína bauð fram aðstoð við að ná tökum á skógareldum. Það er ekkert lát á brottvísunum flóttafólks, ástandið á Gaza komst einhvernveginn á nýjan botn í hryllingi. Dómur yfir unglingsdreng sem varð Bryndísi Klöru að bana og undrun margra fjölmiðlaneytenda yfir skipun Heimis Más, fjölmiðlafulltrúa Flokks fólksins í stjórn RÚV. Allskonar að frétta sumt sorglegt annað vont, skrítið eða skemmtilegt.
    1 hr 34 min
  • Sósíalísk stjórnarandstaða - Sósíalistar í Hafnarfirði
    Miðvikudagur 30. apríl
    Sósíalísk stjórnarandstaða - 13. þáttur
    Gestir þáttarins eru félagar í Sósíalistaflokknum, þau Esther Bíbí Ásgeirsdóttir, tónlistarkona og starfskona Kvikmyndasafns Íslands, Jón Hallur Haraldsson forritari, og Sanna Magdalena Mörtudóttir, forseti borgarstjórnar, formaður velferðarráðs og oddviti Sósíalistaflokksins í Reykjavík. Í þættinum munum við beina sjónum okkar að Hafnarfirði, bænum þar sem hraunið mætir hafinu, ræða hvernig er að búa í Hafnarfirði, hvað skiptir þau máli, hvaða mál þau myndu leggja áherslu á og hvort Sósíalistaflokkurinn eigi erindi við íbúa Hafnarfjarðar í næstkomandi sveitarstjórnarkosningum.
    57 min
  • Rauða borðið 30. apríl: Njósnir, reynsluboltar, Stormur, Húsavíkurradíó og múslimahatur
    Miðvikudagur 30. apríl
    Njósnir, reynsluboltar, Stormur, Húsavíkurradíó og múslimahatur
    Vilhjálmur Bjarnason ræðir við Sigurjón M. um mál málanna þennan miðvikudaginn, afhjúpun Kveiks en Vilhjálmur er einn þeirra sem voru óafvitandi um nokkurt skeið undir vökulu auga njósateymis á vegum Björgólfs Thors. Reynsluboltar Sigurjóns M. að þessu sinni eru þau Þórunn Sigurðardóttir, Margrét Saunders, og Páll Magnússon. Þau ræða hitamálin í samfélaginu, útgerðina og margt fleira. Una Torfa og Unnur Ösp Stefánsdóttir sömdu söngleikinn Storm sem Þjóðleikhúsið sýnir. Gunnar Smári og Sóley Lóa Smáradóttir ræða við þær um sýninguna, en ekki ungu kynslóðina sem verkið fjallar um. Aðalsteinn Árni Baldursson verkalýðsforingi á Húsavík ræðir við Björn Þorláks á zoom um stöðu atvinnumála, verkalýðshátíðina á morgun og fleira. Hjónin Mahdya Malik og Mansoor Malik mæta til Maríu Lilju og halda áfram samtalinu um útlendingaandúð og aukna hatursorðræðu í garð múslima eftir mikla dreifingu falsfréttar af kynferðisbroti á dögunum.
    3 hr 45 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

460 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

64 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners