Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið: Borgarpólitík, stefnuræða, voðaverk, fjölmiðlar, Þorsteinn Pálsson og raddir fólks
    Fimmtudagur 10. febrúar
    Borgarpólitíkin, stefnuræða Kristrúnar, voðaverk í Svíþjóð, fjölmiðlar, Þorsteinn Pálsson og raddir almennings
    Við hefjum leik á greiningu á stefnuræðu hins unga forsætisráðherra á Alþingi, Kristrúnar Frostadóttur.
    Fjallað verður um síðustu vendingar í stöðu borgarmálanna eftir að Einar Þorsteinsson framdi valdarán gegn sjálfum sér eins og einhver orðaði það. Munu sósíalistar hreppa borgarstjórastólastól Einars er ein spurningin.
    Jón Óðinn Waage er Akureyringur sem býr í Svíþjóð. Hann lýsir hvernig nánast tilviljun bjargaði því að dóttir hans slapp við að lenda í skotlínu fjöldamorðingjans í Örebro.
    Hundingjarnir fara á stjá og ræða um stjórnmál á götum úti. Að þessu sinni fær fólkið í borginni að pæla í borgarstjórninni og nýjum borgarstjóra.
    Hinn gamalreyndi Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við fyrrum forsætisráðherra, Þorstein Pálsson um pólitík og þjóðfélagið.
    Og Henry Alexander Henrysson, doktor í heimspeki, sem er ekki á facebook, upplýsir hvers vegna - samhliða því að fjalla um ýmis siðferðisleg álitamál er varða fjölmiðla og stjórnmálafólk.
    Rauða borðið hefst á Samstöðinni klukkan 20 í kvöld – í beinni útsendingu.
    2 hr 58 min
  • Synir Egils 9. feb - Upplausn, plott, átök og óöryggi
    Sunnudagurinn 9. febrúar
    Synir Egils: Upplausn, plott, átök og óöryggi
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Finnbjörn A. Hermannsson forseti Alþýðusambandsins, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir upplýsingafulltrúi og Svandís Svavarsdóttir formaður Vg og fara yfir viðburðaríka fréttaviku og ræða stöðu stjórnmála og efnahagsmála. Þeir bræður taka púlsinn á pólitíkinni en fá síðan góðan hóp til að ræða stöðuna í utanríkis- og varnarmálum: Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar, Sóley Kaldal öryggisverkfræðingur og stjórnarmaður í Varðbergi, Stefán Pálsson sagnfræðingur og stjórnarmaður í Samtökum hernaðarandstæðinga og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingkona og fyrrum utanríkisráðherra meta stöðuna, ekki síst út frá orðum og stefnu Donalds Trump.
    2 hr 29 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 6
    Föstudagur 7. febrúar
    Vikuskammtur: Vika 6
    Við förum um víðan völl enda umfangsmikil fréttavika. Trump og Gaza og Trump og transfólk. Svo kom þing saman, óveður, Halla forseti og Auschwitz, fjöldamorð í Svíþjóð, 75% hælisleitenda frá Úkraínu, Kennarar og flugvöllurinn svo fátt eitt sé nefnt.
    Gestir eru þau Björg Eva Erlendsdóttir, Sigurður Kári Kristjánsson, Katla Ásgeirsdóttir og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir
    1 hr 19 min
  • Rauða borðið 6. feb - Nauðungarvistun, Prójekt 2025, fötlun og menning, Radíó Gaza og bókaspjall
    Fimmtudagur 6. febrúar
    Nauðungarvistun, Prójekt 2025, fötlun og menning, Radíó Gaza og bókaspjall
    Í upphafi þáttar verður Elín Ebba Ásmundsdóttir, varaformaður Geðhjálpar, gestur Sigurjóns í beinni útsendingu. Magga Stína Blöndal, tónlistakona mætir til leiks ásamt Sigtryggi Jóhannssyni, ljósmyndara en þau eru sérstaklega fróð um málefni Gaza. Þau ræða fréttir af Bandaríkjaforseta sem hyggst nú ásamt ísraelskum stjórnvöldum flytja fólk af Gaza svæðinu til að útbúa þar lúxus-nýlendu. Arna Magnea Danks, transfréttaritari Rauða borðsins segir okkur hinsegin fréttir og frá hinu lífshættulega trömpíska prójekti 2025. Anna Rós Árnadóttir, ný rödd í ljóðaheiminum sem hlaut ljóðstaf Jóns úr Vör og Anton Helgi Jónsson sem þekkir verðlaunin vel, bæði sem verðlaunahafi og dómnefndarmaður, mæta í bókaspjall við Rauða borðið og ræða um verðlaun og ljóð og lífið. Rannveig Traustadóttir, prófessor emerita í fötlunarfræðum við HÍ kemur í lok þáttar til Maríu Lilju og ræðir menningarhátíðina Uppskeru og almennt um listir, fötlun og fræði
    3 hr 35 min
  • Rauða borðið 5. feb - Spilling, vítissódi, vextir, leiklist, reynsluboltar og neytendamál
    Miðvikudagur 5. febrúar
    Spilling, vítissódi, vextir, leiklist, reynsluboltar og neytendamál
    Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, kemur og bregst við stýrivaxtalækkun Seðlabankans. Er til góðs að ný ríkisstjórn leggi fram nýtt búvörufrumvarp? Breki svarar því. Sigurjón Magnús Egilsson fær landslið reynslubolta til að ræða ýmis mál. Þau Jakob Frímann Magnússon, Erna Indriðadóttir, fyrrum fréttakona og Einar Kárason rithöfundur láta gamminn geysa – ekki missa af því. Einnig verður áhugaverð menningarumfjöllun í þættinum. Gunnar Smári ræðir við Björk Jakobsdóttur leikstjóra, Óla Gunnar Gunnarsson leikara og handritshöfund og Vigdísi Höllu Birgisdóttur leikkonu. Leikverkið Tóm hamingja verður til umfjöllunar, leikrit sem Gaflaraleikhúsið hefur sett upp í Borgarleikhúsinu. Þorvaldur Logason heimspekingur og rithöfundur og Hallfríður Þórarinsdóttir doktor í menningarmannfræði koma og ræða hvaða áhrif geta orðið af umfjöllun um spillingu á þessu litla og skrýtna skeri okkar. Þorvaldur er höfundur Eimreiðarelítunnar, sem vakið hefur mikla athygli. Við endum Rauða borðið á áhugaverðu deilumáli í Hvalfirði. Þar á að setja mikið magn af vítissóda í sjóinn innan skamms og sýnist sitt hverjum um ágæti þess. Haraldur Eiríksson sem hefur hagsmuna að gæta kemur og ræðir við okkur.
    3 hr 40 min
  • Sósíalísk stjórnarandstaða - 3. þáttur: Húsnæðismál öryrkja
    Miðvikudagur 5. febrúar
    Sósíalísk stjórnarandstaða - 3. þáttur
    Í þættinum í kvöld fáum við til okkar Kjartan Þór Ingason, verkefnastjóra hjá Réttindasamtökum ÖBÍ, og Maríu Pétursdóttur, formann húsnæðishóps ÖBÍ. Þau eru höfundar skýrslu um húsnæðismál fatlaðs fólks, sem kom út í nóvember árið 2023. Stiklað verður á stóru um stöðu fatlaðs fólks á húsnæðismarkaðnum og hvers má vænta af nýrri ríkisstjórn í málaflokknum þegar litið er til nýútgefinnar málefnaskrár hennar.
    57 min
  • Rauða borðið 4. feb - Alþingi, þýskar kosningar, hinsegin barátta, listir, trúmál og öryggi barna
    Þriðjudagur 4. febrúar
    Valdaumskipti á Alþingi, þýskar kosningar, hinsegin barátta, listir, trúmál og öryggi barna
    Helga Vala Helgadóttir lögmaður og fyrrum þingkona greinir þau miklu umskipti sem hafa orðið í valdatafli landsmanna með því að flokkar sem vanir eru að sitja í ríkisstjórn eru nú í stjórnarandstöðu og öfugt. Alþingi var sett í dag. Við höldum áfram að ræða um trúmál og fáum til okkar fulltrúa andans að Rauða borðinu, Davíð Þór Jónsson þjóðkirkjuprest og Sverri Agnarsson, fjölmiðlaráðgjafa og múslima. Þau ræða meðal annars aukna kirkjusókn, fordóma gagnvart trúarbrögðum, einn guð og feðraveldið. Auðunn Arnórsson stjórnmálafræðingur fer yfir stöðuna í þýskum stjórnmálum í aðdraganda kosninga. Auður Magndís, Ugla Stefanía og Íris Ellenberger ræða bakslag í hinsegin baráttu. Herdís Storgaard fjallar um öryggi barna og viðureignir við kerfið. Ólöf Ingólfsdóttir dansari og söngvari segir okkur frá endurkomu sinni í listina og ræðir verk sitt Eitthvað um skýin.
    4 hr 26 min
  • Rauða borðið 3. feb: Ríkisstjórn, kennaraverkfall, glæpir, rasismi, Mogginn, lágstéttarkona, trú og baskavígin
    Mánudagur 3. febrúar
    Ríkisstjórn, kennaraverkfall, glæpir, rasismi, Mogginn, lágstéttarkona trú og baskavígin
    Við byrjum á að fara yfir verkefnaskrá ríkisstjórnarinnar og fáum síðan forystu kennara til ræða yfirstandandi og komandi verkföll: Haraldur Freyr Gíslason, formaður leikskólakennar, Mjöll Matthúasdóttir, formaður grunnskólakennara, Guðjón Hreinn Hauksson formaður framhaldsskólakennara og Sigrún Grendal formaður tónlistarkennara mæta að Rauða borðinu. Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur ræðir um undirheimana og þróun glæpa á Íslandi. Oddný Eir og María Lilja fóru á stúfana og heyrðu hvað fólk á förnum vegi hefur að segja um rasisma, og svo berst talið líka að Grænlandi. Er Morgunblaðið fyrst og fremst í pólitík fremur en sanngjörnum fréttum þessa dagana? Blaðamennirnir Ólafur Arnarson, Jón Ferdinand Esterarson, Oddný Eir Ævarsdóttir og Atli Þór Fanndal ræða málin með Birni Þorláks. Þórey Birgisdóttir leikari og Anna María Tómasdóttir leikstjóra hafa þýtt og staðfært einleikinn Ífigeníu í Ásbrú, sem Þórey leikur snilldarvel í Tjarnarbíói. Verkið fjallar um grimman samtíma okkar, segir sögu stúlku sem við kannski sjáum ekki og viljum ekki sjá. Karlar sækja kirkjuna í auknum mæli, er það jákvæð þróun eða ber það vott um afturhvarf til íhaldsins? María Lilja fær til sín þau Karl Héðinn Kristjánsson og Ingu Auðbjörgu Straumland sem eiga það sameiginlegt að vera forsvarsfólk lífskoðunarfélaga: DíaMat og Siðmenntar. Í Tjarnabíói er annar einleikur um baskavígin, byggður Arisman eftir Tapio Koivukari. Þar fer Elfar Logi Hannesson með hlutverk Jóns lærða sem afhjúpaði glæpa Ara í Ögri (sem Elfar Logi leikur líka). Við fáum hann og dóttur hans, Sunnefu Elfarsdóttur búningahönnuð, ásamt Héðni Birni Ásbjörnssyni formanni Baskasetursins og Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur þjóðfræðing til að ræða verkið og fjöldamorðin á baskneskum skipbrotsmönnum.
    4 hr 59 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners