Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Synir Egils 3. nóv - Kosningar, kappræður, kjaradeilur
    Sunnudagurinn 3. nóvember:
    Synir Egils: Kosningar, kappræður, kjaradeilur
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þær Halla Gunnarsdóttir varaformaður VR, Sema Erla Serdaroglu aðjúnkt og Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt og ræða pólitík og samfélag í aðdraganda kosninga. Þeir bræður taka púlsinn á Alþingi og ræða síðan um verkföll í kosningabaráttu. Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélagsins greinir stöðuna í kjaraviðræðum.
    2 hr 2 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Magnús Scheving
    Laugardagurinn 2. nóvember
    Helgi-spjall: Magnús Scheving
    Magnús Scheving segir frá harðræði í æsku, hvernig hann lifði af og hvernig þau viðbrögð mótaðu líf hans, frá lífsviðhorfum sínum og leit að því að sætta þá Magga sem búa innra með honum.
    3 hr 25 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur - Vika 44
    Föstudagur 1. nóvember
    Vikuskammtur: Vika 44
    Að Rauða borðinu í beina útsendingu í Vikuskammtinn koma til að ræða frjálslega út frá fréttum vikunnar þau Ása Lind Finnbogadóttir, framhaldsskólakennari og plötusnúður, Valur Gunnarsson, rithöfundur, Sigrún Sandra Ólafsdóttir, endurvinnsluáhugamanneskja, Arnar Páll Gunnlaugsson, bifvélavirki og frambjóðandi og Þór Martinsson, sagnfræðingur. Umsjón með umræðunni hefur Oddný Eir.
    1 hr 27 min
  • Rauða borðið 31. okt - Kosningar, samkeppni, verkfall, Bandaríkin og klassíkin
    Fimmtudagurinn 31. október
    Kosningar, samkeppni, verkfall, Bandaríkin og klassíkin
    Spennan í íslenskum stjórnmálum vex. Héðinn Unnsteinsson stefnumótunarfræðingur, Jakob Frímann Magnússon, tónlistarmaður og þingmaður, Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar taka stöðuna. Við ræðum samkeppnismál í aðdraganda kosninga: Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna, Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins og Gísli Tryggvason lögmaður og fyrrum talsmaður neytenda ræða hvað stjórnvöld þurfa að gera til efla samkeppni og styrkja hag neytenda. Guðjón Hreinn Hauksson formaður Félags framhaldsskólakennara, Haraldur F. Gíslason formaður Félags leikskólakennara, Sigrún Grendal Jóhannesdóttir formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins koma á verkfallsvakt kennara. Jón Ólafsson prófessor og Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi ræða forsetakosningarnar í Bandaríkjunum og Magnús Lyngdal Magnússon sagnfræðingur segir okkur frá bók sinni um Klassíska tónlist.
    4 hr 9 min
  • Rauða borðið 30. okt - Kosningar, skattar, verkfall, öryggismál og gervigreind
    Miðvikudagurinn 30. október
    Kosningar, skattar, verkfall, öryggismál og gervigreind
    Við byrjum á kosningum: Theodóra S. Þorsteinsdóttir fyrrverandi þingkona og nú bæjarfulltrúi, Erna Hlynsdóttir blaðakona, Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna og Guðmundur Ari Sigurjónsson formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar greina stöðuna. Skattamál verða kosningamál. Stefán Ólafsson prófessor, Indriði H. Þorláksson fyrrum skattstjóra og Skapti Harðarson formaður Samtaka skattgreiðenda ræða allar hliðar skattamála. Egill Helgason og Hulda Lovísa Ámundadóttir, deildarstjórar á Drafnarsteini, koma á verkfallsvaktina. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir öryggismál Evrópu og Úkraínustríðið og Þorsteinn Siglaugsson hagfræðingur ræðir um áhrif gervigreindar á samfélagið.
    5 hr 5 min
  • Rauða borðið: Kosningar, útlendingamál, Selenskí, lýðræði og Elísabet
    Þriðjudagurinn 29. október
    Kosningar, útlendingamál, Selenskí, lýðræði og Elísabet
    Við ræðum komandi kosningar, um hvað verður kosið, hvaða flokkar eru í sókn og hverjir í vörn. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir prófessor, Páll Magnússon forseti bæjarstjórnar í Vestmannaeyjum, Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar og Freyja Steingrímsdóttir framkvæmdastjóri Blaðamannafélagsins greina stöðuna. Svo kölluð útlendingamál eru eitt af kosningamálunum. Qussay Odeh íslensk-palestínskur aðgerðarsinni, Nichole Leigh Mosty leikskólastjóri, Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur og Nína Helgadóttir teymisstjóri hjá Rauða krossinum ræða þetta hitamál. Tjörvi Schiöth doktorsnemi í sagnfræði greinir hvað Selenskí Úkraínuforseti var að biðja Norðurlöndin um. Björn Þorsteinsson heimspekiprófessor ræðir um lýðræðiskrísuna og Elísabet Jökulsdóttir segir okkur frá bók sinni um Grikklandsárin sín, þegar hún var barn.
    4 hr 39 min
  • Rauða borðið: Kosningar, skólamál, forseti USA, kennaraverkfall og heilbrigðiskerfið
    Mánudagurinn 28. október
    Kosningar, skólamál, forseti USA, kennaraverkfall og heilbrigðiskerfið
    Við höldum áfram að ræða komandi kosningar: Bolli Héðinsson hagfræðingur, Davíð Þór Jónsson prestur og frambjóðandi Sósíalista, Halldóra Mogensen þingkona Pírata og Úlfar Hauksson stjórnmálafræðingur og skútuskipstjóri ræða stöðuna. Skólamál verða eitt af kosningamálunum: Kristín Björnsdóttir formaður Kennarafélags Reykjavíkur, Björgvin Þór Þórhallsson aðstoðarskólastjóri og Ragnar Þór Pétursson kennari Í Norðlingaskóla ræða skólamálin og meta áhrif þeirra á kosningarnar. Guðmundur Hálfdanarson prófessor og Magnús Helgason sagnfræðingur greina æsispennandi forsetakosningar í Bandaríkjunum og áhrif þeirra innanlands og utan. Kennarar eru að fara í verkfall: Þórunn Sif Böðvarsdóttir kennari í Laugalækjarskóla, Halldóra Guðmundsdóttir leikskólastjóri í Drafnarsteini, Helga Baldursdóttir varaformaður Félags framhaldsskólakennara og kennir í Tækniskólanum og Egill Helgason kennari í Drafnarsteini ræða stöðuna og í lokin ræðir Gunnar Alexander Ólafsson heilsuhagfræðingur um heilbrigðiskerfið.
    4 hr 19 min
  • Synir Egils: Kosningar, átök og deilur
    Sunnudagurinn 27. október:
    Synir Egils: Kosningar, átök og deilur
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Margrét Sanders bæjarfulltrúi, Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi og Hjördís Rut Sigurjónsdóttir upplýsingafulltrúi og ræða stöðuna í aðdraganda kosninga á Íslandi og í Bandaríkjunum. Þeir bræður taka stöðuna á pólitíkinni og fá síðan Ólafur Ragnar Grímsson fyrrum forseta til að fjalla um fjölmiðlamálið og Icesave í tilefni af útgáfu dagbóka sinna.
    3 hr 3 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners