Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 2
    Föstudagurinn 10. janúar
    Vikuskammtur: Vika 2
    Í Vikuskammt við Rauða borðið koma í dag þau Svala Magnea Ásdísardóttir formaður Málfrelsis, Margrét Örnólfsdóttir kvikmyndahöfundur, Elín Oddný Sigurðardóttir teymisstjóri Virknihúss og Sigtryggur Baldursson trommari og ræða fréttir vikunnar sem einkennast af afsögn, yfirgangi, stjórnmálafólki á útleið og öðrum á leið til valda.
    1 hr 29 min
  • Rauða borðið 9. jan - L.A. logar, Grænland, Yerma, brúðuleikhús og Samúel Jónsson
    Los Angeles brennur; Jakob Frímann Magnússon, fyrrum þingmaður og tónlistarmaður er sérfræðingur í málefnum borgarinnar sem aldrei sefur, nema kannski á verðinum yfir loftslagsvánni ræðir stórbrunann og afleiðingar hans við Maríu Lilju. Þá taka við þau Oddný Eir og Jón Helgi Þórarinsson, tölvuleikjasmiður sem áður bjó í Grænlandi hvar eiga sér nú stað miklar vendingar í pólitíkinni varðandi sjálfstæði þjóðarinnar. Gísli Örn Garðarsson leikstjóri, Gunnlaugur Briem trommari og tónskáld og leikararnir Nína Dögg Filippusdóttir og Björn Thors ræða jólasýningu Þjóðleikhússins, Yermu, erindi verksins og umfjöllunarefni. Helga Arnalds og Sólveig Guðmundsdóttir segja okkur frá þverfaglega tilraunabrúðuleikhúsinu Tíu fingur sem setur á svið heilandi og má segja terapískar leiksýningar fyrir börn og fullorðna, nú síðast Líkaminn er skál í Tjarnarbíói en Tíu fingur fagna nú tíu ára afmæli með áhugaverðri dagskrá sem snertir mörg ólík svið lífs, lista og fræða.Í lokin koma Ólafur J. Engilbertsson menningarmiðlari og Kári Schram kvikmyndagerðarmaður og segja okkur frá Samúel Jónssyni og verkum hans, byggingum og líkneskjum sem finna má í Selárdal.
    3 hr 50 min
  • Rauða borðið 8. jan - Arfleið Bjarna Benediktssonar
    Miðvikudagur 8. janúar
    Arfleið Bjarna Benediktssonar
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilsson fá gesti til að ræða arfleið Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, sem sagði af sér þingmennsku á mánudaginn. Fyrst koma Þórður Gunnarsson hagfræðingur, Marinó G. Njálsson tölvunarfræðingur og Margrét Helga Erlingsdóttir fréttakona og ræða Sjálfstæðisflokkinn undir Bjarna, hvernig flokk tók hann við og hver er flokkurinn í dag. Gunnar Smári ræðir síðan við Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóra Vísbendingar um ríkisfjármálin og efnahagsmálin undir Bjarna. Í lokin fær Sigurjón gesti til að ræða um spillingu á tíma Bjarna; Atli Þór Fanndal upplýsingafulltrúi, Þór Saari fyrrverandi þingmaður, Birgitta Jónsdóttir og Björn Þorláksson blaðamaður meta áhrif Bjarna á siðferði í stjórnmálum.
    2 hr 35 min
  • Rauða borðið 7. jan - Sprúttsalar, Færeyjar, loftlagsmál, umhverfi og byggðamál
    Þriðjudagur 7. janúar
    Sprúttsalar, Færeyjar, loftlagsmál, umhverfi og byggðamál
    Vegna hávaða af framkvæmdum er þáttur kvöldsins snöggsoðinn (og í sumum viðtölum má heyra bornið í fjarska). Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi ræðir ólöglega áfengissölu og siðlausa áfengisframæleiðendur og Carl Jóhan Jensen rithöfundur segir fréttir fra Færeyjum, títt af bókmenntum og pólitík. Árni Finnsson hjá Náttúruverndarsamtökum Íslands auglýsir eftir fleiri talsmönnum umhverfisverndar og Andrés Skúlason ræðir umhverfis- og byggðamál.
    2 hr 56 min
  • Rauða borðið 6. jan - Bjarni, veður, leikhús, þrettándinn, Carter
    Mánudagur 6. janúar
    Bjarni, veður, leikhús, þrettándinn, Carter
    Við byrjum á að ræða frétt dagsins, afsögn Bjarna Benediktssonar. Og ræðum síðan veðrið við Trausta Jónsson veðurfræðing. Förum á Köttur á heitu blikkþaki og ræðum sýninguna við aðstandendur: Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri og leikararnir Sigurður Ingvarsson, Hilmir Snær Guðnason og Ásthildur Úa Sigurðardóttir ræða grimm samskipti og leyndarmál. Eru jólasveinar byltingarmenn? Þjóðfræðingarnir Jón Jónsson, Dagrún Ósk Jónsdóttir og Kristinn Schram ræða þjóðfræði þrettándans og ýmsa forna og samtíma galdra. Í lokin segir Tjörvi Schiöth okkur frá Jimmy Carter, fyrrum Bandaríkjaforseta, sem lést nýverið í hárri elli.
    4 hr 18 min
  • Synir Egils 5. jan - Nýtt ár, nýir tímar, nýr og háskalegur heimur
    Sunnudagurinn 5. janúar:
    Synir Egils: Nýtt ár, nýir tímar, nýr og háskalegur heimur
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Kristinn Hrafnsson blaðamaður, Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir upplýsingafulltrúi og fara yfir stöðuna um áramót, nýja ríkisstjórn og stöðuna í pólitíkinni. Þeir bræður munu taka púlsinn og fá svo Hilmar Þór Hilmarsson prófessor til að meta utanríkisstefnu nýrrar ríkisstjórnar í ljósi breyttrar heimsmyndar.
    2 hr 55 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 1
    Föstudagur 3. janúar
    Vikuskammtur: Vika 1
    Í fyrsta þætti Rauða borðsins á glænýju ári, Vikuskammti, fær Björn Þorláksson til sín góða gesti til að gera upp líðandi stundu og ræða helstu fréttir og tíðaranda. Þau Viðar Eggertsson leikari, Margrét Tryggvadóttir rithöfundur, Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur og Matthías Imsland framkvæmdastjóri ræða stöðu samfélagsins og horfur næstu vikur - nú þegar hrein valdaskipti hafa orðið á Alþingi og sitthvað gæti tekið breytingum. Þá fær Áramótaskaupið sérstaka athygli í umræðunni.
    1 hr 21 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners