Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið - Brim, reynsluboltar, auðlindir, siðareglur, rektor, hin sagan, öryrkjar, þjóðmenning
    Miðvikudagur 5. mars
    Brim, reynsluboltar, auðlindir, siðareglur, rektor, hin sagan, öryrkjar, þjóðmenning
    Haraldur Sigurðsson prófessor og doktor í jarðefnafræði ræðir frá Bandaríkjunum við Björn Þorláksson um hækkun yfirborð sjávar sem getur valdið stórskaða í skaðabrimi eins og síðustu daga. Fyrrum þingmennirrnir Ásmundur Friðriksson, Mörður Árnason og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir eru reynsluboltarnir að þessu sinni. Kristín Vala Ragnarsdóttir, sérfræðingur í sjálfbærni við Háskóla Íslands, prófessor emerita, segir okkur frá raunverulegum kostnaði hins blóðuga auðlindastríðs sem háð er í heiminum. Friðrik Þór Guðmundsson, blaðamaður til langs tíma, kennari og fræðimaður, ræðir siðareglur Blaðamannafélags Íslands og hvort eða að hve miklu leyti starfsreglur blaðamanna hafa áhrif á efnistök og áherslur fjölmiðla. Gunnar Smári heldur áfram að ræða við frambjóðendur til rektors Háskóla Íslands. Það er komið að Ingibjörgu Gunnarsdóttur, aðstoðarrektor vísinda og samfélags og prófessor í næringarfræði. Rakel Adolphsdóttir, fagstjóri hjá Kvennasögusafni Íslands segir okkur frá afmælishátíð þessa safns, sem geymir hina söguna. Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ ræðir landsáætlun í málefnum fatlaðra, lögfestingu réttindasamnings SÞ, inngildingu og átakið "fyrir okkur öll”. Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur fer yfir uppruna íslenskrar þjóðmenningar og ræðir hefðir á Öskudegi við Maríu Lilju.
    5 hr 43 min
  • Rauða borðið 4. mars - Trump, Nató, Háskólinn, þingkona og gleymdar konur
    Þriðjudagur 4. mars
    Trump, Nató, Háskólinn, þingkona og gleymdar konur
    Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um hvort Trump takist að sveigja Úkraínustjórn og Evrópu undir sín markmið. Við förum síðan í Múlakaffi með Maríu Lilju og hefjum svo viðræðu um háskólasamfélagið við þau sem hafa boðið sig fram til rektors. Magnús Karl Magnússon prófessor í læknadeild ríður á vaðið og ræðir við Gunnar Smára. Björn Þorláks ræðir síðan við Maríu Rut Kristinsdóttur, þingkonu Viðreisnar, baráttukonu frá Flateyri. Hún fjallar hispurslaust um kynferðislegt ofbeldi sem hún varð fyrir og snjóflóðið á Flateyri svo nokkuð sé nefnt. Loks ræðir María Lilja við þær Kristínu I. Pálsdóttur og Halldóru R. Guðmundsdóttur forstöðukonur Rótarinnar og Konukots um vanda heimilislausra kvenna og konur með fíknivanda.
    4 hr 41 min
  • Rauða borðið 3. mars: Trump, efnahagurinn, spillingin, Rússland, Anora og einræðisþrá
    Mánudagur 3. mars
    Trump, efnahagurinn, spillingin, Rússland, Anora og einræðisþrá
    Við ræðum Trump á bolludegi. Fyrst ræðir Gunnar Smári við Þorvald Gylfason prófessor í hagfræði um áhrif stefnu Trump á efnahag heimsins. Hver er stefna Trump og er hún til eftirbreytni? Gunnar Smári ræðir einnig við Jón Ólafsson prófessor í heimspeki um áhrif stefnu Trump á stöðu Rússlands. Í millitíðinni ræðir Björn Þorláks við Henry Alexander Henrysson um hvort brotthvarf Bjarna Benediktssonar boði siðbót, um biðlaun Ragnars Þórs Ingólfssonar og önnur siðræn álitamál. Árni Sveinsson kvikmyndaleikstjóri, Lóa Björk Björnsdóttir útvarpskona og Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur ræða við Gunnar Smára um Óskarsverðlaunamyndina Anora og María Lilja ræðir við Ásu Lind Finnbogadóttur kennara og Völu Árnadóttur formann Samtaka grænkera um um hlutverk kvenna og pólitík dagsins í dag. Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur ræðir um helstu ógnir lýðræðis í dag við Oddnýju Eir um einræðisþrá tæknirisanna í Kísildalnum, um auðlindastríð og hernaðarlega nýsköpun.
    5 hr 21 min
  • Synir Egils 2. mars - Átök á vinnumarkaði, á þingi og í öryggismálum
    Sunnudagurinn 2. mars
    Synir Egils: Átök á vinnumarkaði, á þingi og í öryggismálum
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Helga Vala Helgadóttir lögmaður og fyrrum blaða- og þingkona, Róbert Marshall fjallamaður og fyrrum frétta- og þingmaður og Sunna Valgerðardóttir fyrrum fréttakona og starfsmaður Vg og ræða fréttir vikunnar og stjórnmálaástandið. Þeir bræður taka púlsinn á pólitíkinni en fá líka fólk til að ráða í áhrif stefnu Donald Trump á öryggishagsmuni Íslands og Evrópu: Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði, Guðmundur Hálfdanarson prófessor í sagnfræði, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrum utanríkisráðherra og Ögmundur Jónasson fyrrum ráðherra spá í hvað Trump vill, hvað hann segir og gerir og hver áhrifin verða.
    2 hr 36 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Pétur Gunnarsson
    Laugardagur 1. mars
    Helgi-spjall: Pétur Gunnarsson
    Pétur Gunnarsson rekur ferð sína um hugmyndir og heimsmyndir, hugsjónir sem hafa risið og hnigið, byltingar sem blómstruðu eða koðnuðu niður og aðrar sem runnu sitt skeið og reynir að skilja stöðu heimsins í dag, sem er kannski háskalegri en nokkurn tíma um daga Péturs.
    3 hr 6 min
  • Vikuskammtur: Vika 09
    Föstudagur 28. febrúar
    Vikuskammtur: Vika 09
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Margrét Hugrún Gústavsdóttir Björnsson nemi í mannfræði, Freyr Eyjólfsson öskukarl, Theódóra Björk Guðjónsdóttir nemi í félagsráðgjöf og Halldór Auðar Svansson fyrrverandi borgarfulltrúi og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af viðbrögðum við stefnu Donald Trump, nýjum meirihluta í Reykjavík, samningum kennara, hugmyndum um her og mörgu öðru.
    1 hr 46 min
  • Rauða borðið 27. febrúar Öryggi, her, hugvíkkun, skipulag, bækur og ljóð
    Fimmtudagur 27. febrúar
    Öryggi, her, hugvíkkun, skipulag, bækur og ljóð
    Helen Ólafsdóttir ráðgjafi í öryggismálum ræðir við Gunnar Smára um öryggismál Evrópu og Íslands eftir stefnubreytingu ríkisstjórnar Trump. Bjarni Már Magnússon prófessor í lögfræði við Bifröst og Kristján Þór Sigurðsson, doktor í mannfræði takast á undir stjórn Maríu Lilju um hugmynd Bjarna um að kominn sé tími til að Íslendingar stofni her vegna víðsjár í heimsmálum. Mikið er rætt um sveppatripp þessa dagana og hvort lækning gegn áföllum leynist í þeim. Borið hefur á því að þjóðþekkt fólk flíki sveppum og sumir segjast hafa orðið edrú af þeim, þurfi ekki meðferð hjá SÁÁ. Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður SÁÁ ræðir málin við Björn Þorláks. Hilmar Þór Björnsson arkitekt og Ásta Logadóttir ljósvistarsérfræðingur eru hluti hóps sem stendur fyrir ákalli um breytt viðhorf til skipulagsmála. Þau útskýra fyrir Gunnari Smára hvers vegna borgin er að þróast eftir hagsmunum fjármagnsins en ekki almennings. Vigdís Grímsdóttir og Oddný Eir ræða við skáld og bókafólk. Að þessu sinni kemur ritstjórinn Guðrún Steinþórsdóttir og ræðir um skynsvið bókmennta. Hvernig bækur geta aukið samlíðan og bætt bæði okkur og heiminn. Síðan kemur Eiríkur Örn Norðdahl að borðinu, nýtilnefndur til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir bók sína Náttúrulögmálin.
    5 hr 49 min
  • Rauða borðið 26. feb - Rannsóknablaðamennska, karlmennska, Ragnar Þór, reynsluboltar og Öskjuhlíð
    Miðvikudagur 26. febrúar
    Rannsóknablaðamennska, karlmennska, Ragnar Þór, reynsluboltar og Öskjuhlíð
    Við hefjum leik á umræðu um spillingu og skyldum fjölmiðla að sporna gegn spillingu í stað þess að strjúka henni. Hefur fallið á trúverðugleika Fjórða valdsins með flokkadráttum? Sigurjón Magnússon Egilsson og Björn Þorláks ræða málin auk þess sem Sigurjón segir frá erfiðasta fréttamáli sem hann hefur glímt við. Viktor Gunnarsson, mma-kappi og Brynjar Karl körfuboltaþjálfari velta fyrir sér líðan karla og lausnum til að vinna úr vanda þeirra. María Lilja ræðir við þá undir yfirskriftinni Karlmennska á krossgötum. Sigurjón Magnús Egilsson kallar Reynsluboltana til leiks í þjóðmálaumræðunni. Þau Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur, Bolli Héðinsson hagfræðingur og Páll Ásgeir Ásgeirsson fjallamaður og fyrrverandi blaðamaður ræða saman um púlsinn í íslensku samfélagi. Einn umtalaðasti þingmaður dagsins í dag, Ragnar Þór Ingólfsson, situr fyrir svörum og ræðir persónulegt líf sitt í seríunni Óþekkti þingmaðurinn. Björn Þorláks spyr nýja þingmanninn spjörunum úr og ber biðlaunamálið á góma. Og Oddný Eir Ævarsdóttir lýkur þættinum með viðtali við Maríu Ericsdóttir Panduro sem kallar skógarhöggið í Öskjuhlíð ekkert annað en eyðileggingu.
    4 hr 9 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners