Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Grænland, spilling, reynsluboltar, neytendamál, sjálfsskrif, fræ framfara og Akureyrarfréttir
    Rauða borðið 12. mars
    Grænland, spilling, reynsluboltar, neytendamál, sjálfsskrif, fræ framfara og Akureyrarfréttir
    Við hefjum leik á umfjöllun um stjórnmál en aldrei hafa kosningar í Grænlandi vakið meiri athygli en nú. Það skýrist ekki síst af áhuga Bandaríkjaforseta á að sölsa Grænland undir sig og ræðir María Lilja við Ingu Dóru Guðmundsdóttur um niðurstöður kosninganna. Atli Þór Fanndal, sem starfaði við spillingarvarnir um árabil, ræðir spillingu, fjölmiða, siðferðisleg álitamál og neikvæða umræðu gagnvart eftirlitsstofnunum í samtali við Björn Þorláks. Þátturinn Reynsluboltar verður á dagskrá undir stjórn Sigurjóns Egilssonar. SME ræðir við Árna Hjartarson jarðfræðing, Kristínu Ástgeirsdóttur fyrrverandi þingmann með meiru og Viðar Eggertsson leikara. Umræðuefnið er sótt í daginn og veginn. Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, ræðir heimilin í landinu og fjárhag almennings. Við spyrjum hvort Neytendasamtökin séu bjartsýn á áframhaldandi vaxtalækkun og fjöllum um óskalista Neytendasamtakanna. Við fjöllum einnig um sjálfsskrif: Róbert Hilmar Haraldsson heimspekingur, Sigurður Gylfi Magnússon sagnfræðingur og Davíð Ólafsson menningarfræðingur ræða við Gunnar Smára Egilsson. Jón Einar Kristjánsson, sagnfræðingur kemur og fjallar um fræ framfara, það er að segja akuryrkju og framfarahugsun á átjandu öld og hvernig megi læra af þeim jarðvegi i dag. Og við endum þáttinn með því að hringja norður til Akureyrar, við heyrum í Skapta Hallgrímssyni ritstjóra sem segir okkur tíðindi úr höfuðstað norðurlands þar sem einna hæst ber að mörg flug eru nú í boði fyrir Norðlendinga beint út í heim.
    4 hr
  • Rauða borðið 11. mars - Breytt staða, húsnæðismarkaður, rektor, símabann, Auður Haralds, samræðan og karlar
    Þriðjudagur 11. mars
    Breytt staða, húsnæðismarkaður, rektor, símabann, Auður Haralds, samræðan og karlar
    Eiríkur Bergmann, stjórnmálafræðingur, prófessor við Háskólann á Bifröst, ræðir við Björn Þorláks um gjörbreytta stöðu sem blasir við íslensku ríkisstjórninni vegna utanríkismála. Allar líkur eru á því að aðstæður hafi áhrif á ESB-áhuga Íslendinga. Sigurður Stefánsson framkvæmdastjóri Aflvaka greinir hvernig húsnæðismarkaðurinn ýtir undir misskiptingu auðs í samtali við Gunnar Smára. Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti menntavísindasviðs Háskóla Íslands, er síðasti frambjóðandinn til rektors sem mætir í spjall til Gunnars Smára um háskólann og stöðu hans í samfélaginu. Barnamálaráðherra hefur boðað símabann í öllum grunnskólum landsins frá og með næsta hausti. En er það raunhæft? Björn Gunnlaugsson skólastjóri Laugalækjarskóla og Skúli Bragi Geirdal hjá Fjölmiðlanefnd eru ekki á einu máli - Björn Þorláks ræðir við þá. Auður Jónsdóttir rithöfundur og blaðakona, Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur og pistlahöfundur og Katrín Axelsdóttir málfræðingur segja Gunnari Smára frá Auði Haralds, sem var frumkvöðull í bókmenntum og textasmíð og óheyrilega fyndin. Vilhjálmur Árnason, heimspekiprófessor emeritus við Háskóla Íslands, ræðir um mátt samræðu og friðarviðræðna á myrkum tímum ofbeldis og stríð og segir frá sinni reynslu af því að gagnrýna og koma á fót samræðu um samfélagið. María Lilja ræðir við karlmenn á krossgötum, tónlistarmennirnir og metal-hausarnir Birkir Fjalar Viðarsson í Adapt og Karl Thorsten Ställborn Skratti ræða karlmennsku sína og samfélagsins.
    5 hr 51 min
  • Rauða borðið 10. mars: Ríkisútvarpið, rektorskjör, blaðamannaverðlaun, rödd almennings og kukl
    Rauða borðið mánudaginn 10. mars 2025
    Ríkisútvarpið, rektorskjör, blaðamannaverðlaun, rödd almennings og kukl verður á dagskrá Samstöðvarinnar í kvöld.
    Við hefjum leik við Rauða borðið með þeim Ragnari Sigurði Kristjánssyni, hagfræðingi hjá Viðskiptaráði og Stefáni Eiríksson útvarpsstjóra. Á RÚV að víkja af auglýsingamarkaði? Er Rúv bleiki fíllinn sem er að lama einkarekna fjölmiðlun í landinu? Björn Þorláks stýrir umræðunni.
    Gunnar Smári Egilsson ræðir við Silju Báru R. Ómarsdóttur prófessor í stjórnmálafræði, sem hefur boðið sig fram til rektors Háskólans. Háskólinn er á margskonar tímamótum, hvernig vill Silja Bára að brugðist verði við?
    Við heyrum raddir fólksins í landinu. Oddný Eir Ævarsdóttir ræðir við fólk á förnum vegi um varnarmál Íslendinga og utanríkismál. Þá ber tugþraut einnig á góma.
    Sunna Kristín Hilmarsdóttir, sem stýrir dómnefnd um blaðamannaverðlaun, ræðir verðlaunin ásamt blaðamönnunum Maríu Lilju, Oddnýju Eir Ævarsdóttur og Birni Þorláks. Afhending verðlaunanna fer fram á miðvikudag.
    Og María Lilja endar þáttinn með samræðu um kukl við Guðrúnu Tinnu Thorlacius. Þær ræða hulduheima og talnaspeki og spá í tarotspil.
    3 hr 45 min
  • Synir Egils 9. mars - Öryggisógnir, ágreiningur og bág staða sveitarfélaga
    Sunnudagurinn 9. mars
    Synir Egils: Öryggisógnir, ágreiningur og bág staða sveitarfélaga
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þær Eyrún Magnúsdóttir blaðakona, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir fyrrverandi þingkona Framsóknar og Sóley Tómasdóttir, fyrrum borgarfulltrúi og ræða fréttir vikunnar og stjórnmálaástandið hér heima og erlendis. Þeir bræður taka púlsinn á pólitíkinni en fá svo til sín sveitarstjórnarfólk til að ræða stöðu sveitarfélaganna: Sanna Magdalena Mörtudóttir forseti borgarstjórnar, Margrét Ólöf A. Sanders bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, Theodóra Sigurlaug Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúi í Kópavogi og Valgarður Lyngdal Jónsson forseti bæjarstjórnar Akraness greina vanda sveitarfélaganna,
    2 hr 37 min
  • Rauður raunveruleiki - Byggjum betur!
    Páll Jakob Líndal umhverfissálfræðingur, Egill Sæbjörnsson myndlistarmaður & Magnús Skúlason arkitekt koma og ræða við Karl Héðinn Kristjánsson og Trausta Breiðfjörð Magnússon um arkitektúr, umhverfissálfræði og átakið "Byggjum betur!".
    Undirskriftarlisti hér: https://island.is/undirskriftalistar/810d7272-e312-46f4-9d80-0aa32ffe3570
    55 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Héðinn Unnsteinsson
    Laugardagur 8. mars
    Helgi-spjall: Héðinn Unnsteinsson
    Héðinn Unnsteinsson, rithöfundur og ráðgjafi segir okkur frá lífi sínu í punktinum og utan hans, í skáldskap og samveru, einveru og rannsóknum á geði, kerfum, erfðum, áföllum, framsýni, frumefnum, næveru.
    1 hr 23 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 10
    Föstudagur 7. mars
    Vikuskammtur: Vika 10
    0Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Guðrún Lína Thoroddsen klippari, Lóa Hjálmtýsdóttir myndlistarkona, Þorsteinn J. Vilhjálmsson fjölmiðlamaður og Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af fyrirferð Donald Trumps, stríðsvæðingu Evrópu, tillögum um sparnað og niðurskurð og allskyns álitamálum.
    1 hr 22 min
  • Frelsið er yndislegt - #12 - Óviðunandi staða kvenna í fullnustukerfinu
    Frelsið er yndislegt 7. mars
    #12 Óviðunandi staða kvenna í fullnustukerfinu
    Í tilefni af alþjólegum baráttudegi kvenna er í þessum þætti af Frelsið er yndislegt fjallað um (óviðunandi) stöðu kvenna í fullnustukerfinu/ fangelsum. Gestir þáttarins eru Guðbjörg Sveinsdóttir, geðhjúkrunarfræðingur og faglegur ráðgjafi Afstöðu ásamt Tinnu Hilmarsdóttur Konudóttur og Þóru Björgu Sirrýjardóttur sem eru í Vettvangsteymi Afstöðu. Stjórnendur þáttarins eru: Íris Ósk Ólafsdóttir og Guðmundur Ingi Þóroddsson.
    Hægt að ná sambandi við Afstöðu í síma 556-1900 og netfangið [email protected]. Lögfræðiaðstoð Afstöðu er í síma 666-1211.
    59 min
  • Rauða borðið 6. mars - Fjármálastríð, Gaza, bakarí, friðarvaka, rektor, bókaspjall, sögur
    Fimmtudagur 6. mars
    Fjármálastríð, Gaza, bakarí, friðarvaka, rektor, bókaspjall, sögur
    Guðrún Johnsen, hagfræðingur og deildarforseti viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst, ræðir við Oddnýju Eir um efnahagslegt ástand heimsins, afleiðingar Trömpismans og fjármálastríð heimsins. Sema Erla Serdarouglu, stjórnarformaður Solaris og Magnea Marinósdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur setjast til borðs með Maríu Lilju og ræða ástandið á Gaza nú þegar vopnahlé er í uppnámi. Þá ræða Maria Lilja og Sema sérstaklega og í fyrsta sinn, frægt kærumál sem hefur verið i gangi gegn þeim persónulega og Solaris. Sigurður Már Guðjónsson, bakara- og kökugerðarmeistari í Bernhöftsbakarí, segir Gunnari Smára frá vanda þeirra sem eru í smárekstri, skilningsleysi stjórnvalda og stjórnmálafólks. Ragnheiður Steindórsdóttir, Sólveig Hauksdóttir og Júlía Hannam tilheyra hópi Leikhúslistakvenna 50+ þær senda út ákall um frið með ljóðalestri og tónlist í fríkirkjunni á laugardaginn eftir Kvennagönguna og öllum er boðið. Gunnar Smári heldur áfram að ræða þau sem vilja verða rektor Háskóla Íslands. Röðin er komin að Birni Þorsteinssyni prófessor í heimspeki sem leggur áherslu á samfélagslegt hlutverk Háskólans. Kristín Helga Gunnarsdóttir kemur í bókaspjall með Vigdísi Grímsdóttur og fer yfir feril sinn, en hún er einn helsti og vinsælasti fjölskyldubókahöfundur Íslands. Sögur kvenna af erlendum uppruna á Íslandi er nýtt íslenskt ritverk sem kemur formlega út um helgina, á laugardag – á alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Elinóra Guðmundsdóttir, ein af ritstjórum bókarinnar, ræðir verkið í samtali við Björn Þorláks.
    5 hr 38 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners