Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Synir Egils 16. febrúar: Samdráttur og sundrung, pólitíkin og Sjálfstæðisflokkurinn
    Sunnudagurinn 16. febrúar
    Synir Egils: Samdráttur og sundrung, pólitíkin og Sjálfstæðisflokkurinn
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Helgi Seljan blaðamaður, Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður og Karen Kjartansdóttir upplýsingafulltrúi og fara yfir skrautlegar fréttir vikunnar, átök og árekstra í pólitíkinni og fjölmiðlum. Þeir bræður taka líka stöðuna á stjórnmálunum og fá síðan sjálfstæðisflokksfólk til að spá í komandi landsfund, stöðu flokksins og val á forystu: Sandra Hlíf Ocares, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Ásmundur Friðriksson fyrrverandi þingmaður og Jón Kristinn Snæhólm stjórnmálafræðingur greina stöðuna og spá í framtíðina.
    2 hr 13 min
  • Heimsmyndir - Valur Arnarson
    Laugardagur 15. febrúar
    Heimsmyndir - Valur Arnarson
    Valur Arnarson verkfræðingur og net-aktívisti kom í þáttinn að spjalla um umræðumenninguna í netheimum og vókið. Þeir Kristinn reyndu að segja allskyns hættulega hluti og verða argir og rífast, en þetta varð ósköp vinalegt spjall.
    58 min
  • Sósíalísk stjórnarandstaða - 4. þáttur: Glundroðinn í borginni
    Miðvikudagur 12. febrúar
    Sósíalísk stjórnarandstaða - 4. þáttur
    Í þættinum í kvöld er gestur þáttarins Atli Þór Fanndal, verkefnastjóri Háskólans á Bifröst. Við stikluðum á stóru um glundroðann í borginni og fórum meðal annars yfir sögu Framsóknar í borginni, viðræður oddvita flokkanna sem leggja allt kapp á að mynda nýjan meirihluta og vonina á bættu ástandi í borginni með velferð borgarbúa í fyrirrúmi.
    1 hr 11 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 7
    Föstudagur 14. febrúar
    Vikuskammtur: Vika 7
    Efnistök að þessu sinni verða, á meðal annars, sviptingar í borginni, ofbeldi í barnaskóla, brim við Þorlákshöfn, Guðrún Hafsteinsdóttir, Trump, Pútín, Úkraína, vopnahlé á Gaza, Kendrick Lamar og Superbowl ofl. Til leiks mæta þau Daníel Thor Bjarnason þroskaþjálfi, Anita DaSilva, úr ungliðahreyfingu sósíalista, Laufey Líndal, tæknimaður og Valgerður Árnadóttir, fyrrverandi varaþingmaður Pírata og dýravinur
    1 hr 6 min
  • Rauða borðið 13. feb - Breiðholt, harka í íþróttum, Hafró, ljóð, karlmennska og breytingarskeiðið
    Fimmtudagur 13. febrúar
    Breiðholt, harka í íþróttum, Hafró, ljóð, karlmennska og breytingarskeiðið
    Hermann Austmar, faðir stúlku í Breiðholtsskóla, segir frá ógnarástandi í skólanum, en margir nemendur treysta sér ekki til að mæta í skólann. Darina Andreys, Hanna Þráinsdóttir og Dzana Crnac spila körfubolta með Aþenu, íþróttafélagi sem Brynjar Karl Sigurðsson veitir forstöðu, þjálfari sem er gagnrýndur fyrir yfirgang og dónaskap gagnvart leikmönnum. Hvað segja stelpurnar? Sá þingmaður sem hefur verið einna mest á milli tanna fólksins í landinu, Sigurjón Þórðarson, mætir á Samstöðina í kvöld og ræðir sjávarútveg, Hafró og fleiri mál ásamt Grétari Mar Jónssyni. Skáldkonan Margrét Lóa kemur að Rauða borðinu í bókaspjall við Vigdísi Grímsdóttur og Oddnýju Eir. Þær fara yfir fjörutíu ára feril skáldkonunnar í ljóðum, hún segir frá nýjustu bók sinni, verðlaunaritinu Pólstjarnan leiðir okkur heim og sýnir okkur hinar ljóðabækurnar sem margar eru bókverk. Ævar Þór Benediktsson þýðandi og leikari og Hilmir Jensson leikstjóri koma og segja frá leikritinu Kapteini Frábærum, sem fjallar um karlmennsku og sorg. Í lokin kemur Elín Ósk Óskarsdóttir óperusöngkona og segir okkur frá því þegar hún veiktist, hvers vegna hún gat ekki sungið og hvernig hún fann röddina aftur.
    4 hr 13 min
  • Rauða borðið 12. feb - Spilling, öryggi, pólitík, jaðarljóð, klassík, brúarsmíði og heilnæmi
    Miðvikudagur 12. febrúar
    Spilling, öryggi, pólitík, jaðarljóð, klassík, brúarsmíði og heilnæmi
    Þorvaldur Logason stjórnarformaður Transparency, Jóhann Hauksson blaðamaður og Þorvaldur Gylfason hagfræðingur eru sammála um að mæliskekkja hafi verið gerð varðandi spillingu á Íslandi fremur en að spilling sé á undanhaldi. Valur Ingimundarson prófessor ræðir öryggismál Evrópu í ljósi ummæla og stefnu Donald Trump. Sigurjón Magnús fær til sín reynslubolta að ræða daginn og veginn: Drífa Sigfúsdóttir varaformaður Landssambands eldri borgara, Ólafur Þ. Harðarson prófessor og Arnar Björnsson fréttamaður fara yfir stöðuna. Þorbera Fjölnisdóttir, varaformaður NPA miðstöðvar og Sigríður Jónsdóttir, aktivisti, listakona, liðskonur Tabú, femínískrar fötlunarhreyfingar, koma að Rauða borðinu og segja okkur frá Ljóðakvöldi RVK Poetics #17: Frá hjartarótum: Skrif eftir fatlaðar konur og jaðarsett kyn. Tónlistarnemarnir Sól Björnsdóttir og Sóley Lóa Smáradóttir taka á móti Hildigunni Halldórsdóttir fiðluleikara og Helga Jónssyni slagverkskennara og ræða tónlist og tónlistarkennslu. Auður Aðalsteinsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit og Svartárkotssysturnar Sigurlína Tryggvadóttir og Guðrún S. Tryggvadóttir, sauðfjár og ferðaþjónustubændur, huldukonur í stjórn Huldu-Náttúruhugvísindaseturs, ræða um brúarsmíðina til framtíðar. Harpa Fönn Sigurjónsdóttir, lögfræðingur og umhverfissinni og Guðrún Birna le Sage, framkvæmdastjóri SUM og verkefnastjóri Pietasamtakanna segja okkur frá Samtökum um áhrif umhverfis á heilsu, helstu ógnum og mikilvægi heilnæms umhverfis fyrir okkur öll.
    5 hr 41 min
  • Rauða borðið 11. feb - Stjórnmálaátök, karlmennska, íslenskan, list, píanókeppni og Marmarabörn
    Þriðjudagur 11. febrúar
    Stjórnmálaátök, karlmennska, íslenskan, réttindi fatlaðra, píanókeppni og Marmarabörn
    Við ræðum um stjórnmálaátökin á þinginu og í borgarstjórn, Ágúst Bjarni Garðarsson, fráfarandi þingmaður, Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, prófessor, Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og Gunnar Smári Egilsson, blaðamaður spjalla við Sigurjón Magnús. María Lilja veltir fyrir sér karlmensku á krossgötum og fær til sín turnana tvo Frosta Logason, fjölmiðlamann og Þorstein V. Einarsson, kynjafræðing sem hafa tekist á í gegnum árin og þau leita af samnefnara til að bæta megi líðan karla í samfélaginu og mögulega spyrna gegn ofbeldi. Við ræðum um ögrandi áskorun varðandi innflytjendur á Íslandi: Tölum fokking íslensku. Ólafur Guðsteinn Kristjánsson, almannakennari og aðjúnkt í HÍ kemur frá Ísafirði og segir okkur frá afstöðu sinni til íslensku sem annars máls, ræðir hugtakið almannakennari og mikilvægi samfélagslegrar þátttöku í máltileinkun í spjalli við Oddnýju Eir. Brandur Bryndísarson Karlsson lamaðist fyrir neðan háls fyrir rúmum tíu árum síðan. Hann er í dag mikill baráttumaður fyrir réttindum fatlaðra milli þess sem hann sinnir myndlistinni og ferðast en hann er nýkominn heim eftir að hafa ferðast um Nepal öðru sinni. Brandur ræðir takmarkanir vegna fötlunar, myndlistina og ferðalög við Maríu Lilju. EPTA-píanókeppninni sem átti að halda í næsta mánuði í Salnum í Kópavogi hefur verið frestað með skömmum fyrirvara vegna peningaskorts og hringlandaháttar stjórnvalda. Þrír píanókennarar sem allir tengjast keppninni, Ólöf Jónsdóttir, Kristinn Örn Kristinsson og Birna Hallgrímsdóttir ræða málin við Björn Þorláksson. Marmarabörnin Sig¬urð-ur Ar¬ent Jóns¬son og Saga Kjerúlf Sigurðardóttir ræða við Gunnar Smára um sýninguna Árið án sumars, dans-tilraunaleikhús á stóra sviði Borgarleikhússins.
    4 hr 54 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners