Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Sósíalísk stjórnarandstaða - 1. Þáttur - Rýnt í stjórnarsáttmálann
    Fimmtudagur 23. janúar
    Sósíalísk stjórnarandstaða - 1. Þáttur
    Þátturinn Sósíalísk stjórnarandstaða hefur göngu sína, þar sem sósíalistar koma saman til að ræða málefni samfélagsins út frá sósíalískum áherslum. Þáttastjórnendur eru Þórdís Bjarnleifsdóttir og Rán Reynisdóttir.
    Í þættinum í dag verður rætt um nýju ríkisstjórnina og stefnuyfirlýsingu Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins út frá sósíalískum áherslum. Viðmælendur þáttarins eru sósíalistarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi sósíalista, og Eyjólfur Eyvindarsson, leikstjóri og tónlistarmaður.
    1 hr 2 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 4
    Föstudagurinn 24. janúar
    Vikuskammtur: Vika 4
    Í Vikuskammt við Rauða borðið koma í dag þau Gunni Hilmars tísku og tónlistarmaður, Heiða Eiríksdóttir, tónlistarkona og heimspekingur, Hrönn Sveinsdóttir bíóstjóri og Símon Birgisson kennari og leiklistargagnrýnandi og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af framrás fasisma, komandi verkföllum og handbolta.
    1 hr 35 min
  • Rauða borðið 23. jan - Yfirdráttur, klassík, kjötneysla dýravernd, bómenntir og BNA
    Fimmtudagur 23. janúar
    Yfirdráttur, klassík, kjötneysla dýravernd, bómenntir og BNA
    Við hefjum leik á Samstöðinni í kvöld með Stefáni Jóni Hafstein sem færir okkur sláandi upplýsingar um umhverfismál. Á morgun, 24. janúar, fer Ísland á ,,yfirdrátt” gagnvart vistkerfunum, það er að segja ef önnur lönd væru með eins stórt vistspor. Við göngum allra ríkja mest á auðlindir. Og rætt verður endurkjör Trump og áhrif þess á umhverfið. Tónlistarnemarnir Sóley Smáradóttir og Sól Björnsdóttir taka því næst á móti Daníel Bjarnasyni tónskáldi og hljómsveitarstjóra og Ingibjörgu Ýr Skarphéðinsdóttur tónskáldi í Klassíkin rokkar. Jóhanna Eyrún Torfadóttir lektor í næringarfræði og Thor Aspelund prófessor í tölfræði koma og ræða um kjötneyslu. Framkvæmdastjóri Dýraverndarsambands Íslands og Katrín Oddsdóttir, mann- og dýraréttindalögfræðingur segja margt bíða nýrrar ríkisstjórnar með tilliti til dýravelferðar sem hafi setið á hakanum vegna vanmáttugs kerfis. Tími sé kominn á að færa Ísland aftur til náttúrunnar en ekki í hendur auðvaldsins og stórfyrirtækja. Vigdís Grímsdóttir og Oddný Eir ræða við skáldkonuna Ásdísi Óladóttur um ljóðabók hennar Rifsberjadalurinn, ljóðlistina, 30 grömmin, geðveikina og sköpunarkraftinn. Við ljúkum þætti kvöldsins með zoom-viðtali við Rósu Guðmunds sem er búsett í L.A. Hún segir okkur frá eldunum sem þar hafa geisað og embættistöku nýs forseta.
    4 hr 53 min
  • Rauða borðið 22. jan - Kveikja, Reynsluboltar, Óöld, Heimsendakvíði og Ungfrú Ísland
    Miðvikudagur 22. janúar
    Kveikja, Reynsluboltar, Óöld, Heimsendakvíði og Ungfrú Ísland
    Í tilefni af opnu húsi fyrir feminista og kvennréttindakonur og í upphafi kvennaárs koma fjórar konur, sem líka eru frummælendur á viðburðinum Kveikja, til spjalls um stöðu baráttunnar og helstu baráttumál. Sara Stef Hildar, Guðný S. Bjarnadóttir, Ólöf Tara Harðardóttir og María Hjálmtýsdóttir. Mjöll Matthíasardóttir formaður Félags grunnskólakennara segir að ofbeldismál innan grunnskólanna sem verði opinber séu aðeins toppurinn á ísjakanum. Reynsluboltarnir taka við í spjalli við Sigurjón Magnús, gestir hans eru þau Viðar Eggertsson, Lísa Pálsdóttir, Hallfríður Þórarinsdóttir og Bjarki Bjarnason. Þau tala um það sem helst brennur á okkur. Sæunn kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur ræðir um heimsendakvíða, hlýnun jarðar, og gáfaða dýrið sem þarf að hlusta á og ræða við til að komast út úr svart-hvítri heimsmynd og líðan. Við ræðum síðan um Ungfrú Ísland í Borgarleikhúsinu við aðstandendur, um erindi verksins við samfélagið, söguna og okkur sjálf. Auður Ava Ólafsdóttir höfundur, Gréta Kristín Ómarsdóttir leikstjóri, og leikararnir Fannar Arnarsson og Íris Tanja Flygenring koma að Rauða borðinu.
    4 hr 46 min
  • Rauða borðið 21. jan - Trump, fjölmiðlar, rasismi, dauðinn og nýlenduhyggja
    Þriðjudagur 21. janúar
    Trump, fjölmiðlar, rasismi, dauðinn og nýlenduhyggja
    Hvaða áhrif gæti endurkjör Trump haft á upplýsingaóreiðu og fréttamennsku? Blaðamennirnir Jón Ferdinand Estherarson, Guðmundur Gunnarsson, Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir og Gunnar Smári Egilsson ræða málin með Birni Þorláks. Við ræðum kynþáttafordóma við Snorra Sturluson og Tryggva Scheving Thorsteinsson, eiga börn sem hafa annan húðlit en við flest. Og sláum á þráðinn til Ásgeirs H. Ingólfssonar skálds og menningarblaðamanns sem fékk þau tíðindi í síðustu viku að hann ætti mögulega bara nokkrar vikur ólifaðar. Og ákvað að efna til menningardagskrár af því tilefni. Í lokin kemur Hlynur Hallsson í heimsókn og ræðir norðrið og nýlenduhyggjuna.
    3 hr 13 min
  • Rauða borðið 20. janúar: Vigdís, Valhöll, vopnahlé, kosningaklúður og börn á flótta
    Mánudagur 20. janúar
    Vigdís, Valhöll, vopnahlé, kosningaklúður og börn á flótta
    Við byrjum á smá yfirferð yfir þættina um Vigdísi en fáum svo Jón Gunnarsson, fyrrum ráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, til að ræða formannskjör og Landsfund. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir á ekki hans stuðning sem formannsefni. Qussay Odeh íslensk-palestínskur aktivisti fer yfir stöðuna í upphafi vopnhlés. Kristján Sveinbjörnsson, umboðsmaður Samfylkingarinnar í SV-kjördæmi, hefur tekið saman nýtt minnisblað og sent landskjörstjórn vegna ágalla við síðustu þingkosningar. Síendurteknar brotalamir grafa undan trausti. Morgané Priet-Mahéo stjórnarkona samtakanna Réttur Barna á flótta segir að flóttabörn glími við margvísleg vandamál vegna lítils opinbers utanumhalds.
    3 hr 3 min
  • Sunnudagurinn 19. janúar - Synir Egils: Virkjanir, verkfall, valdaskipti og vopnahlé
    Sunnudagurinn 19. janúar:
    Synir Egils: Virkjanir, verkfall, valdaskipti og vopnahlé
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þær Ragnheiður Ríkarðsdóttir fyrrum bæjarstjóri og þingmaður, María Rut Kristinsdóttir þingkona og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og ræða fiskeldi, virkjanir, yfirvofandi verkfall kennara, átök og frið. Þeir bræður taka púlsinn á pólitíkinni og Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi og Stefán Pálsson borgarfulltrúi ræða valdaskiptin í Bandaríkjunum og vopnahlé á Gaza.
    2 hr 23 min
  • Rauður raunveruleiki - Sjáum samfélagið / Viðar Halldórsson
    Viðar Halldórsson í frábæru samtali um samfélagið og nýju bókina hans „Sjáum samfélagið“.
    Rætt var um mikilvægi félagslegra tengsla, um varhugaverða þróun samfélagsins að undanförnu. Mögulegar orsakir aukins kvíða, einmanaleika, kulnunar og jafnvel siðrofs.
    Rannsóknir hafa sýnt fram á það að það sem veitir fólki mestu lífshamingjuna eru ekki veraldlegir hlutir eða velsnægtir heldur frekar þau félagslegu tengsl sem við myndum yfir ævina, við okkar nánustu, nærsamfélagið og samfélagið í heild sinni.
    Það er mikilvægt að staldra annað slagið við og spyrja okkur hvert samfélagið er að þróast. Fiskar í vatni geta átt erfitt með að átta sig á því að þeir séu í vatni. Og hvert vatnið gæti verið að taka þá.
    Þetta og fleira á Samstöðinni klukkan 20:00 í kvöld!
    55 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners