Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið 25. feb - Lögregluofbeldi, þýsk stjórnmál, kvikmynd um flóttafólk og landbúnaður
    Þriðjudagur 25. febrúar
    Lögregluofbeldi, þýsk stjórnmál, kvikmynd um flóttafólk og íslenskur landbúnaður
    Daníel Thor Bjarnason, Pétur Eggerz, mótmælendur og Oddur Ástráðsson lögmaður ræða við okkur um Mótmælin í skuggasundinu, afleiðingar þess og málaferlin við ríkið. Við spyrjum almenning og heyrum skoðanir fólks á valdbeitingu lögreglumanna. Halldór Guðmundsson bókaútgefandi með meiru rýnir í úrslit kosninganna í Þýskalandi. Hann segir uppgang fasisma mikið áhyggjuefni og ræðir nýja stöðu Íslands í alþjóðlegu tilliti í varnarmálum. Anastasia Bortuali og Helgi Felixsson kvikmyndagerðarfólk segja okkur frá heimildamyndinni Temporary Shelter sem frumsýnd var í gær. Anastasia er flóttakona frá Úkraínu og vill með myndinni byggja brú milli tveggja heima; flóttafólks og innfæddra. Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur hjá Mjólkursamsölunni, ræðir landbúnað, stóra ostatollamálið, ESB og stöðu bænda hér á landi nú um stundir. Hún segir að þungt hljóð hafi verið hjá bændum sem fjölmenntu á fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í síðustu viku.
    2 hr 40 min
  • Rauða borðið 24. febrúar: Langtíma-covid, femínismi, Bændablaðið, brennivín og sósíalismi
    Rauða borðið 24. febrúar: Langtíma-covid, femínismi, Bændablaðið, brennivín og sósíalismi
    Gunnar Svanbergsson sjúkraþjálfari ríður á vaðið í dagskránni með áhrifaríku viðtali við Björn Þorláks. Gunnar segir þúsundir langveikra Íslendinga hafa fallið milli skips og bryggju hjá heilbrigðisyfirvöldum. Gunnar er sjálfur í hópi þeirra sem þjást af ,,longcovid." Hann lýsir persónulegum áskorunum sem felast í raun í því að læra að lifa upp á nýtt. Þau Guðrún Hulda Pálsdóttir, fráfarandi ritstjóri Bændablaðsins, og Skúli Bragi Geirdal hjá Fjölmiðlanefnd ræða stöðu blaðamennsku hér á landi. Bændablaðinu hefur í fyrsta skipti í Íslandssögunni tekist að verða meira lesið en Mogginn á höfuðborgarsvæðinu. Mahdya Malik, Najlaa Attaallah og Zara Amad frá Samtökum kvenna af erlendum uppruna tala við Maríu Lilju um það sem kallast: Minn hijab mitt val! Þær ræða kvenréttindi og óréttlætið í hvítum femínisma sem og valdeflingu sem felst í því að vera með hijab. Við segjum einnig fréttir frá ríkjum sósíalismans. Eyjólfur Eyvindsson og Kristbjörg Eva Andersen Ramos fara yfir það sem helst er að eiga sér stað í Suður Ameríku. Og við ljúkum þætti kvöldsins með gagnrýninni umræðu um áfengismál. Á sama tíma og WHO hrósar Íslendingum fyrir aðhaldsstefnu hyllir undir breytingar sem gætu gert illt verra. Árni Guðmundsson forvarnarráðgjafi ræðir áfengismál og lýðheilsu.
    4 hr 10 min
  • Synir Egils 23. feb - Verkföll, meirihluti, átök og upplausn í Evrópu eftir Trump
    Sunnudagurinn 23. febrúar
    Synir Egils: Verkföll, meirihluti, átök og upplausn í Evrópu eftir Trump
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þær Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir verkefnastjóri, Katrín Júlíusdóttir almannatengill, María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona og Sanna Magdalena Mörtudóttir forseti borgarstjórnar og ræða fréttir vikunnar og stöðuna í stjórnmálum. Síðan kemur Hilmar Þór Hilmarsson prófessor og greinir stöðu öryggismála í Evrópu eftir stefnubreytingu Bandaríkjastjórnar.
    2 hr 16 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 8
    Föstudagur 21. febrúar
    Vikuskammtur: Vika 8
    Grín á Alþingi, heimur á heljarþröm, nýr borgarmeirihluti, landsfundur sjalla, hrútspungafýla og fleiri spennandi umræðuefni verða krufin með gestum Rauða borðsins í dag klukkan 16 í Vikuskammti af fréttum.
    Í beina útsendingu mæta Snorri Ásmundsson listamaður, Kristín Erna Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Karl Héðinn Kristjánsson fræðslufulltrúi og Lenya Rún lögfræðingur.
    Þátturinn er í umsjá Björns Þorláks
    1 hr 9 min
  • Rauða borðið 20. feb - Trump, hjúkrun, próf, sjálfshatur, trans og tengslabylting
    Fimmtudagur 20. febrúar
    Trump, hjúkrun, próf, sjálfshatur, trans og tengslabylting
    Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur ræðir um áhrif Trump á Evrópu og alþjóðastjórnmálin við Gunnar Smára. Hann ræðir síðan við þær sem vilja verða formenn Félags hjúkrunarfræðinga um kjaramál, starfsaðstæður og heilbrigðiskerfið. Helga Rósa Másdóttir, Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen og Hulda Björg Óladóttir koma að Rauða borðinu. Björn Þorláks hringir í Þorlák Axel Jónsson, kennara við Háskólann á Akureyri, sem minnir á að samræmd próf voru tekin upp til að vinna gegn stéttaskiptingu. Inga Sigrún Atladóttir, kennari, skólastjórnandi, guðfræðingur, rithöfundur ræðir við Oddnýju Eir um aðgerðir gegn því sjálfshatri sem börn virðast þróa með sér innan skólakerfisins. Arna Magnea Danks ræðir við Oddnýju Eir um áframhaldandi útrýmingu trans fólks og setur í samhengi við almenna mannréttindabaráttu Ólafur Grétar Gunnarsson fjölskyldu- og hjónaráðgjafi segir Gunnari Smára frá tengslabyltingu karlmanna, lakari kvenheilsu og álagi á barnafjölskyldur.
    5 hr 14 min
  • Rauða borðið 19. feb - Úkraína, reynsluboltar, spilling, ópera, uppskera og kvóti
    Miðvikudagur 19. febrúar
    Úkraína, reynsluboltar, spilling, ópera, uppskera og kvóti
    Tjörvi Schiöth doktorsnemi greinir breytta stöðu í Úkraínu og Evrópu eftir stefnubreytingu ríkisstjórnar Trump í samtali við Gunnar Smára. Karl Garðarsson, Guðmundur Þ. Ragnarsson og Steingerður Steinarsdóttir ræða málin við Sigurjón Magnúsi. Víða var komið við, í Úkraínu, hér og þar í Evrópu, í Hvíta húsi Trump, í borgarstjórn og ríkisstjórn. Þórður Snær Júlíusson er gestur Björns Þorlákssonar í umræðu um íslenska spillingu. Þórður er sérfræðingur íslensku efnahagslífi og ræðir það sem hann nefnir strokuspillingu. Þórunn Guðmundsdóttir samdi óperuna Hliðarspor til að framlengja söguna sem hófst í Rakaranum frá Sevilla og hélt áfram með Brúðkaupi Fígarós. Hún segir frá Gunnar Smára frá sýningunni með söngfólki: Hafsteinn Þórólfsson, Þórunn Guðmundsdóttir og Guðrún Brjánsdóttir. Uppskeruhátíð. Listakonurnar Kolbrún Dögg Kjartansdóttir og Margrét M. Norðdahl ræða við Oddnýju Eir um mikilvægi uppskeruhátíða í baráttu fyrir betra lífi. Björn Ólafsson, gamall sjómaður með meiru, ræðir fiskveiðiráðgjöf Hafró við nafna sinn Þorláksson með gagnrýnum hætti.
    5 hr 2 min
  • Sósíalísk stjórnarandstaða - 5. þáttur: Samningur SÞ um réttindi fatlaðs fólks
    Miðvikudagur 19. febrúar
    Sósíalísk stjórnarandstaða - 5. þáttur
    Í þætti kvöldsins er María Pétursdóttir, myndlistarkona, aðgerðarsinni og baráttukona um réttindi fatlaðs fólks. Í þættinum munum við fara yfir samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. í ljósi þess að loksins eigi að leggja samninginn fyrir sem frumvarp til laga á Alþingi í mars.
    44 min
  • Rauða borðið 18.feb - Nató í neyð, Dylan, kjaramál, kvennasögur, nýr þingmaður og landnámsþorskurinn
    Þriðjudagur 18. febrúar
    Nató í neyð, Bubbi um Dylan, kjaramál, femínísk sagnfræð, nýr þingmaður og landnámsþorskurinn
    Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur og Kristinn Hrafnsson blaðamaður ræða um upplausn í Nató og öryggishagsmuni Íslands og Evrópu í samtali við Gunnar Smára. Hann fær síðan Bubba Morthens til að segja okkur frá áhrifum Bob Dylan á sig sem tónlistarmanns, skálds, manneskju og ástmanns. Kolbrún Halldórsdóttir ræðir við Björn Þorláks kjaramál og virðingarleysi gagnvart tilteknum starfstéttum. Við hleypum nýjum lið af stokkunum, sem við köllum "óþekkta þingmanninn". Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ríður á vaðið með Birni Þorláks. María Lilja ræðir sagnfræði við Agnesi Jónasdóttur, sem situr í stjórn Sagnfræðingafélags Íslands. Hvað kennir sagan okkur um brautryðjendur í hópi íslenskra kvenna? Í lokin koma Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir líffræðingur og Árni Daníel Júlíusson sagnfræðingur og segja Gunnar Smára frá því hvernig þorskurinn hefur breyst frá landnámi, en þá var hann stærri og eldri en hann er í dag.
    5 hr 21 min
  • Rauða borðið 17. febrúar: Ræstingar, fjölmiðlar misbeiting valds, Heim og pólitík
    Mánudagur 17. febrúar
    Ræstingar, fjölmiðlar misbeiting valds, Heim og pólitík
    Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar lýsir fyrir Gunnar Smára hvernig ræstingarfyrirtæki hafa grafið undan lífskjörum ræstingakvenna og í ofan á lag haft af þeim umsamdar kjarabætur. Hiti varð í umræðunni við Rauða borðið vegna Moggans og innflytjendamála í dag þegar Valur Grettisson Heimildinni, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp Samstöðinni og Ólafur Arnarson DV, gestir Björns Þorlákssonar létu gamminn geisa í umræðu um fjölmiðla. Björn Leví Gunnarsson fyrrverandi þingmaður Pírata tekur stöðuna í stjórnmálunum, ræðir við Oddnýju Eir um misnotkun valds og óhjákvæmilega sprengingu. Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir leikskáld og Magnús Geir Þórðarson leikstjóri og leikhússtjóri segja frá Heim, nýju verki Hrafnhildar í leikstjórn Magnúsar í spjalli við Gunnar Smára. Vilhjálmur Bjarnason fyrrum þingmaður ræddi um daginn og veginn við Sigurjón Magnús Egilsson og sagði honum sögur.
    4 hr 15 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners