Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið 21. nóv - Sjókvíaeldi, ESB, húsnæðiskrísa, smáfyrirtækjaskattamál, Gaza
    Fimmtudagur 21. nóvember
    Sjókvíaeldi, ESB, húsnæðiskrísa, smáfyrirtækjaskattamál, Gaza
    Í beina útsendingu í kvöld mæta vaskir frambjóðendur og talsmenn, þau Karl Héðinn Kristjánsson, Sósíalisti, Gísli Rafn Ólafsson, Pírati, Mörður Árnason, Samfylkingu og Björg Eva Erlendsdóttir, Landvernd til að ræða um sjókvíeldi, eldgos og önnur eldheit kosningamál. Þau Haraldur Ólafsson hjá Heimssýn og Helga Vala Helgadóttir hjá Evrópuvaktinni eru á öndverðum meiði um hvort Ísland eigi að ganga í ESB. Við heyrum rökræðu þeirra á millum. Við höldum síðan áfram að ræða húsnæðiskrísuna á markvissan máta með fulltrúa Leigjendsamtakanna, Yngva Ómari Sighvatssyni sem tekur frambjóðendur nokkura flokka í próf og í dag mæta þeir Jóhann Páll Jóhannsson, frambjóðandi Samfylkingarinnar, Grímur Grímsson, frambjóðandi Viðreisnar og Ragnar Þór Ingólfsson, frambjóðandi Flokks fólksins.
    Spurning dagsins er hvernig líður almenningi í samfélaginu, við spyrjum fólk á förnum vegi. Síðan segir Sigmar Vilhjálmsson, formaður Atvinnufélagsins okkur frá hvernig skattaumhverfi fyrirtækja hyglir hinum stóru á kostnað smáfyrirtækja og Benjamín Julian, verkefnastjóri Verðlagseftirlits Alþýðusambandsins, fræðir okkur um samkeppnina á dagvörumarkaði. Illugi Jökulsson, rithöfundur segir okkur frá allri fegurðinni sem finna má í hversdeginum en hann hefur í nokkur ár fangað lítil augnablik, glefsur úr lífum fólks og gefið út í bókinni "Rétt áðan".
    Í Radió Gaza koma þau saman Gígja Sara Björnsson, Valgeir Skorri Vernharðsson, Hjálmtýr Heiðdal og Snæbjörn Brynjarsson sem öll standa fyrir viðburðum á næstu vikum. Áherslurnar og aðferðirnar eru kannski ólíkar en meginstefið er það sama, mannréttindi. Að lokum heyrum við í oddvita Sósíalista í Norðvesturkjördæmi, Guðmundi Hrafni sem spjallar við Sigurjón Magnús Egilsson í Oddvitaspjalli Rauða borðsins.
    6 hr 27 min
  • Rauða borðið 20. nóv - Kosningar, almenningur, húsnæði og Davíð Þór
    Miðvikudagurinn 20. nóvember
    Kosningar, almenningur, húsnæði og Davíð Þór
    Gísli Tryggvason lögmaður, Atli Þór Fanndal almannatengill, Kristín Eiríksdóttir skáld og Sunna Sæmundsdóttir fréttakona koma að Rauða borðinu og greina kosningabaráttu sem er uppfull af hneykslum. Almenningur verður spurður og Oddný Eir Ævarsdóttir fær Yngva Ómar Sighvatsson frá Leigjendasamtökunum til að yfirheyra frambjóðendur um húsnæðismál og athuga hvað flokkarnir bjóða upp á sem alvöru lausn í húsnæðiskrísunni miklu. Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata, Ágúst Bjarni Garðarsson, þingmaður Framsóknar og Guðmundur Hrafn Arngrímsson frambjóðandi Sósíalistaríða á vaðið og takast á við vandann. Í lokin ræðir Sigurjón Magnús Egilsson við Davíð Þór Jónsson prest og oddvita Sósíalista í Suðvesturkjördæmi.
    3 hr 8 min
  • Rauða borðið 19. nóv. - Kosningar, verkföll, hvalveiðar og Gunnar blaðasali
    Þriðjudagur 19. nóvember
    Kosningar, verkföll, hvalveiðar og Gunnar blaðasali.
    Pólitík, verkföll, hvalveiðar eða ekki, bókmenntir og Gunnar Valur Gunnarsson Jensen blaðasali eru á dagskrá Rauða borðsins í kvöld. Doktor Kristín Vala Ragnarsdóttir, Starkaður Björnsson MR-nemi í verkfalli, Tómas Ellert Tómasson byggingaverkfræðingur og Jasmína Vajzovic baráttukona sem flutti til hins fyrirheitna Íslands verða gestir Björns Þorlákssonar í beinni útsendingu. Þau ræða pólitíkina og samfélagið.
    Þau Vilhjálmur Birgisson verkalýðsforkólfur og Vala Árnadóttir hvalfriðunarsinni koma svo og rökræða hvort veiða eigi hval eða ekki. Meint spilling inni í matvælaráðuneytinu verður sérstaklega til umræðu.
    Sigurjón Magnús Egilsson kemur svo og ræðir við frambjóðanda sósíalista.
    Vigdís Grímsdóttir, rithöfundur og Oddný Eir ræða við Kristínu Ómarsdóttur um nýjustu bók hennar Móðurást, Draumþing, um ömmurnar og karlana og lífið í skáldskapnum.
    Og við ljúkum þættinum á spjalli Gunnars Smára Egilssonar við Gunnar Val Gunnarsson Jense fyrrum blaðasala, sem segir frá lífi sínu og skoðunum.
    4 hr 12 min
  • Rauða borðið 18. nóv - Skandalar, búvöruhneyksli, fiskur og spilling
    Mánudagur, 18. nóvember
    Skandalar, búvöruhneyksli, fiskur og spilling.
    Í beina útsendingu koma til okkar Þórunn Hreggviðsdóttir, skurðhjúkrunarfræðingur, Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, Magnús Árni Skúlason, hagfræðingur og Þórdís Bjarnleifsdóttir, félagsráðgjafi og fyrrverandi bóndi til að ræða líðandi stund og helstu skandala í pólitíkinni í aðdraganda kosninga. Breki Karlsson og Sigurjón Magnús Egilsson fara síðan yfir störf Alþingis - en í dag var þinginu slitið. Þeir ræða líka um búvöruhneykslið. Jón Kristjánsson fiskifræðingur rekur samband spillingar og fiskiráðgjafar. Hann vill að við veiðum meiri þorsk en lagt er til.
    3 hr 10 min
  • Synir Egils 17. nóv - Pólitík, kosningar, öryggismál
    Sunnudagurinn 17. nóvember:
    Synir Egils: Pólitík, kosningar, öryggismál
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Rakel Þorbergsdóttir samskiptastjóri og fyrrverandi fréttastjóri, Róbert Marshall fjallamaður og fyrrum blaðamaður og Lára Zulima Ómarsdóttir upplýsingafulltrúi og fyrrum blaðakona og ræða æsispennandi og viðburðaríka viku í upphafi kosningabaráttu. Þeir bræður taka stöðuna á pólitíkinni með sínu nefi og ræða síðan við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor á Akureyri um öryggismál Evrópu og þar með Íslands í veröld sem tekur hröðum breytingum.
    3 hr 24 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 46
    Föstudagur 15. nóvember
    Vikuskammtur: Vika 46
    Náttúruhamfarir, umhverfishamfarir, framboðshamfarir en líka grín og gleði verður til umræðu í Vikuskammtinum að þessu sinni. Tíðindarík vika að baki og veitir ekki af eldfjallafræðingi til að greina stöðuna! Þau Sigurrós Eggertsdóttir, Helga Sigrún Harðardóttir, Þorvaldur Þórðarson og Páll Valur Gíslason leiða saman hesta sína. Þau ræða fréttir vikunnar og tíðaranda líðandi stundar. Björn Þorláks stýrir umræðunum
    1 hr 19 min
  • Rauða borðið 14. nóv: Kosningar, spilling, list, inngilding og fjölmiðlar
    Fimmtudagur 14. nóvember
    Kosningar, spilling, list, inngilding og fjölmiðlar
    Í beina útsendingu við Rauða borðið í kvöld koma þau Henry Alexander Henryson, siðfræðingur, Snorri Ásmundsson, myndlistarmaður, Sigurður Haraldsson, rafvirkjameistari og Ása Lind Finnbogadóttir, framhaldsskólakennari og plötusnúður til að ræða málefni líðandi stundar í aðdraganda kosninganna. Í málefnaumræðu um mikilvægustu málefni kosninganna ræðum við um spillingu á Íslandi og þau Guðrún Johnsen, hagfræðingur og deildarforseti Viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst, Jón Þórisson, fyrrum aðstoðarmaður Evu Joly, Björn Þorláksson, höfundur og blaðamaður og Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands ræða um stöðu og umfang spillingarinnar á Íslandi og velta fyrir sér spillingarvörnum, tjáningarfrelsi og ótta í ljósi nýliðinna atburða og annarra eldri. Til að ræða annað mikilvægt mál sem sumir telja að sé tískuorð forréttindahópa en er í raun réttindabarátta upp á líf og dauða koma þau Margrét M. Norðdahl, Þórir Gunnarsson, Elín Sigríður María Ólafsdóttir listafólk hjá Listvinnzlunni. Þau ræða um lokaðar dyr sem fatlaðir einstaklingar og listamenn rekast á og um sína eigin sáru reynslu af jaðarsetningu og útilokun frá skólakerfinu og skora á stjórnvöld og samfélagið allt að taka skref og taka þátt í inngildingu, skapandi starfi og samræðu sem opnar dyr. Við heyrum svo í Skapta Hallgrímssyni ritstjóra á Akureyri sen fer yfir helstu màl norðan heiða, brjàlaða veðurspá og afmæli mikilvægs vefmiðils.
    4 hr 18 min
  • Rauða borðið 13. nóv - Kosningar, hneyksli, húsnæði og saga úr daglega lífinu
    Miðvikudagurinn 13. nóvember
    Kosningar, hneyksli, húsnæði og saga úr daglega lífinu
    Fjórir listamenn mæta í beina útsendingu í kvöld og svara spurningu um hvort listamenn forðist að opinbera pólitískar skoðanir? Getur það skaðað þá? Og þá hvernig? Þekkjum við dæmi um það? Listamennirnir eru: Jóna Hlíf Halldórsdóttir, Auður Jónsdóttir, Guðmundur Andri Thorsson og Hörður Torfason. Rannsóknarblaðamennirnir Helgi Seljan og Aðalsteinn Kjartansson bregða sér í hlutverk viðmælenda í kvöld og fara yfir mál vikunnar; meinta spillingu í sjávarútvegsráðuneytinu og títt umrædda uppljóstrun tengda syni fyrrverandi ráðherra. Jónas Atli Gunnarsson, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Sigurður Stefánsson, Aflvaka og Yngvi Ómar Sighvatsson, Leigjendasamtökunum ræða um helstu áskoranir í umbótum í húsnæðisóefni þjóðarinnar. Hafdís Huld Eyfeld Haakansson eftirlaunakona og móðir fjölfatlaðrar konu, Svanhvítar Eddu Johnsen, segir frá baráttu sinni fyrir að dóttirin fái notið arfs sem hún fékk eftir föður sinn.
    3 hr 34 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners