Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Sósíalísk stjórnarandstaða - 9. þáttur: Nemendur og rektorskjör í HÍ
    Miðvikudagur 19. mars
    Sósíalísk stjórnarandstaða - 9. þáttur
    Nemendur og rektorskjör í Háskóla Íslands Gestir þáttarins eru nemendur úr Háskóla Íslands: Úlfur Atlason, BS-nemi í eðlisfræði, Magnea Rut, meistaranemi í heimspeki, Guðni Thorlacius, varaforseti Landssamtaka íslenskra stúdenta (LÍS) og BA-nemi í heimspeki. Við ræddum um rektorskjör, hvað okkur finnst vera mikilvægir eiginleikar hjá næsta rektor og hvaða breytingar við myndum vilja sjá. Kosningar standa yfir frá 18.–19. mars en kosningu lauk kl. 17 í dag.
    46 min
  • Rauða borðið 18. mars - Solaris, fæðuöryggi, reynsluboltar, þingmaður, maurar og kynlífsverkafólk
    Miðvikudagur 19. mars
    Solaris, fæðuöryggi, reynsluboltar, þingmaður, maurar og kynlífsverkafólk
    Við hefjum þáttinn á viðtali Laufeyjar Líndal Ólafsdóttur við Maríu Lilju Ingveldar Þrastardóttir Kemp og lögmanninn Gunnar Inga Jóhannsson, um Solaris málið svokallaða en ríkissaksóknari fól lögreglu að rannsaka fjársöfnun og átaksverkefni til að koma fólki út af Gaza. Bændur og búalið hér á landi sjá fram á breytta tíma. Hugsanleg innganga í ESB gefur tilefni til að ræða ógnir og tækifæri að sögn formanns Bændasamtakanna, Trausta Hjálmarssonar. Hann ræðir við Björn Þorláks um stöðuna og Búnaðarþing sem verður sett á morgun. Vikulegi dagskrárliðurinn Reynsluboltar að þessu sinni eru þau Erna Bjarnardóttir, Magnús R. Einarsson og Sigrún Jónsdóttir sem fara yfir helstu mál líðandi stundar. Eðlilega rata þeir Rump og Pútín í umræðuna og svo eru það helstu innanlandsmálin. Óþekkti þingmaðurinn sem þessa vikuna ræðir við Björn Þorláks á persónulegum nótum er Ingvar Þóroddsson. Hann er einnig yngsti þingmaðurinn nú um stundir. Ingvar lýsir með opinskáum hætti hvernig efasemdir um eigin verðleika urðu honum áskorun. Arnar Pálsson og Andreas Guðmundsson líffræðingar mættu til Maríu Lilju með heilt samfélag maura Að lokum koma þau Ari Logn og Renata Sara Arnardóttir en þau eru talsfólk Rauðu regnhlífarinnar og ræða meðal annars kvikmyndina Anora og stöðu kynlífsverkafólks í samfélaginu í dag
    3 hr 42 min
  • Sósíalísk stjórnarandstaða - 8. þáttur: Samstarfssáttmáli í borginni
    Miðvikudagur 12. mars
    Sósíalísk stjórnarandstaða - 8. þáttur
    Gestur þáttarins er hin eina sanna, Sanna Magdalena Mörtudóttir, nýsettur forseti borgarstjórnar, formaður velferðarráðs og oddviti Sósíalistaflokksins. Við förum yfir samstarfsyfirlýsingu Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokksins, Flokks fólksins og Vinstri grænna. Sögu Sósíalista í Borgarstjórn, árangur og áherslur sósíalista í borginni. Húsnæðismál, íbúaráð, samgöngumál og margt fleira.
    52 min
  • Rauða borðið 18. mars - Þjóðarmorð, fátækt, klám, orgelleikur og guð
    Þriðjudagur 18. mars
    Þjóðarmorð, fátækt, klám, orgelleikur og guð
    Fólkið í Gazaborg var vakið upp við loftárásir Ísraela og Bandaríkjanna. Félagið Ísland Palestína stóð fyrir mótmælum í morgun og þrýsti á íslenska ráðamenn um að setja á viðskiptabann og slíta stjórnarsamstarfi. María Lilja fær til sín Svein Rúnar Hauksson, formann FÍP og fara þau yfir fréttir dagsins frá Palestínu. Skylt er að vara við myndefni sem spilað verður í innslaginu en María Lilja klippti saman efni frá blaðafólki og almenningi á staðnum. Vaxtaumhverfi námslána er út úr kú og hafa breytingar sem orðið hafa á kerfinu sumpart aukið efnahagslega stéttaskiptingu. Þetta segir Lísa Margrét Gunnarsdóttir forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta en Björn Þorláksson ræðir við hana um slembilukku, tengda pólitískri hugmyndafræði hverju sinni sem veldur því að sumar kynslóðir fá hagstæð námslán en aðrar alls ekki. Við ræðum um ást og klám við Láru Martin, kvikmyndagerðarkonu og kvikmyndafræðing sem ræðir um erkitýpu vændiskonunnar í menningu okkar og gagnrýni kynlífsverkafólks á myndina Anora. Við endum Rauða borðið á umræðu um nýstárlega notkun guðshúsa. Björn Þorláksson ræðir við Kristján Hrannar Pálsson, organista. Stundum er sagt að kirkjurnar, hús í eigu almennings, standi of mikið auðar og að hugsanlega mætti auka nýtingu þessara bygginga sem sum okkar kalla guðshús.Við kynnum okkur nýjung í viðburðastarfi, svokallað orgelbíó sem Kristján Hrannar Pálsson organisti fræðir okkur um og fleira.
    2 hr 49 min
  • Rauða borðið 17. mars: Fullveldi, fjölmiðlar, öryggismál, raddir almennings, Reykjanes og skák
    Mánudagur 17. mars
    Fullveldi, fjölmiðlar, öryggismál, raddir almennings, Reykjanes og skák
    Við hefjum leik á viðtali Oddnýjar Eirar Ævarsdóttur við Harald Ólafsson hjá Heimssýn. Haraldur telur að valkyrkjustjórnin sé að reyna að koma landsmönnum inn í ESB undir fölsku flaggi varnarmála. Einnig verður umræða um fjölmiðla í umsjá Björns Þorláks þar sem blaðamennirnir Páll Ásgeir Ásgeirsson, Sigurjón Egilsson og Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson ræða málin. Gunnar Smári Egilsson ræðir við Helen Ólafsdóttur ráðgjafa um alþjóða öryggismál. Maríu Lilja spyr almenning álits á fréttnæmum fyrirbærum. Við bíðum flest eftir eldgosi á Sundhnúkagígaröð. En hvað teiknast upp ef kvika fer að leita upp á öðrum slóðum en þeim sem hafa verið virkastar á Reykjanesinu? Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur ræðir nokkrar sviðsmyndir. Og við ljúkum Rauða borðinu með umfjöllun um skáklistina, stórmót sem haldið var fyrir norðan um helgina. Hermann Aðalsteinsson formaður Goðans í Þingeyjarsýslu og Björn Þorfinnsson sem vann mótið ræða ævintýri skáklistarinnar.
    4 hr 6 min
  • Synir Egils 16. mars - Fréttir, pólitík og átök
    Sunnudagurinn 16. mars
    Synir Egils:
    Vettvangur dagsins er skipaður úrvalsfólki. Þeir eru: Helga Þórðardóttir borgarfulltrúi, Páll Baldvin Baldvinsson rithöfundur, Sigmar Guðmundsson þingmaður og Stefán Pálsson borgarfulltrúi. Málefnin eru mörg. Breyttur heimur, öryggisstefna Íslands, morð í Reykjavík, maður sýknaður af tvöföldu morði, sendiráðið í Moskvu, ákall til formanns Framsóknar um að gera eitthvað áður en skaði flokksins verði meiri en orðið er. Og svo eitt og annað.
    2 hr 14 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 11
    Föstudagur 14. mars
    Vikuskammtur: Vika 11
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Vilborg Bjarkadóttir doktorsnemi í þjóðfræði, Magnús Jochum Pálsson blaðamaður og gagnrýnandi, Þorkell Heiðarsson deild­ar­stjóri hjá Dýraþjón­ustu Reykja­vík­ur og Ester Bíbi Ásgeirsdóttir bassaleikari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af Trump innan lands og utan en líka slætti og látum í pólitíkinni hér heima.
    1 hr 37 min
  • Rauða borðið - Fasísk sveifla, gróandi, ásakanir, heilahvel, tálbeitur, feðraveldi og endurhæfing
    Fimmtudagur 13. mars
    Fasísk sveifla, gróandi, ásakanir, heilahvel, tálbeitur, feðraveldi og endurhæfing
    Magnús Helgason sagnfræðingur og Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúI ræða við Gunnar Smára um hvernig Donald Trump er að breyta Bandaríkjunum. Hversu miklar geta þær breytingar orðið? Og munu þær ganga til baka í næstu pólitísku sveiflu. Lexí Líndal, plötusnúður og listakona og Máni Emeric Primel, leikari ræða um reynslu sína af Janus endurhæfingu sem nú á að loka og sorgina yfir því að öll þessi einstaka sérfræðiþekking sem hefur byggst þar upp til endurhæfingar fyrir ungt fólk með einhverfu og fjölþættan vanda sé nú í hættu. Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við Helga Gunnlaugsson afbrotafræðing um tálbeitur, en það fyrirbæri er mikið í umræðunni núna í tengslum við hræðilega glæpi á Íslandi. María Pétursdóttir, formaður málefnastjórnar Sósíalistaflokks Íslands og Sara Stef Hildar varaformaður framkvæmdastjórnar ræða við Oddnýju Eir um hitamál flokksins eftir gagnrýni lítils hóps flokksins og uppgjör eins félaga og ásakanir um einelti, útskúfun, þöggun og ólýðræði. Hildur Dagbjört Arnardóttir fer fyrir samfélagsverkefninu Gróanda og hefur byggt upp nytjagarð sl. 9 ár sem fólkið á Ísafirði hefur aðgang að, endurgjaldslaust. Mannréttindafréttaritari okkar, Arna Magnea Danks ræðir um nýjustu aðgerðir Trömpstjórnar og innlends æsings vegna þátttöku sumra í kvennagöngu og spurningarinnar ,,Hvað er kona?” Hún segir okkur frá því hvernig tilvera hennar er ögrun við feðraveldið, eins og fokkmerki og frá nýrri bíómynd sem hún leikur í, Ljósvíkingar sem hefur fengið lof úti í heimi. Elín Agla Briem, þjóðmenningarbóndi, segir frá reynslu sinni af lífinu á Ströndum, af pólitískum átökum sem urðu persónulegar og segir frá nýjum heilahvelsrannsóknum sem setja pólaríseringu í nýtt samhengi og mannskepnuna í ný tengsl við náttúruna.
    4 hr 29 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners