Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið 22. apríl - Flóttabarn, páfi, kvóti, kvikmyndaskóli, ljósvíkingar og torfbæir
    Þriðjudagur 22.april
    Flóttabarn, páfi, kvóti, kvikmyndaskóli, ljósvíkingar og torfbæir
    María Lilja fer með okkur á mótmæli við dómsmálaráðuneytið vegna brottvísunar Oscar Anders Florez Bocanegra, sautján ára kólumbísks drengs. Gunnar Smári ræðir við Pétur Pétursson guðfræðiprófessor um Frans páfa, sem Pétur hitti á sínum tíma og sem hafði mikil áhrif á hann eins og heiminn allan. Björn Ólafsson, útgerðartæknir og fyrrum sjómaður, gagnrýnir forstjóra Hafró og ósannindi sem tengjast loðnu, humar og þorski í samtali við Björn Þorláks. Böðvar Bjarki Pétursson stofnandi um Kvikmyndaskólann segir Gunnari Smára sögu skólans, sem hann segir að hafi verið drepinn af embættismönnum. Trans-fréttaritari Rauða borðsins, Arna Magnea Danks, mannréttinda-aktívisti, áhættuleikstjóri og leikkona, ræðir við Oddnýju Eir um myndina Ljósvíkingar. Sigurjón B. Hafsteinsson, prófessor við Háskólann og mannfræðingur, segir Birni Þorláks frá því þegar torfbæir voru víðast hvar jafnaðir við jörðu á öld steinsteypunnar.
    5 hr 10 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 15
    Föstudagur 11. apríl
    Vikuskammtur: Vika 15
    Í Vikuskammtinn mæta að þessu sinni Rauða borðs-liðar Samstöðvarinnar og gera upp samræðu vikunnar og ársins og ræða um persónuleg tengsl sín við páska. Gunnar Smári og Sigurjón Magnús, Björn, María Lilja og Oddný Eir ásamt Laufeyju Líndal spyrja hvert annað spjörunum úr.
    1 hr 16 min
  • Rauða borðið 9. apríl - Stjórnarandstaða, tollastríð, reynsluboltar, dauðastríð, þingmaður, vá og ópera
    Miðvikudagur 9. apríl
    Stjórnarandstaða, tollastríð, reynsluboltar, dauðastríð, óþekktur þingmaður, vá og ópera
    Er Sjálfstæðisflokkurinn að missa það? Þannig spyr einn af þingmönnum ríkisstjórnarinnar, Sigurjón Þórðarson sem ræðir um grímulaust málþóf minnihlutans, fýlu, frekju og eignarhald í spjalli við Björn Þorláks. Már Wolfgang Mixa, dósent við viðskiptafræðideild HÍ, ræðir um tolla og efnahagsstefnu Trump við Gunnar Smára. Reynsluboltarnir koma í spjall við Sigurjón Magnús: Bolli Héðinsson, hagfræðingur Einar Kárason rithöfundur Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur og fyrrum þingkona. Mest bar á umræðunni um veiðigjöld útgerðarinnar. Og auðvitað Donald Trump. Fyrsta langreyðurin sem Hvalur hf. skaut eftir að veiðar hófust á ný, eftir tímabundna stöðvun, háði 35 mínútna dauðastríð. María Lilja fær til sín þær Rósu Líf Darradóttur, lækni og formann samtaka um dýravelferð og stjórnarkonu Hvalavina auk Valgerðar Árnadóttur, nema í stjórnmálafræði og talskonu Hvalavina sem eru á einu máli um að ekki sé mögulegt að veiða stórhveli með mannúðlegum hætti. Óþekkti þingmaðurinn í þessari viku er Guðmundur Ari Sigurjónsson. Hver er hann? Hverjar eru hans persónulegu hliðar, hvað leynist bak við yfirborðið? Hvernig fékk hann örið á andlitinu? Björn Þorláks ræðir við nýjan þingmann á Alþingi. Þorgerður María Þorbjarnardóttir, jarðfræðingur og Guðmundur Steingrímsson doktorsnemi ræða um véfengingu Frosta Sigurjónssonar og fleiri um vá sem steðjar að okkur vegna hlýnunar jarðar af manna völdum. Friðrik Margrétar-Guðmundsson tónskáld og Hanna Dóra Sturludóttir söngkona segja okkur frá Brím, nýrri íslenskri óperu sem tekur á heitri umræðu um kúltúrbörn.Er Sjálfstæðisflokkurinn að missa það? Þannig spyr einn af þingmönnum ríkisstjórnarinnar, Sigurjón Þórðarson sem ræðir um grímulaust málþóf minnihlutans, fýlu, frekju og eignarhald í spjalli við Björn Þorláks. Friðrik Margrétar-Guðmundsson tónskáld og Hanna Dóra Sturludóttir söngkona segja okkur frá Brím, nýrri íslenskri óperu sem tekur á heitri umræðu um kúltúrbörn.
    5 hr 4 min
  • Rauða borðið - Trump, Woke, varnarsamningur, vindmyllur, Gaza, ríkisborgararéttur og Geðbrigði
    Þriðjudagur 8. apríl
    Trump, Woke, varnarsamningur, vindmyllur, Gaza, ríkisborgararéttur og Geðbrigði
    Hagfræðingarnir Þorsteinn Þorgeirsson og Gylfi Magnússon ræða um um tolla og efnahagsstefnu Trump. Og eru ekki á sama máli í samtali við Gunnar Smára. Þorsteinn segir þá leiða til góðs en Gylfi til ills. Brynjar Karl Sigurðsson körfuboltaþjálfari og Valgerður Þ. Pálmadóttir, kennari í Háskóla Íslands í kynjafræði og hugmyndasögu koma í spjall við Rauða borðið og fara yfir í líflegri samræðu við Oddnýju Eir og Björn Þorláks yfir átökin um kynjafræðina, wókið, umræðuna, ofbeldið, rétttrúnaðinn og samræðuna. Guttormur Þorsteinsson formaður Samtaka hernaðarandstæðinga og Elvar Ástráðsson skjalavörður samtakanna ræða um leyni-varnarsamning íslenskra stjórnvalda við Bandaríkin þar sem bandaríski herinn hefur allan rétt að leggja undir sig land og innviði. Andrés Skúlason, verkefnisstjóri hjá Landvernd og Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur í stjórn Landverndar ræða um yfirgengileg áform um vindmyllugarða á Íslandi og fórnarkostnaðinn. Hjálmtýr Heiðdal formaður félagsins Ísland Palestína segir fréttir af þjóðarmorði ásamt Maríu Lilju.Natan HK, Íslendingur í Kaleforníu, gagnasérfræðingur og forritari segir frá umsókn sinni um íslenskan ríkisborgararétt og frá ljónunum í veginum. Agnes Ósk Ægis­dótt­ir og Ásthild­ur Emma Ingi­leif­ar­dótt­ir meðlimir hljómsveitarinnar Geðbrigði, sigurvegarar Músíktilrauna mæta til Maríu Lilju ásamt Esther Bíbí bassaleikara Kolrössu sem jafnframt eru fyrrum sigurvegarar keppninnar.
    5 hr
  • Rauður raunveruleiki - Vistkerfiskrísa kapítalisma: Sósíalískir Umhverfissinnar

    Á degi jarðarinnar, 22. apríl, fer fram formlegur stofnfundur baráttuhópsins Sósíalískir Umhverfissinnar. 

    Hópurinn mun beita sér fyrir lífvænlegu og sjálfbæru umhverfi og félagslegu réttlæti! 

    Arnar Páll Gunnlaugsson, Sigurrós Eggertsdóttir og Stefán Örn Ingvarsson Olsen ræða við Karl Héðinn Kristjánsson um stofnun baráttuhópsins Sósíalískir Umhverfissinnar.

    49 min
  • Synir Egils: Ríkisfjármál, veiðigjöld, tollar, pólitík og öryggismál
    Sunnudagurinn 6. apríl
    Synir Egils: Ríkisfjármál, veiðigjöld, tollar, pólitík og öryggismál
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi og Hallgrímur Helgason rithöfundur og ræða fréttir vikunnar og stöðuna í pólitíkinni, hér heima og erlendis. Björn Þorláksson fær Kristrúnu Frostadóttur í heimsókn og ræðir við hana um öryggismál og annað sem ríkisstjórnin vill endurmeta og breyta. Þeir bræður taka svo stöðuna á pólitíkinni með sínu nefi.
    2 hr 29 min
  • Hipp-hopp varpið - 1. þáttur - Sesar A og Laufey

    Atriðaorðalisti: Hipp hopp varpið 1.þáttur 

    Þjóðviljinn 

    Rokk í Reykjavík 

    Grace Jones 

    Bob Marley 

    Prince, Purple rain 

    Poppkorn (tónlistarþáttur)

    Skonrokk (tónlistarþáttur)

    Eric B & Rakim, “Microphone fiend” 

    Mc Lyte, platan: Lyte as a rock 

    Eric B & Rakim, “Follow the leader” 

    Wham, hljómsveit 

    Duran duran, hljómsveit 

    Mc Lyte, “Cappucino” - platan: Eyes on this 

    EPMD, “So what cha sayin” 

    Duran Duran, “Wild boys” 

    Sugar hill gang, “Rappers delight” 

    Spray can art & Subway art, bækur um graffiti 

    Sesar A, “List ein” 

    Do the right thing (Breyttu rétt), Spike Lee kvikmynd 1989 

    Public Enemy, “Fight the power” 

    Do the right thing (soundtrack), tónlist úr myndinni “Breyttu rétt” 

    LL cool J, platan: Walking with a panther 

    Dj Jazzy Jeff & the Fresh Prince, platan: He’s the dj, I’m the rapper 

    Dj Cash Money, transformer scratch 

    Ultramagnetic Mc’s, Kool Keith

    Dj Kool Herc, afmælisveisla Cindy systur hans 

    HMT Empire Windrush 

    Dub tónlist 

    Reggae tónlist 

    Rastafari 

    Soul II Soul, hljómsveit 

    Trip hop, tónlistarstefna 

    Acid house, tónlistarstefna 

    Acid jazz, tónlistarstefna 

    Ninja tune, plötuútgáfa 

    Jah Shaka Sound System (London) 

    Aba Shanti-I Sound System (London) 

    Ragga twins, hljómsveit 

    Jungle, tónlistarstefna 

    James Brown, “Funky drummer” 

    Drum n’ bass, tónlistarstefna 

    Sound system, tónlistarsena 

    Blandspóla (mix tape) 

    Jazz ballett, danstegund 

    Curtis Mayfield, tónlistarmaður 

    Break beat, taktbrots tónlist 

    Jøden (Jótinn), danskur rappari 

    Óvinir ríkisins, bók eftir Guðna Th. Jóhannesson 

    Pinochet, einræðisherra í Chile 

    Viktor Jara 

    Violeta Parra 

    Break machine 

    Public Enemy, platan: It takes a nation of millions to hold us back 

    Public Enemy “Don't believe the hype” 

    House, tónlistarstefna 

    Mk Asanti (Skáld og fræðimaður USA)

    Grandmaster Flash 

    Dj Melle Mel 

    Crack epidemic 

    Sandinstas, Nicaragua Contras, Honduras C.I.A. 

    Ronald Reagan 

    Grandmaster Flash and the furious five, “the message”; “the message II” 

    Ice T 

    Úlfur Kolka 

    Source magazine 

    Ice Cube 

    Africa Bambaataa Zulu nation 

    Afro centric 

    Disco (tónlistarstefna)

    Chic “Good times” 

    Native tongues 

    A tribe called quest, plöturnar: People instinctive travels…; Low end theory 

    De la Soul 

    Jungle brothers

    Black Sheep 

    Queen Latifah 

    Monie Love 

    Q-Tip, the Abstract 

    A tribe called quest “Buggin’ out” 

    De la soul, plöturnar: 3 feet high and rising; De la soul is dead 

    Blaz Roca Sesar A, platan: Stormurinn á eftir logninu

    1 hr 23 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 14
    Föstudagur 4. apríl
    Vikuskammtur: Vika 14
    Ingibjörg Reynisdóttir, leikkona og jógi - Maren Freyja Haraldsdóttir, félagsfræðingur - Björgvin Gunnarsson blaðamaður á Mannlífi og Egill Viðarsson, rafbókaframleiðandi og tónlistarmaður koma í vikuskammt til Maríu Lilju í dag.
    1 hr 10 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

460 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

64 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners