Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið 29. apríl: Blaðamenn, gervigreind, Trump, Hafró, bólusetningar og pílagrímar
    Þriðjudagur 29. apríl
    Blaðamenn, gervigreind, Trump, Hafró, bólusetningar og pílagrímar
    Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélagsins ræðir harða gagnrýni á rekstur félagsins og veika stöðu blaðamennsku. Pólitísk afskipti af fréttamennsku, fjölmiðlastyrkir og fleira verður til umræðu í samtali hennar við Björn Þorláksson. Þórhallur Magnússon, rannsóknarprófessor og tónlistarmaður, sérfræðingur í skapandi gervigreindarfræðum, ræðir við Oddnýju Eir um hver muni eiga og stjórna gervigreindinni. Haraldur Sigurðsson jarðfræðingur hefur búið í Bandaríkjunum í rúma hálfa öld. Gunnar Smári hringir í hann og spyr hvernig honum líði í ríki Trump. Jón Kristjánsson fiskifræðingur hefur aldrei verið skeptískari á fiskveiðistjórnun og gengur svo langt að tala um hryðjuverk í því samhengi. Björn Þorláks ræðir við hann um stofna sem éta sjálfa sig og meint úrræða- og þjónustuleysi Hafró. Kristjana Hrönn Ásbjörnsdóttir, faraldsfræðingur við Háskóla Íslands, ræðir um bólusetningar og helstu áskoranir og deilur þeim tengdar við Oddnýju Eir. Ólafur Ingólfsson jarðfræðingur hefur gefið út bók um andlega vakningu sem hann varð fyrir þegar hann fór í ansi langan göngutúr. Einelti á vinnustað leiddi til þess að hann gekk 2.200 kílómetra.
    4 hr 51 min
  • Rauða borðið 28. apríl - Kynferðisbrot, óréttmæt vitnisburðarvæðing, fjölmiðlar og bókmenntahátíð
    Mánudagur 28. apríl
    Kynferðisbrot, óréttmæt vitnisburðarvæðing, fjölmiðlar og bókmenntahátíð
    Maria Lilja fær til sín þær Drífu Snædal, talskonu Stígamóta og Dr. Margréti Valdimarsdóttur til að ræða afbrotatölfræði, falsfréttir, rasisma og nauðgunarmál. Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson, heimspekingur og ritstjóri Hugar ræðir við Oddnýju Eir um dómstól götunnar og óréttmæta vitnisburðavæðingu. Umræða um fjölmiðla verður á sínum stað eins og alltaf á mánudögum. Ágúst Borgþór Sverrisson, fréttastjóri DV, ræðir í samtali við Björn Þorláks gagnrýni á blaðamenn í viðkvæmum fréttamálum og hvernig auka megi fjölmiðlalæsi almennings og stofnana. Valur Gunnarsson, Maó Alheimsdóttir og Jórunn Sigurðardóttir flytja okkur fréttir frá Bókmenntahátíð með Oddnýju Eir.
    4 hr 6 min
  • Synir Egils 27. apríl - Átök og umræða, fréttir og pólitík
    Sunnudagurinn 27. apríl
    Synir Egils: Átök og umræða, fréttir og pólitík
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau fyrst Halla Gunnarsdóttir formaður VR, Heimir Már Pétursson framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins og Sanna Magdalena Mörtudóttir forseti borgarstjórnar og síðan þau Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir prófessor, Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna og Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur og ræða málin. Þeir bræður taka líka púlsinn á pólitíkinni.
    2 hr 23 min
  • Hipp hopp varpið - 4. þáttur: DJ Platurn

    Atriðaorðaskrá 

    Madonna 

    U2 

    MTV, tónlistarsjónvarp 

    Michael Jackson “Billy Jean” 

    Run Dmc, Raising hell 

    Run Dmc & Aerosmith “Walk this way” 

    Pop lock, dans 

    Electric boogaloo 

    West coast electro (vesturstranda elektró/raftónlist) 

    Boom bap 

    Gangstarr 

    KRS-One 

    Techincs SL 1200 plötuspilari 

    Stevie Wonder 

    Otis Redding 

    Old school hipp hopp, snemma á níunda tug síðustu aldar (upp úr 1980) 

    Beastie boys, platan Paul's boutique, lag: “What comes around” 

    Reggae tónlist, "The harder they come" (tónlist úr kvikmynd) 

    Source tímaritið 

    Ice T “I’m your pusher” 

    Curtis Mayfield, platan "Superfly" lag: "Pusherman" 

    Biz Markie, platan All samples cleared 

    Stetasonic, “Talking all that jazz” 

    Trommuheilar, líkt og TR-808 

    James Brown, “Funky drummer” 

    Quincy Jones 

    Roy Ayers 

    Copenhaguen Jazz festival 

    Jazz tónlist 

    Donald Byrd 

    Dusty fingers safnplötur: https://open.spotify.com/playlist/1hljQ3igAQh4GQ6YNuNcD5?si=e8fefd17e0984780 

    Fat beats plötubúðakeðja 

    Funk tónlist, 

    Parliament, 

    Funkadelic, 

    George Clinton 

    Hieroglyphics 

    Quannum 

    Blackalicious 

    Dj Shadow 

    Blue note plötuútgáfan 

    G funk, tónlistarstefna innan hipp hopps 

    Akai S-900, glefsutæki (sampler) vinsælt hjá taktsmiðum hipp hopps 

    Eazy-E, platan “Eazy-duz-it” 

    “2 hard muthafuckas” (lag af Eazy-duz-it) 

    Stan the gitar man 

    Blaz Roca 

    Dj Pooh 

    Dj Yella 

    Break dance, danssporið þyrlan 

    Latinos, fólk af rómansk amerískum uppruna 

    Arabian prince, 

    Egyptian lover 

    EDM, raftónlist 

    Arabian prince ásamt N.W.A, lagið “Panic zone” 

    Dr. Dre & Dj Yella, hljómsveitin World class wreckin’ cru 

    Electro taktar og textaspuni (freestyle) 

    Debbie Debb “When I hear music” 

    Kendrick Lamar “I got weekend” 

    Popping culture, dans menning

    Syrpuspólur (mix tape) 

    Amiba, plötubúð í Berkeley 

    Djplaturn.com 

    45session, útgáfa á 7” plötum 

    Vínylplötur 

    Dj Magic (Gísli Galdur) 

    Chic, hljómsveit 

    Skífuskank (turntableism) 

    Platurn, á instagram 

    Breaking the ice, syrpa frá Dj Platurn: https://soundcloud.com/platurn/sets/breaking-the-ice 

    Myka 9, úr hljómsveitinni Freestyle fellowship 

    J-Ro, úr hljómsveitinni Alkaholics

    1 hr 5 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Heiða Björg
    Laugardagur 26, apríl
    Helgi-spjall: Heiða Björg
    Heiða Björg Hilmisdóttir, Borgarstjóri mætir á persónulegu nótunum í Helgi-spjall hjá Maríu Lilju. Skemmtilegt samtal um sveitastúlku sem verður að Borgarstjóra, áskoranir móður langveiks barns, næringarfræði, grænt gímald, flóttafólk og hlutverk borgarinnar í friðarumleitunum í veröldinni.
    1 hr 14 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur - Vika 17
    Föstudagur 25. apríl
    Vikuskammtur: Vika 17
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Steinar Harðarson, athafnastjóri hjá Siðmennt og gjaldkeri Vg, Helga Arnardóttir fjölmiðlakona, Margrét Helga Erlingsdóttir fréttakona og Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af deilum og átökum um grundvallarþætti samfélagsins, mannréttindi og frelsi.
    1 hr 29 min
  • Rauða borðið 23. apríl: Reynsluboltar, sumar-áformin, óþekkti þingmaðurinn, Dýrið og sagnvandamálin
    Miðvikudagur 23. apríl
    Reynsluboltar, sumar-áformin, óþekkti þingmaðurinn, Dýrið og sagnvandamálin.
    Við hefjum samræðuna við Rauða borð kvöldsins á Reynsluboltunum. Sigurjón Magnús Egilsson fær til sín fína gesti, þau Oddnýju Harðardóttur, Lárus Guðmundsson, Jakob Frímann og Ragnheiði Ríkharðsdóttur. Þau ræða um mannlífið, pólitíkina hér og erlendis og margt annað, veiðigjöld, skólamat, páfa. María Lilja tók miðbæjarbúana tali á síðasta vetrardegi og spurði um sumar-áform og skil. Ólafur Adolfsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mætir til Björns Þorlákssonar sem óþekkti þingmaðurinn í kvöld. Ólafur er nýr þingmaður og hefur frá mörgu að segja. Við fræðumst síðan um Dýrið, nýstofnuð hagsmunasamtök mótmælenda en María Lilja fær til sín Daníel Thor Bjarnason en hann er einn af nímenningunum sem kærðu ríkið, sem var síðar sýknað, fyrir lögregluofbeldi á mótmælum í Skuggasundi. Í bridgeþætti Samstöðvar verður rætt við þá Ómar Olgeirsson og Guðmund Snorrason, sem báðir hafa spilað í íslenska landsliðinu. Þeir eru jafnframt báðir að fara að spila í úrslitum Íslandsmótsins í sveitakeppni sem hefjast á morgun. Í spjalli við Björn Þorláks ræða þeir félagar það helsta í undankeppninni á dögunum. Þá verða tvö sagnvandamál krufin.
    4 hr 9 min
  • Hipp-hopp varpið - 3. þáttur: Kalliman Jah og Gnúsi Yones
    Föstudagur 18. apríl
    Hipp-hopp varpið - 3. þáttur
    Laufey og Sesar fá til sín góða gesti, bræðurna Karl Kristján Davíðsson (Charlie D/KallimanJah/Youze/UC) og Magnús Jónsson (Gnúsi Yones/Magse/Maximus), sem hafa komið víða við í íslenskri tónlistarmenningu og víðar. Bræðurnir segja okkur frá sínum fyrstu kynnum af hipp-hoppi og ferðalagi sínu um menningarheim þess.
    Lagalista við þennan þátt má finna hér:
    Spotify: https://open.spotify.com/playlist/0vVKy5JHmSboTswFxMCoAT?si=25c58a52b7f3481f
    Tidal: https://tidal.com/browse/playlist/df45559d-7bb3-4cd4-b37b-38a58b009ba4
    Linkar á SoundCloud:
    KallimanJah & Askur Yggdrasil Sound:
    https://on.soundcloud.com/iUC8KrQH6391upPc6
    https://on.soundcloud.com/LhJiV6tRmA5efGMs7
    https://on.soundcloud.com/MMRtmoDhbERVd8S4A
    KallimanJah - ný tónlist á Spotify
    https://open.spotify.com/track/1orDqHvHTDR0PyGjqJyJG7?si=yKaDvyGgRyulwty-whDCtg
    Heimasíða með myndlist eftir Kalla Youze / KallimanJah:
    www.ucartwork.com
    1 hr 20 min
  • Rauður raunveruleiki - Dystópískir tímar, stéttabaráttan og framtíðin
    Davíð Aron Routley, Halldór Ólafsson og Sigurrós Eggertsdóttir tala við Anitu Da Silvu Bjarnadóttur og Karl Héðinn Kristjánsson um nútímann, um sósíalisma og stórtíðindi undanfarinna vikna.
    Er fólk hræddara við félagshyggju en áframhaldandi kapítalisma? Munu tollar Trump reisa við Bandaríkin? Er enginn valkostur nema áframhaldandi kapítalismi?
    1 hr 6 min
  • Hipp hopp varpið - 2. þáttur: Þórdís Claessen
    Föstudagur 11. apríl
    Hipp hopp varpið - 2. þáttur
    í þessum þætti ræðir Sesar A við Þórdísi Claessen um hennar fyrstu kynni af, og lífinu með, hipp-hoppi. Þórdís breikaði í Breiðholti, og kynntist Hipp Hoppinu um miðjan níunda áratuginn þegar hún var í barnaskóla. Kraftur þessarar hreyfingar greip hana samstundis og mótaði að einhverju leyti hennar líf. Hún gaf út bók um íslenskt graffíti fyrir nokkrum árum, hefur tekið virkan þátt í tónlistarlífinu og starfað lengi við grafíska hönnun og myndlist. Síðustu árin hefur hún snúið sér að mannlífsskoðun í dagskrárgerð Landans á RÚV og einnig einbeitt sér mikið að bassaleik með sínum hljómsveitum, enda tónlistin hennar næring.
    53 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

460 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

64 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners