Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið 26. mars - BNA, reynsluboltar, óþekkti þingmaðurinn, gerjun, víðerni og diplómati deyr
    Miðvikudagur 26. mars
    BNA, reynsluboltar, óþekkti þingmaðurinn, gerjun, víðerni og diplómati deyr.
    Íslenskir fræðimenn eru farnir að hunsa boð um ráðstefnur í Bandaríkjunum í mótmælaskyni við harðlínustefnu yfirvalda í garð minnihlutahópa og skerðingu málfrelsis þar í landi. Björn Þorláksson fær til sín þá Rúnar Helga Vignisson og Guðmund Hálfdánarson, prófessora við Háskóla Íslands til að ræða breytt landslag. Hinir vikulegu reynsluboltar fara yfir mál málanna hjá Sigurjóni M Egils. Að þessu sinni fær hann til sín þau Oddnýju Harðardóttur, Guðrúnu Öldu Harðardóttur, Þorstein Sæmundsson og Ómar Valdimarsson. Halla Hrund Logadóttir er óþekkti þingmaður þessarar viku á Samstöðinni. Björn Þorláks reynir að skyggnast undir yfirborð nýrra þingmanna og ræðir Halla Hrund kvöldið þegar kappræðan í sjónvarpinu gekk ekki sem skyldi í fyrrasumar en líka kraftinn og gleðina. Maður lærir ekkert í logninu, segir Halla Hrund. Fágun, félag áhugafólks um gerjun á fimmtán ára afmæli um þessar mundir. Þau Helga Dís Björgúlfsdóttir - Formaður, Dagur Helgason - Ritari og Sigfús Örn Guðmundsson - Fyrrverandi stjórnarmeðlimur kíkja til Maríu Lilju og líta yfir farinn veg og segja frá frelsisbaráttu sem ku framundan. Þorvaldur víðförli, ljósmyndari og rithöfundur Til oddnýjar um sveitina og háskólamál. Diplómati deyr heitir ný bók, fyrsta skáldsaga okkar fyrrum forsetafrúar Elizu Reid. Eliza lýsir við Rauða borðið skriftunum og ljóstrar í leiðinni upp þætti Guðna Th. Jóhannessonar sem hún segir að hafi verið gagnlegur yfirlesari.
    4 hr 41 min
  • Sósíalísk stjórnarandstaða - 10. þáttur: Breytingaskeiðið og heilsa kvenna
    Miðvikudagur 26. mars
    Sósíalísk stjórnarandstaða - 10. þáttur
    Gestir þáttarins eru Halldóra Skúladóttir frá Kvennaráð.is, sjúkraliði, markþjálfi, sérfræðingur í fræðslustjórnun og þjálfun starfsfólks og sérfræðingur í breytingaskeiði kvenna, og Oddný Eir Ævarsdóttir, rithöfundur, heimspekingur og blaðamaður á Samstöðinni. Við ræðum um breytingaskeiðið, áhrif þess á heilsu kvenna og bjargráð.
    1 hr 29 min
  • Rauða borðið 25. mars - Rektorskjör, sönglist í hættu, sósíalísk hreyfing og trúmál
    Þriðjudagur 25. mars
    Rektorskjör, sönglist í hættu, sósíalísk hreyfing og trúmál
    Við hefjum leik við Rauða borðið á viðtali Gunnars Smára Egilssonar við rektorsefnin tvö, Magnús Karl Magnússon og Silju Báru Ómarsdóttur. Kosning milli þeirra tveggja fer fram á morgun og hinn daginn. Hver eru einkenni rektorsefnanna? Við ætlum líka að standa fyrir umræðu um stofnanir í listheiminum. Söngnám er í hættu vegna peningamála. Þau Gunnar Guðbjörnsson, Hallveig Rúnarsdóttir og Guðrún Jóhanna koma í heimsókn og segja Birni Þorláks sögur af fjárhagslegu basli en líka ræða þau fegurð listarinnar og tækifæri. Pétur Tyrfingsson, sálfræðingur, ræðir í samtali við Oddnýju Eir Ævarsdóttur ágreining í sósíalískri hreyfingu, rofið í stéttabaráttunni og samræðunni. Við ljúkum svo þættinum á spjalli við sóknarprest einnar stærstu sókar landsins. Arna Ýrr Sigurðardóttir, ræðir Elon Musk, mannúð og skort á henni og aukna þöf landsmanna á að ræða trú með opinskáum hætti.
    3 hr 58 min
  • Rauða borðið 24. mars: Skemmdarverk, fjölmiðlar, barnsmissir, sekt, fólk og kvár
    Rauða borðið 24. mars
    Skemmdarverk, fjölmiðlar, barnsmissir, sekt, fólk og kvár
    Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri um gjaldþrot Kvikmyndaskólans, en Friðrik var um tíma rektor skólans. Hvað áhrif hafði skólinn á uppbyggingu kvikmyndagerðar og hver verða áhrifin af hruni hans? Friðrik Þór kemur í spjall við Gunnar Smára. Einyrkjafjölmiðlun og blaðamennska á litlum fjölmiðlum verður til umræðu við Rauða borðið í dag. Mál Ástu Lóu Þórsdóttur verður til umræðu. Þau Frosti Logason, Steingerður Steinarsdóttir og Brynjar Birgisson blaðamenn tala við Björn Þorláks.
    Laufey Líndal ætlar á næstu vikum að fjalla um barnsmissi frá ýmsum hliðum. Við hefjum umræðuna með frásögn Maríu Pétursdóttur um hennar reynslu og hvernig sú reynsla hefur mótað hana. Lára Magnúsardóttir, sagnfræðingur ræðir um barnamálaráðherramálið í samhengi sakamála sögunnar og hlutverk Ríkisútvarpsins í spjalli við Oddnýju Eir. María og Oddný fara á Eiðistorg og ræða við fólk á förnum vegi um mál málanna. Í tilefni Kváradagsins ræðir María Lilja svo við Reyn Alpha, forseta Trans-Íslands um tímamótin.
    3 hr 48 min
  • Synir Egils 23. mars - Afsögn ráðherra og staðan í pólitíkinni
    Sunnudagur 23. mars
    Synir Egils: Afsögn ráðherra og staðan í pólitíkinni
    Fjórir gestir koma í þáttinn Synir Egils að þessu sinni. Þau eru: Birta Björnsdóttir yfirmaður erlendra frétta, Svanborg Sigmarsdóttir framkvæmdastjóri Viðreisnar, Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður
    og Björn Leví Gunnarsson fyrrverandi þingmaður. Staða Ásthildar Lóu Þórsdóttur munu örugglega rata á góma gestanna. Mörg önnur mál bíða umfjöllunnar og verða því á dagskrá þáttarins.
    1 hr 10 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Heimir Björn Janusarson
    Laugardagur 22. mars
    Helgi-spjall: Heimir Björn Janusarson
    Heimir Björn Janusarson umsjónarmaður í Hólavallakirkjugarði er gestur í Helgi-spjallsins þessa vikuna. Heimir Björn kann margar sögur úr garðinum. Í spjalllinu segir hann Sigurjóni Magnúsi Egilssyni nokkrar ómetanlegar sögur.
    1 hr 41 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 12
    Föstudagur 21. mars
    Vikuskammtur: Vika 12
    Jódís Skúladóttir, Indriði H. Þorláksson og Sigursteinn Másson eru gestir í Vikuskammti að þessu sinni. Ræddar eru fréttir vikunnar og ekki síst afsögn mennta- og barnamálaráðherra. Þátturinn er í umsjá Björns Þorlákssonar.
    1 hr 30 min
  • Frelsið er yndislegt #13 - Ungmenni í vanda - hvað er til ráða?
    Föstudagur 21. mars
    Frelsið er yndislegt #13 - Ungmenni í vanda - hvað er til ráða?
    Börn eru í dag neyðarvistuð í fangaklefum í Hafnarfirði. Umboðsmenn, bæði barna og Alþingis, hafa gert alvarlegar athugasemdir við slíkt fyrirkomulag (hvorugar þáðu þó boð Afstöðu um að mæta í þáttinn). Barnamálaráðherra hefur sagt að hætt verði að nota fangaklefa til að vista börn um mánaðamótin. Meðan á tökum þáttarins stóð tilkynnti ráðherra barnamála um afsögn sína.
    Gestir þáttarins eru Gudmundur Fylkisson, lögregluþjónn og Davíð Bergmann, unglingaráðgjafi hjá Fjölsmiðjunni.
    Stjórnendur þáttarins eru: Íris Ósk Ólafsdóttir og Guðmundur Ingi Þóroddsson.
    Hægt að ná sambandi við Afstöðu í síma 556-1900 og netfangið [email protected]. Lögfræðiaðstoð Afstöðu er í síma 666-1211.
    1 hr 6 min
  • Rauða borðið - Lögregluríkið, brotleg skipafélög, JFK, líðan barna, föstudagspartýbíó og sálumessa
    Fimmtudagur 20. mars
    Lögregluríkið, brotleg skipafélög, JFK, líðan barna, föstudagspartýbíó og sálumessa
    Þátturinn hefst á umræðu sem spyr spurninga um hvort Ísland sé að verða lögregluríki og hvort aðgreining yfirstéttar og almennings sé að aukast. Við ræðum dóm gærdagsins þar sem níu mótmælendur sem beittir voru harðræði fá ekkert fyrir sinn snúð. Sigtryggur Ari Jóhannsson og Sara Stef Hildar mótmælendur ræða við Björn Þorláks. Hver myrti JFK er spurning sem margir vilja meina að aldrei hafi verið svarað. Guðjón Heiðar Valgarðsson og Haukur Ísbjörn, álhattamenn koma til Maríu Lilju og fara yfir CIA skjöl sem voru opinberuð í vikunni um morðið á JFK. Nokkur umræða hefur orðið um verðkannanir undanfarið. Við ræðum við Breka Karlsson formann Neytendasamtakanna um vöruverð, vexti og nýja niðurstöðu nefndar um áfrýjunarmál sem staðfestir sekt Samskipa og Eimskipa í samráðsmáli. Óli Hjörtur Ólafsson rekstrarstjóri hjá Bíó Paradís segir Lafeyju Líndal Ólafsdóttur frá Föstudagspartýsýningum og öðrum sýningum og uppákomum hjá kvikmyndahúsinu á næstunni. Að þessu sinni verður sýnd kvikmyndin Friday sem var vinsæl á tíunda áratug síðustu aldar. Líðan barna er okkur öllum hugleikin. Hulda Tölgyes sálfræðingur ræðir hvað við getum gert til að vinna gegn kvíða. Hulda safnar fé til að gefa út spil sem á að auðvelda börnum að tengjast fólki og umhverfi sínu. Við endum dagskrána á stórvirki sem fer fram í menningarheiminum um helgina þegar flutt verður sálumessa Tryggva M. Baldvinssonar upp úr Heimsljósi Halldórs Laxness í Langholtskirkju. Gríðarlegur fjöldi listamanna kemur að þessum viðburði. Að rauða borðinu koma til að ræða þennan viðburð Tryggvi M Baldvinsson tónskáld, Magnús Ragnarsson kór- og hljómsveitarstjóri og Hallveig Rúnarsdóttir söngkona.
    3 hr 27 min
  • Sjávarútvegsspjallið - 44. þáttur - Loðnan og Hafró
    Fimmtudagur 20. apríl
    Sjávarútvegsspjallið - 44. þáttur
    Grétar Mar og Ólafur Jónsson fá til sín Jón Kristjánsson fiskifræðing, sem haldið hefur uppi öflugri gagnrýni á vinnubrögð Hafrannsóknarstofnunar og bent á að auka þurfi veiðar til að efla fiskistofna.
    1 hr 1 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners