Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 50
    Föstudagurinn 13. desember
    Vikuskammtur: Vika 49
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Björn Halldórsson rithöfundur, Hólmar Hólm verkefnastjóri og ritstjóri, Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur og Ingimar Karl Helgason grunnskólakennari og fyrrverandi fréttamaður og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af stjórnarmyndun, átökum, hernaði og von um betri tíð.
    1 hr 33 min
  • Rauða borðið 12. des - Mið-Austurlönd, þessir helvítis karlmenn, þýðendur og örlagavaldur
    Fimmtudagur 12. desember
    Mið-Austurlönd, þessir helvítis karlmenn, þýðendur og örlagavaldur
    Þórir Jónsson Hraundal, lektor í Mið-Austurlandafræðum og arabísku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands ræðir við okkur um eftirleikinn eftir fall Assads í sýrlandi. Mögulegar hættur vegna uppgangs öfgahópa á svæðinu, innrásir Ísraela á nágranna sína og skýrir áhrif þessa alls á fólkið sem enn situr fast á Gaza í miðju þjóðarmorðs. Til að ræða nýútkomna þýðingu á verðlaunabókinni Þessir helvítis karlmenn mætir þýðandinn sjálfur, Þórdís Gísladóttir rithöfundur og Valgerður Ólafsdóttir, skólasálfræðingur og rithöfundur og ræða bókina. Til að ræða nýjar samtímabókmenntir sem koma nú út í þýðingum mæta Snæfríð Þorsteins, Helga Soffía Einarsdóttir, Einar Kári Jóhannsson og María Rán Guðjónsdóttir og segja okkur frá nýjum þýðingum og stöðu þýðinga í íslenskum samtímabókmenntum. Peter Maté er Íslendingum að góðu kunnur, hann hefur reynt mikill áhrifavaldur í íslensku listalífi og kenndi bæði Laufeyju og Víkingi Heiðari að leika á hljóðfæri. Peter ræðir við Björn Þorláks.
    3 hr 21 min
  • Rauða borðið 11. des: Kosningafúsk, fangelsismál, bókaspjall, loftslagsmál, þungarokk og ættarfylgja
    Rauða borðið miðvikudagur 11. desember
    Kosningafúsk, fangelsismál, bókaspjall, loftslagsmál, þungarokk og ættarfylgja
    Við bjóðum uppá hlaðborð ólíkra mála hér við rauða borðið miðvikudagskvöldið ellefta desember, nú þegar stekkjastaur ætti að vera að skrölta til byggða. Það eru þó engir jólasveinar á meðal gesta okkar í kvöld. Björn Þorláksson ríður á vaðið ásamt umboðsmanni framboðs Samfylkingarinnar sem er ekki sáttur við meðferð atkvæða. Þá koma fulltrúar fanga í Afstöðu til Maríu og ræða brýnar úrbætur á fangelsismálum. Þær Oddný Eir og Vigdís Grímsdóttir taka lifandi og lífrænt spjall um bækur. Þorgerður María, hjá landvernd lítur við og köttar krappið í umræðunni um loftslagsmál. María og Oddný fara svo á hugarflug með hávaðarokkurum í osme og Björn lokar svo þættinum með harmrænni ættarfylgju.
    Útsendingu stýrðu Laufey Líndal og Pétur Fjeldsted.
    Spenniði eyrun vel það er gott spjall framundan.
    4 hr 29 min
  • Rauða borðið 10. desember: Hervæðing, mannréttindi, listamannalaun, einstaklingurinn og o.k.
    Þriðjudagur 10. desember
    Hervæðing, mannréttindi, listamannalaun, einstaklingurinn og o.k.
    Guttormur Þorsteinsson formaður og Soffía Sigurðardóttir ritari miðnefndar Samtaka hernaðarandstæðinga andmæla hernaðaruppbyggingu í Keflavík og breyttum áherslum fráfarandi ríkisstjórnar í öryggis- og varnarmálum. Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International og Árni Kristjánsson ungliða- og aðgerðastjóri Amnesty og Edda S. Arhúrsdóttir ungliði segja okkur frá mannréttindabaráttu á tímamótum, bíómynd, svartri skýrslu og helstu áskorunum dagsins í dag. Þórhallur Guðmundsson stjórnsýslufræðingur ræðir ágalla við núverandi kerfi listamannalauna. Lárus Ýmir Óskarsson kvikmyndagerðarmaður ræðir samband menningar og stjórnmála. Hann segir áhrif einstaklinga á söguna ofmetin. Í lokin segir séra Sigurður Ægisson frá uppruna og notkun orðsins o.k., en hann hefur skrifað heila bók um efni.
    4 hr 10 min
  • Rauða borðið 9. des: Brottvísanir, gul verkalýðsfélög, Sýrland, kosningar, goðsagnir og ópera
    Mánudagur 9. desember
    Brottvísanir, gul verkalýðsfélög, Sýrland, kosningar, goðsagnir og ópera
    Sigurður Pétursson sagnfræðingur segir okkur frá gulum verkalýðsfélögum og Sigurlín Bjarney Gísladóttir kennari um áhrif brottvísana flóttafólks á þau sem hafa kynnst þessum einstaklingum. Tjörvi Schiöth doktorsnemi í sagnfræði segir okkur frá valdaskiptum í Sýrland og Tómas Ellert Tómasson fyrrum bæjarfulltrúi Miðflokksins í Árborg efast um að kosningalög og umbúnaður kosninga á Íslandi sér lýðræðislegur. Ingunn Ásdísardóttir um norrænar goðsagnir í nýju ljósi en hún fjallar um þetta í nýrri bók: Jötnar hundvísir. Þær Helga Þórey Jónsdóttir, kennari og menningarfræðingur og Katrín Harðardóttir, þýðandi og glimmermótmælandi koma og ræða stríð, mótmæli og byltingu í radio gaza. Ragnar Pétur Jóhannsson bassi, Sólveig Sigurðardóttir sópran, Áslákur Ingvarsson baríton og Þórhallur Auður Helgason tenór segja okkur frá Rakaranum í Sevilla og erindi óperunnar til okkar tíma.
    4 hr 15 min
  • Synir Egils 8. desember: Fréttir og verkefni nýs þings og stjórnvalda
    Sunnudagurinn 8. desember:
    Synir Egils: Fréttir og verkefni nýs þings og stjórnvalda
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Helgi Seljan blaðamaður, María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona og Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB og ræða fréttir og pólitík dagsins. Þeir bræður fara líka yfir sviðið í stjórnmálunum og fá líka til liðs tvo nýja þingmenn flokka sem standa í ríkisstjórnarmyndun. Pawel Bartoszek þingmaður Viðreisnar og Guðmundur Ari Sigurjónsson þingmaður Samfylkingar ræða hvaða verkefni bíða endurskipuðu þingi.
    2 hr 11 min
  • Vikuskammtur: Föstudagurinn 6. desember
    Föstudagurinn 6. desember
    Vikuskammtur: Vika 49
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Vera Wonder Sölvadóttir kvikmyndaleikstjóri, Atli Bollason myndlistarmaður, Natalie G. Gunnarsdóttir plötusnúður og Hye Joung Park myndlistarkona og kennari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af kosningum og mati hverju þær breyta, hvalveiðileyfi, þjóðarmorði og átökum í heimsmálum.
    1 hr 40 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners