Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið: Sósíalismi, verkalýðsfélög, stjórnarmyndun, stjórnmál, listamannalaun, veðrið og konur
    Fimmtudagur 5. desember
    Sósíalismi, gul verkalýðsfélög, stjórnarmyndun, ung stjórnmál, listamannalaun, veðrið og konur í sögunni
    Við ræðum við Sönnu Magdalenu Mörtudóttur leiðtoga Sósíalista um kosningarnar og stöðuna að þeim loknum. Viðar Þorsteinsson, fræðslu- og félagsmálastjóri Eflingar, segir okkur frá gulum verkalýðsfélögum. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur fjallar um starfsstjórnir og stjórnarmyndun og Jósúa Gabríel Davíðsson formaður Ung vinstri grænna og Lenya Rún Taha Karim formaður Ungra Pírata ræða kosningar og stöðu sinna hreyfinga. Hulda Rós Guðnadóttir, myndlistarkona og Hermann Stefánsson, rithöfundur ræða um úthlutun listamannalauna og Trausti Jónsson veðurfræðingur talar um veðrið. Í lokin segir Erla Hulda Halldórsdóttir sagnfræðingur okkur frá Sigríði Pálsdóttur, nítjándu aldar konu og stöðu kvenna á þeim tíma.
    5 hr 6 min
  • Rauða borðið 4. des - Strafsstjórn, brottnám, börn, róttækni og hamborgarhryggir
    Miðvikudagur 4. desember
    Strafsstjórn, brottnám, börn, róttækni og hamborgarhryggir
    Við ræðum starfsstjórnir og stjórnarmyndun við Gísla Tryggvason lögmann og Vilhjálm Egilsson gamalreyndar stjórnmálamann. Viktoría Þórunn, rússnesk kona sem hér hefur dvalið árum saman, var handtekin og flutt nauðug til síns heimalands. Alma Gunnlaugsdóttir segir okkur frá örlögum vinkonu sinnar. Davíð Kristinsson heimspekingur og aðjúnkt á menntavísindasviði HÍ ræði róttækt hægri og róttækt vinstri á okkar tímum og Guðjón Friðriksson segir okkur frá börnum í Reykjavík síðustu eina og hálfa öldina, hvernig staða þeirra og veröld hefur breyst. Í lokin ræða feðginin Rósa Líf Darradóttir og Darri Gunnarsson um dýravelferðarátak fyrir jólin, segja okkur frá hryggum svínahryggum á jólum.
    3 hr 34 min
  • Rauða borðið 3. desember: Kosningar, spilling, kosningakerfi, vinstrið, fangar og bridge
    Þriðjudagur 3. desember
    Kosningar, spilling, kosningakerfi, vinstrið, fangar og bridge
    Var nógu mikið rætt um spillingu fyrir kosningarnar? Veltur á því hvaða flokkar skipa stjórn hve mikið aðhald verður gegn spillingu? Þau Marínó G. Njálsson kerfisfræðingur, Jasmina Vajzovic ráðgjafi og Atli Þór Fanndal ráðgjafi, ræða úrslit kosninganna og framtíðina. Það gera líka Þorvaldur Gylfason prófessor, einkum brotið kosningakerfi, og Andrés Ingi Jónsson fyrrum þingmaður Vg og Pírata, einkum um stöðu vinstrisins. Sindri Freysson hefur skrifað bók um íslenska fanga Breta á hernámsárunum og segir okkur sá sögu. Í lokin segir Matthías Imsland framkvæmdastjóri Bridgesambandsins hvers vegna hugaríþróttir efla rökhyggju ungmenna.
    3 hr 54 min
  • Rauða borðið 2. des - Nýir þingmenn, vinstrið, Píratar og ástandið
    Mánudagur 2. desember
    Nýir þingmenn, vinstrið, Píratar og ástandið
    Sigurjón Magnús Egilsson fær til sín nýja þingmenn og ræðir við þá um pólitíkina: Ólafur Adólfsson frá Sjálfstæðisflokki, Jón Gnarr frá Viðreisn, Ása Berglind Hjálmarsdóttir frá Samfylkingu og Halla Hrund Logadóttir frá Framsókn. Ögmundur Jónasson fyrrum ráðherra VG fer yfir stöðu vinstrisins og Björn Leví Gunnarsson fyrrum þingmaður Pírata metur hvað fór úrskeiðis hjá þeim flokki. Guðrún Jónína Magnúsdóttir segir okkur svo frá því stúlkur máttu þola á ástandsárunum.
    3 hr 14 min
  • Synir Egils 1. des - Uppgjör kosninga
    Sunnudagurinn 1. desember:
    Synir Egils: Uppgjör kosninga
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir upplýsingafulltrúi, Helga Vala Helgadóttir lögmaður, Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar og Karen Kjartansdóttir ráðgjafi og gera upp kosningarnar og pólitíkina.
    2 hr 17 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Júlíus K Valdimarsson
    Laugardagur 30. nóvember
    Helgi-spjall: Júlíus K Valdimarsson
    Júlíus K Valdimarsson segir okkur frá lífi sínu í tónlist og baráttu fyrir betra lífi. Hann lýsir samvinnuhugsjóninni og eins tímanum þegar samfélag okkar var mulið niður innan frá í nýfrjálshyggju og ræðir mikilvægi þess að fara að raunverulegri rót vandans til að byggja upp frjálst samfélag samkenndar og mennsku.
    1 hr 47 min
  • Rauða borðið: Vikuskammtur föstudagur 29. nóvember
    Það er líf og fjör á endaspretti kosningabaráttunnar og við upphaf aðventu. Við rennum yfir fréttir vikunnar með frambjóðendum sósíalista þeim Maríu Péturs og Guðmundi Auðuns. Þau njóta liðsinnis tveggja gjörningalistamanna, pólitísku mannréttinda-trúðanna Margots og Plongs. Þar sem Plong er hljóðlátur trúður verður Margrét Baldursdóttir, túlkur einnig með í för en hún ku túlka hugsanir.
    1 hr 15 min
  • Rauða borðið 28. nóvember: Kosningar, leigjendur, saga í austri og skynfinning
    Fimmtudagur 28. nóvember
    Kosningar, leigjendur, saga í austri og skynfinning
    Ritstjórn Samstöðvarinnar fer yfir kappræður dagsins og stöðuna í kosningabaráttunni: Oddný Eir Ævarsdóttir, Sigurjón Magnús Egilsson, María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp, Björn Þorláksson og Gunnar Smári Egilsson. Við förum út á götu og ræðum við almenning sem virðist að mestu leyti búinn að gera upp hug sinn, þó ekki allir. Við flökkuðum um bæinn í leit af svörum um hvað skuli kjósa. Starfandi formaður Leigjendasamtakanna, Yngvi Ómar Sighvatsson segir okkur frá niðurstöðum könnunar um lausn stjórnmálaflokkanna á húsnæðiskrísunni. Sósíalistar reyndust vera með bestu lausnina. Saga Unnsteinsdóttir, listahöfundur sem skipar 3. sæti á lista Sósíalista í Norðaustur kjördæmi segir okkur frá kosningabaráttunni fyrir austan, frá friðarbaráttunni og öðrum kosningamálum sem brenna á fólki og hvetur ungt fólk til að taka þátt í pólitík
    Hvað er skynfinning? Dr. Sigríður Þorgeirsdóttir heimspekingur ræðir málin og veltir því fyrir sér hvort sé mikilvægt að ræða heimspeki í aðdraganda kosninganna.
    3 hr 17 min
  • Grimmi og Snar - #30 Þetta er allt gott og blessað, munið bara að borða vel 😱🥶🥵
    Fimmtudagur 28. nóvember
    Grimmi og Snar - #30 Þetta er allt gott og blessað, munið bara að borða vel 😱🥶🥵
    Í þætti dagsins kemur Alexandra Briem Pírati 💜 til Grimma og Snar, hún kemur kannski úr geimriki en Grimmi sjálfur og Snar telur sig vera samsettann úr við og bergi. Þær keppa um hvor þeirra hafi fleiri greiningarnar. Grimmi vinnur þann meting enda alveg Snar eins og venjulega.
    Hasaþattur, leggið við hlustir, eyru og jafnvel rass. Sumir hlusta á allt með rassgatinu. Gaman að vera opinn og heyra skoðanir allra.
    Luv 😘♥️🥰🤪
    51 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners