Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Heimsmyndir - Valgerður Þ. Pálmadóttir
    Föstudagur 25. október
    Heimsmyndir - Valgerður Þ. Pálmadóttir
    Valgerður Þ. Pálmadóttir doktor í hugmyndasögu kom i þáttinn að ræða breytingar á heimsskilningi fólks í gegnum tíðina. Svo tóku þau Kristinn djúpa dýfu í Frankenstein eftir Mary Shelley. Það ótrúlega margbrotna verk.
    1 hr 19 min
  • Með á nótunum #101 - Hrund Atladóttir
    Föstudagur 25. október
    Með á nótunum #101
    Í þessum þætti fengum við til liðs við okkur Hrund Atladóttur myndlistarkonu og fórum yfir málefni líðandi stundar og allt þar á milli. Hópurinn skellti sér í Bíó Paradís og sá myndina Substance og var hún rædd. Ríkistjórnin er spruning. Nýjar vendingar í máli rapparans P Diddy halda áfram að koma í ljós og virðast fleiri og fleiri frægir flækjast inn í það erfiða mál. Hliðarverðlaun Nóbels voru veitt á dögunum og fékk frekar áhugaverð uppgötvun þau í ár og að sjálfsögðu eru afmælisbörnin á sínum stað.
    ATH: Með á nótunum er venjulega á dagskrá Samstöðvarinnar annað hvert þriðjudagskvöld kl. 23 en af óviðráðanlegum orsakum forfallaðist útsending s.l. þriðjudag og sýnum við því þátt þriðjudagsins núna.
    1 hr 12 min
  • Rauða borðið: Vikuskammtur - Vika 43
    Föstudagur 25. október
    Vikuskammtur - Vika 43
    Í vikuskammt að þessu sinni koma þau Valgerður Árnadóttir, talskona Hvalavina, Yngvi Ómar Sighvatsson, tölvuleikjahönnuður og varaformaður leigjendasamtakanna, Sunna Ingólfsdóttir, mannfræðingur, kennari og tónlistarkona og Geir Sigurðsson, rithöfundur og prófessor. Umsjón hefur Oddný Eir Ævarsdóttir.
    1 hr 25 min
  • Rauða borðið 24. okt - Kosningar, átök, hækkun matarverð, hernaðarandstæðingar, Gaza og vond leikrit
    Fimmtudagurinn 24. október
    Kosningar, átök, hækkun matarverð, hernaðarandstæðingar, Gaza og vond leikrit
    Við ræðum pólitík í aðdraganda kosninga. Karen Halldórsdóttir fyrrum bæjarfulltrúi, Marinó G. Njálsson ráðgjafi, Guðríður Arnardóttir fyrrverandi form Félags framhaldsskólakennara og fyrrum bæjarfulltrúi og Hákon Gunnarsson varabæjarfulltrúi, allt Kópavogsbúar, koma fyrst og svo blaðamennirnir Jakob Bjarnar Grétarsson, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, Frosti Logason og Karen Kjartansdóttir. Benjamín Julian, verkefnastjóri verðlagseftirlits Alþýðusambandsins, fjallar um hækkun matvælaverðs og önnur neytendamál. Árni Hjartarson, sem var ritstjóri veglegar bókar um baráttu hernaðarandstæðinga, segir okkur frá bókinni og baráttunni. Árni segir enn: Ísland úr Nató og herinn burt. María Lilja fær til sín ungliða til að ræða þjóðarmorðið í Gaza: Gunnar Ásgrímsson kemur frá Ung Framsókn, Ármann Leifsson frá Ungum jafnaðarmönnum í Samfylkingunni, Karl Héðinn Kristjánsson frá Roða í Sósíalistaflokknum og Sverrir Páll frá Uppreisn í Viðreisn. Og Lára Magnúsardóttir ræðir um tvö leikrit á fjölum leikhúsanna og þær leiðir sem hægt er að fara til að virkja menningarstofnanir okkar til að styrkja íslensku og fólk sem vill læra íslensku.
    5 hr 2 min
  • Rauða borðið 23. okt - Pallborð ungliða, pólitíkin, flokkur innflytjenda, leikhús, búverkabyltingin
    Miðvikudagur 23. október
    Pallborð ungliða, pólitíkin, stjórnmálaafl innflytjenda, leikhús og forn vinnumenning
    Við hefjum leik á umræðu ungs fólks, heyrum hvað þeim finnst að stjórnmálaflokkar ættu að setja á oddinn nú fyrir kosningarnar. Þau Jósúa Gabríel Davíðsson, Valgerður Birna, Karl Héðinn Kristjánsson og Viktor Pétur Finnsson ræða málin með Birni Þorláks umsjónarmanni í beinni útsendingu.
    Að þeirri umræðu lokinni koma þau Oddný G. Harðardóttir þingmaður, Vigdís Hauksdóttir fyrrum þingmaður, Björg Eva Erlendsdóttir fyrrum fréttamaður og Sigmundur Ernir, sem er bæði fyrrum ritstjóri og fyrrum þingmaður og ræða ýmsa anga stjórnmálanana og bregðast að einhverju leyti við orðum unga fólksins. Jasmina Vajzovic ætlar svo að segja okkur frá höfnun og útilokun sem hún upplifði eftir röðun á lista Viðreisnar. Hún upplýsir um hugmyndir um stofnun nýs stjórnmálaflokks, sem aðeins yrði skipaður innflytjendum. Gunnar Smári fjallar um Óskalandið, gamandrama í Borgarleikhúsinu, og ræðir við leikstjórann Hilmi Snæ Guðnason og leikarana Esther Talíu Casay og Vilhelm Neto. Einnig kynnum við nýlega bók um forna búskaparhætti, Bjarni Guðmundsson kennari er höfundur hennar og segir hann okkur frá bókinni og efni hennar.
    3 hr 39 min
  • Rauða borðið 22. okt - Kosningar, karlar, dans og ofbeldi
    Þriðjudagurinn 22. október
    Kosningar, karlar, dans og ofbeldi
    Við höldum fram að ræða komandi kosningar: Jón Gnarr frambjóðandi Viðreisnar, Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur, Valur Gunnarsson sagnfræðingur og Frosti Sigurjónsson fyrrum þingmaður Framsóknar metra stöðuna og síðan halda þau áfram: Kristín Vala Ragnarsdóttir jarðfræðingur, Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur og þjóðfræðingarnir Auður Viðarsdóttir og Vilborg Bjarkadóttir. Í karlaspjalli á þriðjudegi ræðum við spaka karlinn. Bjarni Karlsson prestur og siðfræðingur leiðir samtalið og Pawel Bartoszek varaborgarfulltrúi, Logi Pedro Stefánsson tónlistarmaður og hönnuður, Sverrir Norland rithöfundur og Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri taka þátt. Svartir fuglar er dansverk sem sýnt er í Tjarnarbíói, Lára Stefánsdóttir samdi dansa við ljóð Elísabetar Jökulsdóttur og Lára Þorsteinsdóttir dansar. Við fáum þær í heimsókn. Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins ræðir breytta birtingarmynd ofbeldis. Engin teikn eru á lofti um að útlendingar beiti frekar íslenskar konur ofbeldi en innfæddir karlar.
    4 hr 52 min
  • Rauða borðið: Kosningar, frambjóðendur, blaðamennska, Grindavík og Gaza
    Mánudagurinn 21. október
    Kosningar, frambjóðendur, blaðamennska, Grindavík og Gaza
    Við höldum áfram þjóðfundi um komandi kosningar: Þórður Gunnarsson hagfræðingur, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar, Jón Magnús Kristjánsson læknir og Brynhildur Björnsdóttir fjölmiðlakona ræða pólitíkina og síðan koma: Bragi Páll Sigurðsson rithöfundur, Hrafn Jónsson kvikmyndagerðarmaður og Lóa Hjálmtýsdóttir myndlistarkona og greina stöðuna. Kristinn Hrafnsson blaðamaður greinir þunga stöðu blaðamennsku á Íslandi sem og í umheiminum og Magnús Gunnarsson trillukarl ræðir tímamótin sem urðu í dag þegar Grindavík var opnuð. Bergþóra Snæbjörnsdóttir og Hildur Þórðardóttir ræða við Maríu Lilju Ingveldar-Þrastardóttur Kemp um þjóðarmorðin á Gaza.
    4 hr 10 min
  • Synir Egils: Hasar í pólitíkinni, fallin ríkisstjórn, veikir flokkar og rísandi
    Sunnudagurinn 20. október:
    Synir Egils: Hasar í pólitíkinni, fallin ríkisstjórn, veikir flokkar og rísandi
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þær Sonja Þorbergsdóttir forseti BSRB, Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri og Stefanía Óskarsdóttir prófessor. Þeir bræður ræða stöðuna í stjórnmálunum og fá líka fleiri gesti til að meta stöðuna: Ólaf Þ. Harðarson prófessor, Helgu Völu Helgadóttur lögmann og Líf Magneudóttur borgarfulltrúa.
    2 hr 46 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Kristinn Sigmunds
    Laugardagurinn 19. október
    Helgi-spjall: Kristinn Sigmunds
    Kristinn Sigmundsson segir okkur frá ferð sinni um lífið og óperuheiminn, hvernig tilviljanir og heppni ráða oft mestu í lífinu og hvernig best er að sætta sig við það og njóta.
    35 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners